Studia Islandica - 01.06.1958, Side 21
19
En ef Öðinn er hinn germanski Varuna, hver er þá
hinn germanski Mitra? Mitra merkir, að því er virð-
ist, hina hlið æðsta valdsins. Ef Varuna er konungurinn,
þá er Mitra presturinn. Mitra er guð þessa heims; hann
heldur uppi lögum og rétti. Af ýmsum rökum eru þeir
Dumézil og de Vries sammála um, að Týr sé aðalguð
réttlætis hjá germönskum þjóðum,i þó að Ullur hafi
líka verið dýrkaður sem réttlætisguð hjá sumum þjóð-
flokkum og, ef til vill, hinn skuggalegi Mithothyn, sem
Saxo ræðir um.
Menn eru sammála um, að Týr sé sá guð, sem Róm-
verjar hafa kallað Marz, og stundum var hann kallaður
Mars Thincsus, sem virðist þýða „Týr þingsins". Víst
er, að þessi guð hefir verið dýrkaður víða í Þýzkalandi
á fyrstu öldum eftir Krists burð.
íslenzkar heimildir eru fáorðar um Tý, en skáldin
þekkja hann sem hinn einhenda ás. Eins og Óðinn fórn-
aði auga sínu, hefir Týr fórnað hendi sinni. Snorri seg-
ir mjög flókna sögu um ástæðurnar til þess. Týr hefir
fórnað hendi sinni til þess að bjarga guðunum frá úlf-
inum Fenri. Hann lagði hönd sína að veði í gin dýrs-
ins, og þar með blekkti hann dýrið.
Hliðstæðar sagnir eru kunnar frá ýmsum indó-evr-
ópskum þjóðum. Rómverska hetjan Scævola fórnaði
hendi sinni til að blekkja Etruska, en síðan gerði hann
samning við þá.1 2 En þá sögn, sem líkist mest frásögn
Snorra, er að finna í írskum ritum. Ég á við sögnina
um Nuadu með silfurhöndina. Hægri hönd Nuadu var
höggvin af honum í orustu, og þar af leiðandi gerði
hann samning við fjandmenn sína.3
Vera má, að sumt af því, sem Dumézil fullyrðir, sé
1) Dumézil, Mythes et dieux des Germains, bls. 41 og víðar; de
Vries, Altgermanische Religionsgeschichte <önnur útgáfa) II, sér-
staklega § 347 og áfram.
2) Sbr. Dumézil, Mitra-Varuna bls. 174 og áfram.
3) Sjá H. d’Arbois de Jubainville, The Irish Mythological Cycle,
1903, bls. 86 og áfram.