Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Page 130
1961
— 128
Fjöldi lyfjabúða. — Veiting lyfsöluleyfa: Engin ný lyfjabúð tók til
starfa á árinu, en veitt voru þrjú lyfsöluleyfi, þar af eitt til stofnunar
nýrrar lyfjabúðar í Reykjavik. Lyfsöluleyí" þessi voru veitt sem hér
segir:
Lyfsöluleyfi til að stofnsetja og reka lytjabúð í Laugarneshverfi í
Reykjavik. Veitt 19. marz 1961 K. D. Christian Zimsen (f. 26. sept. 1910).
Kand. 1937, Kh. — Umsækjendur voru 9.
Lyfjabúðin Iðunn, Reykjavík. Veitt 9. mai 1961 Jóni Þórarinssyni (f.
8. nóv. 1919). Kand. 1946, P. C. P. & S., Filadelfía, Pa. — Umsækjend-
ur voru 8.
Seyðisfjarðar Apótek. Veitt 30. ágúst 1961 Kristjáni Hallgrimssyni (f.
5. marz 1923). Kand. 1950, Kh. — Umsækjendur voru 2.
Fráfarandi lyfsalar ofangreindra lyfjabúða sögðu báðir lyfsöluleyfum
sínum lausum vegna vanheilsu.
Starfslið. Starfslið lyfjabúðanna fyrir utan lyfsala (21), en með for-
stöðumönnum tveggja félagsrekinna lyfjabúða, var sem hér segir. Eru
tölur miðaðar við dag þann, er skoðun var gerð hverju sinni: 27 lyfja-
fræðingar (cand. pharm.), 22 karlar og 5 konur, 19 lyfjafræðingar með
fyrra hluta próf í lyfjafræði (exam. pharm.), 7 karlar og 12 konur, 5
lyfjafræðistúdentar, 4 piltar og 1 stúlka, og annað starfsfólk 186 talsins,
29 karlar og 157 konur, eða samtals 237 karlar og konur.
Húsakynni, búnaður o. fl. Teljandi breytingar voru ekki gerðar á
húsakynnum neinnar lyfjabúðar á árinu, þótt ýmsar lagfæringar hafi
verið gerðar á nokkrum stöðum. Nokkur rýmkun á húsakynnum varð
í einni lyfjabúð, er efnagerðarrekstur, er rekinn hafði verið um margra
ára skeið í sambýli við lyfjabúð þessa, var fluttur í ný húsakynni.
Rúnaður var víða stórlega bættur og þokast óðum að því marki, að
lágmarkskröfum í þessum efnum sé fullnægt. í einni lyfjabúð var bún-
aði og ýmsu öðru þó mjög áfátt, en lyfsali á þessum stað hefur um margra
ára skeið sýnt mjög takmarkaðan skilning á að bæta úr því, er áfátt
hefur verið fundið við rekstur lyfjabúðar þessarar.
Rannsóknir á lyfjum o. fl. Lyfjarannsóknir voru eins og undanfarin
ár ýmist framkvæmdar á staðnum eða þá að sýnishorn voru tekin og
þau rannsökuð síðar, en þá var jafnan skilið eftir í vörzlu lyfsala inn-
siglað sýnishorn, sams konar og' það, er tekið var til rannsóknar.
1. Eðlisþyngdarmælingar. Mæld var eðlisþyngd 326 lausna. Reyndist
eðlisþyngd 33 (10,1%) víkja um skör fram hjá réttu marki (1960: 17
af 244, eða 7,0%).
2. Önnur heimagerð lyf. Virk efni voru ákvörðuð í 16 heimagerðum
lyfjum. Reyndist innihald eins (16,3%) vera utan óátalinna frávika lyfja-
skrár (1960: 20 utan af 71, eða 28,2%).
Þá var gerð þunga- og rúmmálsathugun á tveim kvrnitegundum, og
stóðst önnur tegundin ekki próf lyfjaskrár.