Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2021, Qupperneq 38
38 SPORT 433 MYNDIR/GETTY HEIMSFRÆGAR eiginkonur fótboltamanna Eiginkonur knattspyrnumanna eru oft ekki minni stjörnur en eiginmennirnir og hafa margar þeirra látið til sín taka í viðskiptalífinu og er þeim margt til lista lagt. Heimsfrægar söngkonur, fatahönnuðir, sjónvarpskonur og æskuást. 19. FEBRÚAR 2021 DV VICTORIA BECKHAM Eiginkona David Beckham er á pari við hann þegar kemur að frægð og frama, segja má að þau séu hið raunverulega ofurpar þegar kemur að fót- boltanum. Parið byrjaði að rugla saman reitum árið 1997 og hafa staðið saman síðan þá. Þau giftu sig árið 1999 og eiga saman fjögur börn, þrjá stráka og eina stelpu. Victoria var líklega þekktari þegar þau kynntust enda hafði hún öðlast algjöra heimsfrægð með Spice Girl. Posh Spice eins og hún var kölluð hefur heldur dregið sig til hlés síðustu ár á meðan Beckham hefur áfram baðað sig í sviðsljósinu. Hjónin vekja athygli hvert sem þau koma, þau búa í London en eru mikið á Miami þar sem David á knattspyrnu- félagið Inter Miami. Victoria hefur reynt fyrir sér bæði sem fatahönnuður, hannað fyrir verslunarkeðjuna Target, skrifað bækur, tekið þátt í heimilda- myndagerð og unnið að góðgerðarmálum. ANTONELLA ROCCUZZO Er líklega þekktust fyrir að vera eiginkona Lionel Messi en það voru ekki frægð, peningar og frami sem heill- uðu hana til að byrja með. Antonella og Messi ólust upp í Rosario í Argentínu og hafa þekkst frá fimm ára aldri. Frændi hennar var vinur Messi og þannig byrjaði vinskapur þeirra. Messi fluttist til Spánar þegar hann var 13 ára gamall en þau héldu alltaf samband. Síðan þróaðist samband þeirra út í ástarsamband og hefur það blómstrað síðan. Messi er hlédrægur utan vallar og vill lítið baða sig í sviðsljósinu, Antonella er á svip- uðum slóðum. Þau giftu sig árið 2017 og eiga saman tvö börn. Antonella hefur getið sér gott orð sem fyrir- sæta og starfar meðal annars fyrir Ricky Sarkany sem selur eftirsótta skó. SHAKIRA Þessi heimsfræga söngkona á í ástarsambandi við Gerard Pique, varnarmann Barcelona. Þau hittust árið 2010 þegar verið var að taka upp tónlistarmyndband Shakira á laginu Waka Waka sem var einkennislag HM í knattspyrnu það sama ár. Neistinn kviknaði og hefur lifað síðan, saman eiga Shakira og Pique tvö börn. Pique er 34 ára gamall og er tíu árum yngri en þessi magnaða söng- kona. Shahkira er miklu frægari en eiginmaður hennar en hún er ein vinsælasta söngkona síðari ára, hún hefur einnig starfað sem sendiherra fyrir UNICEF. COLEEN ROONEY Hefur verið á forsíðum enskra blaða frá unga aldri. Hún og Wayne Rooney kynntust þegar þau voru tólf ára í Liverpool, ástarsamband þeirra hófst þegar þau voru 16 ára en þá var Rooney á barmi heimsfrægðar. Nú tuttugu árum síðar eru þau enn í sviðsljósinu og standa saman þrátt fyrir talsverð læti í gegnum árin. Þau gengu í hjónaband árið 2008 en Coleen hefur gert það gott í viðskiptum, meðal annars hannað fatalínur, skrifað fyrir fjölmiðla sem og fjölda bóka auk þess sem hún hefur starfað í sjónvarpi, á meðan eiginmaðurinn hefur einbeitt sér að fótboltanum. Eiginmaðurinn hefur verið gómaður við framhjáhald og átt í talsverðu veseni utan vallar, Coleen hefur hins vegar fyrirgefið honum marga heimskulega hluti. Saman eiga þau fjóra syni. SARA CARBONERO Sara er ein vinsælasta sjónvarpskona Spánar og þá sérstaklega í tengslum við knattspyrnu, hún er einnig eiginkona Iker Casillas. Markvörðurinn frá Spáni er hættur í dag en samband þeirra hefur vakið mikla at- hygli. Hú hefur verið kosin kynþokkafyllsta fréttakona heims. Casillas og Carbonero gengu í hjónaband árið 2016, sex árum eftir að hafa gert samband sitt opin- bert. Þau eiga tvo stráka saman en lífið hefur verið erfitt fyrir fjölskylduna síðustu ár. Carbonero var flutt á sjúkrahús á dögunum, tveimur dögum fyrir 37 ára af- mæli sitt. Hún hóf baráttuna við krabbamein árið 2018 en það sama ár fékk Casillas, sem þá lék með Porto, hjartaáfall. Bæði náðu bata og leit allt vel út hjá Carbo- nero. Krabbameinið tók sig hins vegar aftur upp og háir hún nú aðra baráttu við þennan skæða sjúkdóm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.