Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Síða 64
1961
— 62
stjórnin taldi, að þessi launahækkun færi langt fram úr því, sem afkoma
þjóðarbúsins leyfði, ekki sízt með tilliti til þess, að áhrif aflabrests og
verðfalls væru ekki liðin hjá og enginn gjaldeyrisvarasjóður fyrir hendi.
Væri því óhjákvæmilegt að endurskoða skráningu gengisins og gera
jafnframt aðrar ráðstafanir til að tryggja efnahagsjafnvægi. Með bráða-
birgðalögum útgefnum 1. ágúst var Seðlabanka íslands, er stofnaður
hafði verið með lögum fyrr á árinu, falin skráning gengis krónunnar, að
fengnu samþykki ríkisstjórnarinnar. Nýtt gengi gekk síðan í gildi hinn
4. ágúst, er var 43 kr. á Bandaríkjadollar, eða 13% hærra en það gengi,
sem áður hafði verið skráð, 38 kr. á Bandaríkjadollar. Launahækkanir
og breyting gengis röskuðu þvi verðlagsjafnvægi, sem ríkt hafði fyrri
hluta ársins, og hækkaði verðlag ört fram í desember. Staðan út á við
hélt hins vegar áfram að batna vegna áhrifa gengisbreytingarinnar og
aukins útflutnings. Framleiðsluverðmæti sjávarútvegsins, reiknað á föstu
verðlagi, jókst um 10% á árinu, og stafaði öll sú aukning og meira til
af hinum miklu síldveiðum síðari hluta ársins. Meðalverðlag útflutnings
hækkaði um 9% og varð jafnhátt og það hafði verið árið 1959, þegar
verðfallið hófst. Veðráttan var landbúnaðinum tiltölulega hagstæð, og
varð aukning landbúnaðarframleiðslu talsvert meiri en næstu ár á
undan, eða 5%. Aftur á móti minnkaði iðnaðarframleiðsla um 6—7%,
og talsvert dró úr byggingarstarfsemi. Þjóðarframleiðslan í heild jókst
um aðeins 1.5%. Var það nokkuð minna en árið áður, og svaraði nokkurn
veginn til aukningar fólksfjölda, sem var 1.6%. Vegna bættra viðskipta-
kjara jukust þjóðartelcjurnar hins vegar meira en þetta, eða um 5%.
Einkaneyzla jókst um 1.6%, eða jafnmikið og fólksf jöldinn. Kaupmáttur
ráðstöfunartekna, þ. e. atvinnutekna að frádregnum sköttum, en viðbætt-
um fjölskyldubótum, lækkaði talsvert á árinu, eða um 3% hjá verka-
mönnum, sjómönnum og iðnaðarmönnum til samans. Mest varð lækk-
unin hjá verkamönnum, tæp 5%, og átti hið langa verkfall mikinn
þátt i því. Hins vegar hækkaði kaupmáttur ráðstöfunartekna sjómanna
verulega vegna hins mikla sildarafla. Samneyzla, þ. e. stjórnsýsla, rétt-
argæzla, menntun og almenn heilsugæzla, sem hið opinbera lætur í té,
jókst nú miklu minna en árið á undan, eða aðeins um 1.2%. Fjárfesting
minnkaði á árinu um 23%, að langmestu leyti vegna þess að mjög dró úr
kaupum fiskiskipa, sem verið höfðu mikil árin á undan. Einnig minnk-
aði bygging íbúðarhúsa nokkuð og sömuleiðis opinberar framkvæmdir,
einkum rafveitu-, hitaveitu- og vatnsveituframkvæmdir. Á hinn bóginn
varð mikil aukning á skólabyggingum. Minnkun fjárfestingar ásamt
lítilli aukningu neyzlu stuðlaði að hinni mjög bættu afkomu landsins
út á við og aukningu gjaldeyrisforðans.1).
1) Frá Efnahagsstofnuninni.