Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Síða 99
— 97
mi
B. Slysavarnir.
Eftirfarandi greinargerð hefur borizt frá Slysavarnafélagi íslands um
starfsemi þess á árinu:
Upphaflegt hlutverk S.V.F.Í. var fólgið í því að koma á fót skipu-
legri björgunarstarfsemi, þegar slys bar að höndum, og þá fyrst og
fremst við sjávarsíðuna. Hraðvaxandi tækni og síaukin umferð á síð-
ustu áratugum hefur hins vegar haft í för með sér ný vandamál og
nýjar hættur. Félagið hefur því jafnframt farið meira og meira inn
á þá braut að halda uppi fræðslustarfsemi til að reyna að koma í
veg fyrir slys, og einnig hefur farið mjög í vöxt að veita ýmiss konar
aðstoð, er slys hafa orðið á landi, svo og aðstoð við leit að týndu
fólki, bæði á landi og úr lofti. Þá hefur félagið tekið að styrkja sjúkra-
flutninga og lagt fram mikið fé í þeim tilgangi. Það á meiri hluta í
tveimur flugvélum, og hin þriðja hefur notið ríflegs styrks. Einnig
á félagið björgunarskipið Sæbjörgu, hluta í v/s Maríu Júlíu og v/s
Albert, björgunarbátinn Gísla J. Johnsen, sem hefur bækistöð í Reykja-
vík, og marga minni brimróðrarbáta, sem eru staðsettir víðs vegar um
landið.
Deildir Slysavarnafélagsins eru 200 með rúmlega 30 þúsund félög-
um, og 130 björgunarstöðvar eru starfræktar við ströndina kringum
landið. Aðalstöðvarnar eru í Reykjavík, en erindrekar félagsins annast
samband við deildirnar úti á landi, æfa björgunarsveitir, halda nám-
skeið í meðferð gúmbáta og í hjálp i viðlögum. Fræðsluerindi um
slysavarnir eru flutt vikulega í útvarp. Reist hafa verið mörg skip-
brotsmannaskýli og nokkur ferðamannaskýli í óbyggðum. Helztu tekju-
liðir félagsins eru framlög frá félagsdeildum, andvirði seldra minn-
mgarspjalda og merkja, gjafir og áheit, framlög frá ríki og Reykjavíkur-
borg 0g framlög frá ýmsum tryggingarfélögum.
Á árinu var 74 mönnum bjargað frá bráðri hættu úr sjó eða vatni.
Fluttir voru 230 sjúklingar með sjúkraflugvélum.
S,
•I
C. Mannskaðarannsóknir og önnur réttarlæknisstörf.
Engin skýrsla barst frá Rannsóknarstofu Háskólans fyrir þetta ár.
VIII. Skólaeftirlit.
Tafla X, a. og b.
Skýrslur um heilbrigðiseftirlit í skólum bárust úr öllum héruðum
nema Flateyjar, Bíldudals, Vopnafjarðar, Nes, Víkur og Hveragerðis.
Skýrslur um barnaskóla taka til 22845 barna, og gengu 19740 þeirra
13