Studia Islandica - 01.06.1958, Page 11

Studia Islandica - 01.06.1958, Page 11
9 fólk, jafnvel á tröll og slíkar frumstæðar verur. Trúin á lægri verurnar er ekki ósamrýmanleg rétttrúaðri kristni; hún kemur kristni varla við. En hvað sem því líður, þá verður okkur samt ljóst, er við lesum Islendingasögur og Landnámabók með at- hygli, að guðirnir hafa verið verulegur þáttur í lífi hinna fornu íslendinga; þeir áttu sinn sess í þjóðfélags- skipuninni. Við vitum, að hof hafa verið reist víða um landið, og ekki er að efa, að eitt eða fleiri goð hafa verið dýrkuð í hverju þeirra. En hitt getum við ekki sagt með vissu, hverjir þessir guðir hafa verið. Höfundur Landnániabókar (Hauksbók268. kap.) hefir tekið upp kafla úr Úlfljótslögum, þar sem lýst er ýmsum siðum, sem tíðkuðust í höfuðhofunum, og segir þar m. a.: Baugr, tvíeyringr eða meiri, skyldi liggja í hverju hpfuðhofi ... Hverr sá maðr, er þar þurfti lggskil af hendi at leysa at dómi, skyldi áðr eið vinna at þeim baugi ok nefna sér vátta ... „Nefni ek í þat vætti,“ skyldi hann segja, ,,at ek vinn eið at baugi, logeið. Hjálpi mér svá Freyr ok Njgrðr ok hinn almáttki áss sem ek mun svá sgk þessa sœkja eða verja eða vitni bera eða kviðu eða dóma sem ek veit réttast ok sannast ok helzt at logum.. Þessi fyrirmæli leiða í ljós, að í heiðnum sið hafa þrír guðir verið dýrkaðir á Islandi, ef ekki fleiri, og einnig, að dýrkun þeirra hefir verið staðfest með lög- um. Mönnum var skylt að ákalla vanaguðinn Frey og föður hans Njörð. En auk þeirra þurfti að kalla á hinn nafnlausa, álmáttka eða ,,alsterka“ ás.1 Hver getur hann verið? Sumir goðafræðingar hafa haldið því fram, að hinn almáttki áss sé Þór. Einnig hefi ég nýlega lesið grein eftir íslenzkan fræðimann, sem heldur því fram, að i) Sbr. Jón Jóhannesson, íslendinga saga I, bls. 146.

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.