Studia Islandica - 01.06.1958, Side 13
11
liggja milli hluta.1 Aftur á móti má fá mikla vitneskju
um dýrkun annarra goða af íslenzkum heimildum og
sérstaklega um dýrkun Þórs. Einhver frægasta sögn
um Þórsdýrkun er sú, sem stendur í Landnámu og í
Eyrbyggja sögu um Þórólf Mostrarskegg. Þórólfur var
landnámsmaður og hafði átt heima á eyjunni Mostur
við suðvesturströnd Noregs. Samkvæmt Landnámu var
Þórólfur „blótmaðr mikill ok trúði á Þór; hann fór fyr-
ir ofríki Haralds til lslands.“
Bersýnilegt er af þessari frásögn, að Þórólfur hefir
verið höfðingi og jarðeigandi í suðvestur-Noregi. Hann
hefir dýrkað Þór í heimalandi sínu og flutt með sér
dýrkun hans til íslands, ásamt öndvegissúlum sínum,
þar sem mynd Þórs var skorin.
Hofið, sem Þórólfur reisti á Hofsstöðum, mun hafa
verið helgað Þór, en ekki er skotið loku fyrir það, að
menn hafi dýrkað aðra guði í því hofi jafnframt Þór.
Hinn norski höfðingi, Þórólfur, og íslenzkir afkomendur
hans hafa litið á Þór sem aðalvin sinn og fulltrúa.
Frásögnin um Þórólf hefir margt athyglisvert í sér
fólgið, en ég vil leggja áherzlu á tvennt. Annað er, að
Þórólfur var höfðingi í vestur-Noregi, og hitt, að hann
hefir flúið Noreg fyrir ofríki Haralds.
Fleiri Islendingar og jafnvel Grænlendingar hafa
dýrkað Þór. Svo virðist sem í upphafi Islands byggðar
hafi menn verið mjög frjálslyndir í trúmálum. Menn
hafa haldið, að trúin á Þór væri ekki ósamrýmanleg
kristinni trú. Minna má á frásögnina um Helga hinn
magra, sem „var mjpk blandinn í trúnni; hann trúði
á Krist, en þó hét hann á Þór til sæfara ok harðræða.“
En þegar heiðnin var að líða undir lok, virðist sem ís-
lendingar hafi litið á Þór sem verjanda hins forna siðar.
Þór skoraði hinn hvíta Krist á hólm og braut skip hins
i) Sjá ritgerð Anne Holtsmark, Maal og minne 1933, bls. 111
og áfram.