Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Side 126
1961
— 124
152 konur höfðu áberandi æðahnúta.
4 — — jákvætt Kahnpróf.
Sú breyting varð á starfsliði deildarinnar, að Pétur Jakobsson yfir-
læknir lét af störfum 1. júlí. Hafði hann verið yfirlæknir deildarinnar,
frá því hún flutti í Heilsuverndarstöðina í desember 1954 og áður, meðan
hún var á vegum Líknar, frá árinu 1949. Yfirlæknir í hans stað var ráð-
inn Guðjón Guðnason læknir, en með honum unnu til skiptis Andrés
Ásmundsson og Jón Hannesson.
Áfengisvarnadeild.
Á deildina komu alls 489 manns, þar af 114 í fyrsta sinn (111 karlar
og 3 konur). Alls kom þetta fólli 9712 sinnum, Læknar deildarinnar
fóru í 32 vitjanir á heimili drykkjusjúklinga og hjúkrunarkonan í 5.
Sálfræðingur deildarinnar tók 25 sjúklinga til rannsóknar og meðferðar.
Hann dvaldist erlendis við framhaldsnám til septemberloka.
Húð- og kgnsjúkdómadeild.
Á deildina komu alls 620 manns, þar af 329 vegna kynsjúkdóma. Tala
rannsókna var 2151, þar af 1573 vegna kynsjúkdóma.
Af þessu fólki reyndist:
17 með sárasótt (8 karlar, 9 konur). Ný tilfelli voru 3 (2 karlar,
annar útlendur, 1 kona).
1 — ulcus venereum (nýtt tilfelli).
166 — lekanda (110 karlar, 56 konur).
6 — flatlús (4 karlar, 2 konur).
Höfuðlús eða klæðalús sást ekki á árinu.
292 með aðra húðsjúkdóma (86 karlar, 98 konur, 108 börn).
145 voru rannsakaðir vegna gruns um kynsjúkdóma, og fengu flestir
meðferð til vara.
Gerðar voru 378 smásjárrannsóknir í sjúkdómsgreiningarskyni.
Gefnar voru 923 penisillin-inndælingar.
Tekin voru 257 blóðpróf.
Geðverndardeild fgrir börn.
Áframhaldandi rannsókn og meðferð frá fyrra ári ........... 31
Fjöldi tilvísana á árinu .................................. 166
Á biðlista voru 31. desember .............................. 24
Deildin hefur því aðstoðað 173 börn á árinu og á eftirfarandi hátt: