Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Side 21
DV 19. FEBRÚAR 2021 FÓKUS 21 UNA JÓNS Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, er súper góð í hagfræði og fræðir okkur reglulega um húsnæðismarkaðinn í fjölmiðlum og þykir koma vel fyrir. Una starfaði áður hjá Íbúðalánasjóði og stóð sig glimrandi vel. Una er útvistarkona sem hleypur og hendir sér á gönguskíði. Una festi nýlega kaup á Jimny jepplingi til þess að geta elt ævintýrin enn frekar. HEIÐA Í NIKITA Heiða Birgisdóttir fatahönnuður – oft kennd við Nikita, er á lausu. Heiða er afburða listakona sem stofnaði fyrir rúmum 20 árum brettafatafyrirtækið Nikita ásamt þáverandi eiginmanni sínum. Síðan þá hefur hún meðal annars starfað hjá Cintamani. Heiða er mikil áhuga- manneskja um snjóbretti og fjallamennsku. KRISTÍN BJÖRK Kristín Björk Þorvaldsdóttir flugfreyja, kamelljón og eldhúsdíva er ein af þeim konum sem virðist geta skipt um ham eftir aðstæðum og tækifærum. Hún er elskar útiveru hvort sem það eru göngur, skíði, veiði eða golf. Kristín er líkleg til afreka í eldhúsinu eins og girnilegar myndir á samfélagsmiðlum sýna. Fagurkeri með góða bragðlauka. DAGBJÖRT REGINS Dagbjört Reginsdóttir eða Dæja eins og hún kölluð er læknir og stundar sérnám í geðlækningum. Hún starfar á Landspítalanum og kemur úr sannkölluðu kvennaveldi en hún á fjórar systur og einn bróðir. Systur hennar hafa allar látið til sín taka á hinum ýmsu sviðum og eru annálaðar smekkkonur með breið bros. Dagbjört er úr Hafnarfirði og býr þar ásamt börnum sínum þremur. Metnaðarfull og stórglæsileg kona. BIRNA DRÖFN JÓNASDÓTTIR Blaðakonan Birna Dröfn Jónasdóttir skartar guðdóm- legu rauðu hári, skopskyni sem kippir svo sannarlega munnvikunum í rétta átt og fatastíl sem tekið er eftir. Birnu má oft rekast á í miðbænum þar sem hún starfar en hún sést gjarnan í hádegismat á lekkerum stöðum miðborgarinnar. MYND/FACEBOOK MYND/INSTAGRAM MYND/FACEBOOK MYND/FACEBOOK MYND/ÚR SAFNI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.