Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 36
Fermingarkaka Hérna kemur uppskrift að ferming- arköku sem virkar vel í hvaða veislu sem er. Súkkulaðibotnar með góðu smjörkremi. Ég sýni hér á myndinni tvær gerðir af því hvernig hægt er að skreyta kökuna, bæði með lifandi blómum og svo einnig með marengstoppum. Mikilvægt er að pakka blóma- stönglunum alltaf inn í svokallað blómalímband áður en þeim er stungið inn í kökuna. Þetta er gert til þess að forðast að vökvi úr blóm- unum fari í kökuna sjálfa. Þessi uppskrift dugar í 2 botna í bökunarformi sem er 20,3 cm x 7,6 cm, hringlaga form. Ég geri svo hálfa uppskrift í viðbót til að setja í toppinn á kökunni en það form er frá Wilton í stærðinni 15,2 cm x 5,08 cm hringlaga. Súkkulaðikaka 3 dl hveiti 2 dl sykur 1 tsk. matarsódi 1 tsk. salt 1 dl kakó 1/2 dl matarolía 1,5 dl ab mjólk 4 stk. egg 1 tsk. vanilludropar Stillið ofninn á 180 gráður. Spreyið formin með PAM spreyi eða smyrjið þau vel að innan með smjör- líki. Blandið þurrefnum saman í skál og gott er að sigta kakóið og hrærið létt. Blandið svo olíunni, ab-mjólkinni, vanilludropunum og eggjunum saman við og hrærið vel, ég set þetta í hrærivélina og notast við meðal- hraðastillingu. Passið að hræra blönduna vel saman þannig að hún sé kekkjalaus. Skiptið deiginu jafnt í formin tvö, setjið í ofninn og bakið í um 35 mínútur, gott að nota bökunarprjón til að kanna hvort að kakan sé alveg tilbúin. Látið botnana alveg kólna áður en kremið og skreytingar eru settar á. Smjörkrem 500 g smjörlíki (mjúkt) 500 g flórsykur 2 msk. vanilludropar Blandið saman í skál smjörlíki, flór- sykri og vanilludropum og þeytið vel saman á góðum hraða. Því lengur sem hrært er því hvítara verður kremið. Takið smá part af smjörkreminu til hliðar ef valið er að lita smá part af því. Smyrjið kreminu á kökuna, setjið vel af kremi milli botnanna og á alla kanta. Sléttið úr kreminu eins og hægt er og kælið hana í um 20 mín- útur og endurtakið aðferðina. Setjið litað smjörkrem hér og þar á kökuna og að því loknu er best að strjúka yfir kökuna til að allt krem verði jafnt. Pakkið blómastönglunum inn í blómalímband til þess að forðast að vökvi úr blómunum berist í mat- vælin, stingið blómunum hér og þar sem ykkur finnst fallegast. Una í eldhúsinu Una Guðmundsdóttir matgæðingur DV deilir hér fallegum og bragð- góðum hugmyndum að fermingar- veislum. Þar sem ekki er vitað hvernig samkomutakmarkanir verða í kringum fermingar er snið- ugt að útbúa sem mest sjálfur og geta þá skalað veisluna upp eða niður eftir þörfum. MYNDIR/VALLI Dísæt og dásamleg fermingar- veisla SÆLGÆTISBAR Sælgætisbar er skemmtileg leið til að skreyta borðið. Bæði er hægt að raða sælgætinu á fallegan kökudisk eða nota fallegar mismunandi krukkur. Sælgætispokana fékk ég í Søstrene Grene, þeir eru til í mismunandi fallegum litum. Eins fannst mér upplagt að kaupa litlar gylltar tangir til að forðast það að fólk fari með hendurnar í sælgætið, tangirnar fékk ég líka í Søstrene Grene. 36 MATUR 19. FEBRÚAR 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.