Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Page 117
— 115 —
1961
Rúmafjöldi handa geðsjúklingum er hins vegar mun minni hér á landi
en í framantöldum löndum. Hér eru aðeins 15,8% allra sjúkrarúma ætluð
slíkum sjúklingum, en í Danmörku um 21%, Noregi 27%, Finnlandi
39%, Englandi og Wales 32% og i Svíþjóð 28%.
Þá er þess að gæta, að dreifing almennra sjúkrarúma um landið er enn
óhagstæð, og verður svo, unz hin nýju sjúkrahús í Reykjavík eru tilbúin.
I Reykjavík töldust á árinu 526 rúm, og mun láta nærri, að utanbæjar-
sjúklingar hafi notað 30% þeirra. Til raunverulegra nota hafa Reykvík-
ingar því haft aðeins um 370 almenn rúm, eða rösklega 5 rúm á 1000
manns, en aðrir landsbúar um 785, eða um 7,4 á 1000 manns (Sólvangur
ekki meðtalinn í þessum og eftirfarandi útreikningum). Hundraðstala
nýtingar á sjúkrarúmum (Rýf 365 x 100)* var 100,7 i Reykjavík, en
90.1 utan Reykjavíkur, og meðallegudagafjöldi á sjúkling (_Þ-)** var
18.2 í Reykjavík, en 25,1 utan hennar. Sést á þessu, að verulegur munur
er á nýtingu sjúkrarúma í Reykjavík og á landsbyggðinni.
Rvík. Unnið var áfram að stækkun Landspítalans, byggingu Borgar-
sjúkrahússins og viðbyggingu Landakotsspítala. í Landalcotsspítala var
opnuð barnadeild með 30 rúmum hinn 12. janúar. Yfirlæknir deild-
arinnar er Björn Guðbrandsson. Fæðingarheimili Guðrúnar Valdimars-
dóttur var lagt niður á árinu.
Akranes. Sjúkrahúsið var eins og áður nær alltaf fullskipað og venju-
lega langt fram yfir það.
Patreksfi. Mikið hefur verið dyttað að sjúkrahúsinu á árinu, enda ekki
vanþörf. Var húsið allt málað að innan, hitalögn lagfærð með miklum
tilkostnaði og fleira, sem með þurfti.
Suðureyrar. Lokasprettur er nú hafinn í þá átt að gera læknisbústað
íbúðarhæfan, og stóð málning yfir um áramót. Enn er alllangt í land,
að sjúkrastofur komist i notkun.
Hólmavíkur. Erfitt reyndist að fá konur til starfa við sjúkraskýlið, og
varð að loka þvi síðasta hálfan mánuð ársins af þeim sökum. Það er
álit margra héraðsbúa, að efla beri sjúkrahúsið og stækka og koma þar
UPP aðstöðu til að meðhöndla fleiri sjúkdóma og framkvæma skurð-
aðgerðir.
Þórshafnar. Sjúkraskýlið er svo úr sér gengið, að naumast er gerlegt
að vista þar sjúkling nema i ýtrustu neyð. Hafin smiði nýs læknisbú-
staðar og sjúkraskýlis. Standa vonir til, að húsið verði tilbúið einhvern
tíma á næsta ári.
Eskifi. Sjúkrahúsamál: Viðunandi lausn á þessu vandamáli fæst ekki,
^ L: legudagafjöldi. R: rúmafjöldi,
S: sjúklingafjöldi á árinu.