Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Side 131
129 —
1961
3. Gerlarannsóknir. Sæfingarpróf var framkvæmt á einni tegund
heimagerðra augndropa og 12 hreinsuðum, tómum augndropaglösum.
Fannst enginn gerlagróður, hvorki í augndropum né hinum hreinsuðu
glösum.
4. Eftirlit með lyfjum, er fyrnast við geymslu. Ófullnægjandi eftirlit
með lyfjum þessum gaf tilefni til athugasemda í 13 lvfjabúðum (1960:
8). Sérstaklega var ástand i þessum efnum alvarlegt í einni lyfjabúð,
hinni sömu og áður er getið í sambandi við ófullnægjandi búnað.
5. Vogarlóð voru send til löggildingar í þrem lyfjabúðum. í einni
lyfjabúð voru vogarlóð tekin úr umferð, þar eð löggilding þeirra var fjTnd
orðin, en vogarlóð þessi reyndust við athugun of létt, sbr. tilskipun nr.
1 13. marz 1925, um mælitæki og vogaráhöld.
Bækur og færsla þeirra. Meiri vandvirkni verður vart með hverju ári
við færslur fyrirskipaðra bóka, sbr. 6. gr. augl. nr. 197 19. sept. 1950, um
búnað og rekstur lyfjabúða. í einni lyfjabúð, hinni sömu og tvívegis
er sérstaklega að ofan getið, hafa vörukaupaspjaldskrá og vinnustofu-
spjaldskrá verið svo handahófslega færðar, að litið er á upplýsingum
í skrám þessum að byggja. I annarri lyfjabúð hafa færslur fyrirskipaðra
bóka og verið vanræktar um nokkurt skeið, en lyfsali sá, er hér um
ræðir, hefur átt við vanheilsu að stríða uin alllangt skeið.
Notkun ómengaðs og mengaðs vínanda. Samkvæmt upplýsingum
Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins öfluðu lyfjabúðirnar sér neðan-
greindra áfengislyfja á árinu, svo sem hér segir:
Alcohol absolutus 3 kg (1960: 3 kg 1959: 5,350 kg)
Spiritus alcoholisatus ... 2108 — (1960: 1930 — 1959: 2140,250 —)
■— acidi borici ... 239 — (1960: 236 — 1959: 196 —)
— bergamiae ... 342 — (1960: 281 — 1959: 178 —)
— denaturatus ... 7920 — (1960: 9939 — 1959: 9359 —)
—• lavandulae ... 79 — (1960: 94 — 1959: 49 —)
— mentholi ... 901 — (1960: 858 — 1959: 729 —)
Glycerolum 1 + Spiritus alcoholisatus 2 ... 796 — (1960: 767 — 1959: 740 —)
Aether spirituosus ... 539 — (1960: 476 — 1959: 366 —)
camphoratus .... 78 — (1960: 47 — 1959: 56 —)
Tinctura pectoralis .... 1718 — (1960: 1784 — 1959: 1913 —)
M. Sj úkratryggingar.
Fjöldi sjúkrasamlaga á öllu landinu var í árslok 224, en fjöldi sjúkra-
samlagsmeðlima 105440 (Reykjavík 43028).
Akureyrar. Sjúkrasamlög eru nú starfandi á Akureyri og í öllum hrepp-
um læknishéraðsins, og una allir vel við, en ekki er mér kunnugt um,
að í neinum hreppum sé læknisvitjanasjóður starfandi.
17