Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Side 86
1961
— 84
Skýrsla kynsjúkdómalæknis ríkisins.
Sjá skýrslu Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur, bls. 122.
2. Berklaveiki (tuberculosis).
Töflur VIII, IX og XI.
Eftir berklabókum (sjúkl. í árslok):
1957 1958 1959 1960 1961
Tbc. pulm.............. 614 501 402 330 282
Tbc. al. loc........... 109 104 93 88 69
Alls ................... 723 605 495 418 351
Dánir .................. 7 6 8 5 2
Berklatölur eftir mánaðaskrám eru felldar niður og verða ekki birtar
eftirleiðis, og berklaveiki verður felld niður á farsóttaskýrslu. Tölur á
þessum skrám hafa jafnan verið mjög ónákvæmar og raunar algerlega
villandi, eins og sjá má á samanburði á töflum V, VI og VIII undanfarið,
en á töflu VIII (skýrsla D) er framtal á gömlum, nýjum og endur-
skráðum berklasjúklingum eins nákvæmt og unnt er að fá það.
Skýrslur um berklapróf hafa ekki borizt úr eftirtöldum héruðum:
Ólafsvíkur, Flateyjar, Bíldudals, Suðureyrar, Kópaskers, Raufarhafnar,
Nes og Hveragerðis. I yfirliti því, sem hér fer á eftir samkvæmt töflu XI,
er sleppt berklaprófum ársins í Keflavík af sömu ástæðu og undan-
farin ár. Að þeim slepptum taka prófin til 27906 manns. Skiptist sá
hópur þannig eftir aldri og útkomu:
0— 7 ára: 648, þar af jákvæðir 7 eða 1,1%
7—14 —: 20371,-— 461 — 2,3—
14—20 —: 6618,-— 306 — 4,6—
Yfir 20 —: 269,-— 46 — 17,1—
Skýrsla berklayfirlæknis.
Á árinu voru framkvæmdar berklarannsóknir (aðallega röntgenrann-
sóknir) i 27 læknishéruðum. Voru alls rannsakaðir 18243 manns, á 6
heilsuverndarstöðvum 17352, aðallega úr 6 læknishéruðum (berklarann-
sóknir í Hafnarfirði og Kópavogi eru stöðugt framkvæmdar af Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur), en með ferðaröntgentækjum 891 manns, úr
21 læknishéraði. Fjöldi rannsókna er hins vegar nokkru meiri, þar eð
margir koma oftar en einu sinni til rannsóknar. Námu þær alls 21069.
Á árinu var engin heildarrannsókn gerð í héruðum, en farið var um
Austfirði og Norðausturland með ferðaröntgentæki og fólk rannsakað
eftir tilvísun héraðslækna.
Árangur rannsókna heilsuverndarstöðva er greindur sérstaklega (sbr.
bls. 122). Af hinum 891, sem rannsakaðir voru með litlum ferðaröntgen-
tækjum bæði í ýmsum skólum og samkvæmt tilvísun héraðslækna,
j