Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Page 105
103 —
1961
fundi og ræddi við foreldra um heilbrigðiseftirlit í skólum og samvinnu
foreldra og skóla í þeim efnum. Var þar talsverður áhugi á að skipu-
^eggja tannviðgerðir barna í þorpinu, en engin viðunandi lausn hefur
fengizt á því máli enn. Hingað komu tannlæknar tvisvar á árinu og
stóðu hér stutt við. Nutu allmörg skólabörn góðs af því, en þó færri
en skyldi, þar sem þau voru mörg fjarverandi í sumardvöl o. s. frv. Auk
þess vill brenna við, að slíkar skyndiheimsóknir tannlækna koma elcki
að þeim notum, sem skyldi. Vinnuskilyrði eru oft fyrir neðan meðallag
og vinnugæði því miður oft eftir því.
Patreks/J. Framkvæmt með sama hætti og áður. Tekið var í notkun
hér nýtt skólahús, 4530 rúmmetrar að stærð og 664 fermetrar. Húsið
er með vatnsgeislahitun og ljós staðsett eftir tillögum frá Ljóstækni-
félagi íslands. Verið er að ganga frá íþróttasal, sem er áfastur við skóla-
húsið, 162 fermetrar að gólffleti auk baða, búningsherbergja, áhorf-
endasvæðis fyrir 50 manns og handavinnuherbergja fyrir pilta, en þau
eru yfir böðum og búningsklefum. Er íþróttasalurinn hitaður upp með
vatnsgeislahitun, sem jafnframt verkar sem loftræsting. Skólahúsið í
Tálknafirði er mjög lítið og ófullkomið, og er nú verið að byggja nýjan
barnaskóla þar. Á Barðaströnd er farskóli og kennt á 2—3 bæjum, og
þyrfti þetta fyrirkomulag að hverfa alveg úr sögunni, og er ekki sæm-
andi neinu siðuðu þjóðfélagi nú á dögum að búa svo að talsverðum
hluta skólabarna sinna.
Dalvíkur. Eins og undanfarin haust allmörg störfuðu hér um tíma
tannsmiður og tannlæknir. Við hinn síðarnefnda samdi ég um viðgerðir
á skemmdum tönnum allra skólabarna héraðsins. Fyrir mína milligöngu
samþykktu allar skólanefndirnar fjórar að annast greiðslu viðgerðanna,
ýmist að hálfu, að miklu eða að öllu leyti. Vonandi sleppa börnin ekki
við að losna við hinn algenga menningarkvilla: tannskemmdirnar. En
hingað til hefur róðurinn verið þungur í þessum efnum, hér sem annars
staðar, þar sem ég þekki til af eigin reynslu og ýmissa annarra lækna:
margítrekuð fyrirmæli skólalæknis um tannviðgerðir að engu höfð
yfirleitt.
Akureyrar. Héraðslæknir gegndi skólalæknisstörfum við alla skóla
læknishéraðsins nema Húsmæðraskólann á Laugalandi, en þar var Guðm.
Karl Pétursson skólalæknir. Auk almennrar skólaskoðunar að haustinu
hafði héraðslæknir viðtalstíma í barnaskólunum þrisvar í viku, í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar einu sinni í viku og í Menntaskólanum eftir því,
sem þurfa þótti. Þessa tima notaði héraðslæknir til eftirlits með hrein-
læti, svo og til athugunar á þeim nemendum, sem eitthvað þótti athuga-
vert við, og síðast en ekki sízt til viðræðna við skólastjóra, kennara og
hjúkrunarkonur varðandi hreinlæti í skólunum, svo og heilsufar
nemenda.
Grenivíkur. Börn í barnaskólanum hér i Grenivík skoðuð haust og vor,
bau sem í Skógaskóla ganga aðeins á haustin í byrjun skólagöngu.