Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1961, Page 135
— 133
1961
árinu eins og á undanförnum árum, og auk þess hafði meindýraeyðir
bæjarins ávallt fyrirliggjandi rottueitur, sem notað var, ef einhverjir
urðu varir við rottu í eða nálægt híbýlum sínum. Undantekning er, að
rotta sjáist í bænum, en verulegt magn rottu er stöðugt á sorphaugum
bæjarins, og tekst aldrei að útrýma henni alveg þaðan þrátt fyrir eitranir,
íkveikjur o. fl. Veggjalús kom hér upp í örfáum húsum, þar á meðal í
heimavistarhúsi Menntaskólans, og tókst í öllum tilfellum að útrýma
henni, þótt það kostaði að sjálfsögðu ærna fyrirhöfn og nokkurt fé að
hreinsa af þessum óþverra svo stóra og fjölsetna byggingu sem heima-
vistarhús Menntaskólans er. Þá hefur og viljað til, að smájarðvegsmaurar
hafa komizt í íbúðarhús, en einnig þeim hefur auðveldlega tekizt að
útrýma.
Grenivíkur. Húsakynni munu víðast vera orðin vel sæmileg og víða
góð. Síðastliðið haust var gerð allsherjarherferð gegn rottum.
Þórshafnar. Þrifnaði utanhúss enn ábótavant. Húsnæðisskortur mikill
í Þórshöfn. Margar barnafjölskyldur búa í algjörlega ófullnægjandi og
heilsuspillandi húsnæði. Rottu hefur enn ekki orðið vart á Þórshöfn. Hins
vegar er mikið um hana í Þistilfirði.
Norður-Egilsstaða. Þrifnaður mjög misjafn og virðist víða lakari utan
húss en innan. Liggja ónýtir bílgarmar og annað rusl eins og hráviði
sums staðar á bæjum og við útihús. Rottur mjög víða á bæjum, og sums
staðar lítið gert að því að losna við þann ófögnuð.
Seyðisfj. Þrifnaður hefur ekkert aukizt á árinu. Enda þótt heilbrigðis-
nefndin hafi ekki átt neinn þátt í því, tel ég rétt að ræða um vatnsmál
Seyðisfjarðarkaupstaðar hér. Fyrri helming ársins barst bréf frá land-
lækni um það, að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin léti fara fram athugun
á vatni ætluðu til skipa. Ég sendi þá umbeðin sýnishorn, og leiddi rann-
sókn gerlafræðings í Ijós, að vatnið væri ódrykkjarhæft. Ég tók nú annað
sýnishorn á öðrum stað, og reyndist sama. Ég skrifaði nú bæjarstjóra
bréf um rannsóknir þessar. Næst var svo fenginn sérfræðingur fersk-
fiskeftirlitsins til þess að athuga öll vatnsból hér, og tók hann sýnis-
horn, sem leiddu í ljós, að vatnið væri alls staðar óneyzluhæft vegna
saurgerla nema við upptök eins vatnsbólsins. Það vildi svo einkennilega
LI, að sérfræðingur þessi taldi aðeins eitt vatnsból alveg sérlega
varhugavert, og reyndist það vera vatnsból ótengt vatnsveitu bæjarins,
nefnilega vatnsból fyrir hús bæjarfógetans, þar sem búa bæjarfógetinn
og héraðslæknir. Eftir að athugun þessi á vatnsveitu bæjarins hafði
farið fram, lagðist á vetur, og verða verkfræðilegar athuganir að bíða
vorsins.
Eskiff. Þrifnaður og umgengni er upp og niður eins og víðast hvar.
Mættu opinberir aðilar ganga þar á undan fólki til fyrirmyndar.
Djúpavogs. Rottur allágengar á Djúpavogi. Haldið að mestu í skefjum
*neð eitri.
Laugarás. Ástand bygginga er mjög misjafnt. Hjá flestum mun það