Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Page 81
— 79 —
1961
14. Hettusótt (parotitis epidemica).
Töflur II, III og IV, 14.
1957 1958 1959 1960 1961
Sjúkl.................. 25 13 27 135 1684
Nokkur faraldur, flest tilfelli í marz og apríl, en annars dreifð nokkuð
jafnt á árið.
Rvik. 3 börn á aldrinum 5—9 ára fengu heilabólgu upp úr hettusótt.
Akranes. Faraldur í marz—júní, en varð vart allt árið.
Stykkishólms. Viðloðandi í Grafarnesi frá því i september til áramóta.
Búðardals. Faraldur í júlí.
Þingeyrar. Barst hingað í ágústmánuði og treindist út árið.
Akureyrar. Töluvert útbreiddur faraldur með allmörgum orchitum
sem fylgikvillum, og voru sum þeirra tilfella mjög þung. Enginn sjúkling-
ur dó þó, og engin tilfelli heilabólgu komu í sambandi við þennan
faraldur.
15. Kveflungnabólga (pneumonia catarrhalis).
16. Taksótt (pneumonia crouposa).
Töflur II, III og IV, 15—16.
1957 1958 1959 1960 1961
Sjúkl.i) 800 895 1909 1693 1505
— 2) 87 94 123 143 141
Dánir 47 100 94 60 94
Útbreiðsla svipuð og árið áður. Mannslátum af völdum veikinnar fjölg-
ar nú aftur.
17. a, b. Mænusótt (poliomyelitis anterior acuta).
Töflur II, III og IV, 17. a. b.
Sjúkl.(a)3)
— (b)3)
Dánir ...
1957 1958 1959
»» »> »
1960
1
1961
»»
>» >1 » » »»
» »> » » »
18. Rauðir hundar (rubeolae).
Töflur II, III og IV, 18.
1958 1959 1960 1961
448 96 71 120
1) Pneumonia catarrhalis.
*) Pneumonia crouposa.
a: með lömun (paralytica).
b: án lömunar (aparalytica).
1957
Sjúkl................. 73
Dánir ................ n
Stungu sér niður í 15 héruðum.