Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 3

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 3
3 Kæru vinir Líklega grunaði fæsta gestina sem sóttu Stonewall Inn-barinn í Christopher-stræti í New York að kvöldi föstudagsins 27. júní 1969 hve viðburðarík og þýðingarmikil nótt var í vændum. Vissulega hafði Judy Garland verið jarðsungin fyrr um daginn og tilefnið til að drekkja sorgum sínum því ærið en þýðing næturinnar átti heldur betur eftir að verða önnur og meiri. Þessa nótt snéri hinsegin fólk í New York loks vörn í sókn og uppgötvaði um leið samtakamáttinn. Réttindabaráttan var hafin fyrir alvöru og grunnurinn lagður að pride-hátíðahöldum sem í dag þekkjast víða um heim. Í ár minnumst við þess að 50 ár eru liðin frá þessum merkilegu tímamótum sem skipt hafa sköpum fyrir öll þau réttindi og þann sýnileika sem við hinsegin fólk búum við í dag. En ekki nóg með það. Í ár fögnum við einnig 20 ára óslitinni sögu hinsegin hátíðahalda í Reykjavík. Það var nefnilega árið 1999 sem Samtökin ʼ78 stóðu fyrir Hinsegin helgi í Reykjavík – einmitt til að minnast þess að þá voru 30 ár frá uppþotunum í Christopher-stræti. Um 1.500 gestir komu saman á Ingólfstorgi laugardaginn 26. júní og strax í kjölfarið var ákveðið að gera þyrfti slík hátíðahöld að árlegum viðburði hér í borg. Ári síðar, þegar fyrsta gleðigangan var gengin, voru gestirnir tólf þúsund talsins eða eins og Heimir Már Pétursson, einn af stofnendum Hinsegin daga, sagði í viðtali við tímarit Hinsegin daga árið 2017: „Okkar biðu um 12.000 manns. Ekki til að stríða okkur. Ekki til að berja okkur. Ekki til að gera lítið úr okkur, heldur til að ganga með okkur. Þá vissi ég að okkur hefði tekist þetta og tárin streymdu niður kinnarnar.“ Undanfarna tvo áratugi hafa Hinsegin dagar vaxið og dafnað og eru í dag ekki einungis ein fjölsóttasta hátíð landsins heldur einnig líklega alfjölmennasta pride-hátíð í heimi – sé miðað við höfðatölu. Af þessum árangri erum við að sjálfsögðu afar stolt en tökum um leið hlutverk okkar alvarlega og umgöngumst söguna af virðingu – því aðeins með því að vita hvaðan við komum finnum við leiðina þangað sem við ætlum. Og við ætlum áfram. Við ætlum áfram í átt að fullu jafnrétti – lagalegu og samfélagslegu. Við ætlum að berjast áfram gegn öllu mótlæti – líkamsárásunum, mismununinni og öráreiti daglegs lífs. Við munum halda áfram að ræða, fræða og ögra. En við ætlum líka að gleðjast áfram. Þess vegna standa Hinsegin dagar 2019 í tíu daga, með fleiri og fjölbreyttari viðburði á dagskrá en nokkru sinni fyrr. Þannig fögnum við árangri síðustu áratuga og sýnum hvert við ætlum. Áfram. Fyrir hönd stjórnar Hinsegin daga býð ég ykkur öll hjartanlega velkomin á hátíð ársins og vona að þið njótið sem allra best. Saman munum við mála Reykjavík í öllum litum regnbogans sem aldrei fyrr. Gleðilega hátíð! Gunnlaugur Bragi, formaður Hinsegin daga Stjórn Hinsegin daga 2019 / The board of Reykjavik Pride 2019: Gunnlaugur Bragi Björnsson – formaður / president Karen Ósk Magnúsdóttir – gjaldkeri / treasurer Ragnar Veigar Guðmundsson – ritari / secretary Ásgeir Helgi Magnússon – meðstjórnandi / board member Helga Haraldsdóttir – meðstjórnandi / board member Lilja Ósk Magnúsdóttir – meðstjórnandi / board member Ragnhildur Sverrisdóttir – meðstjórnandi / board member Dear friends Probably few of those present at the New York’s Stonewall Inn on the evening of June 27, 1969 suspected what a fateful and meaningful night was in store. Judy Garland had just been buried and the evening was an occasion for her fans to drown their sorrows – but this night was to become something more. This night, queer people finally turned defense into offense and on the way discovered the power of unity. The battle for rights was begun in earnest, and the foundations laid for the Pride celebration we know worldwide today. This year we remember that half a century has passed since a watershed moment which has been crucial for all the rights and visibility we queer folk enjoy today. But that's not all! This year we embrace the 20th year in a row of Reykjavík Pride. In 1999, the organization Samtökin ’78 organized “Queer Weekend in Reykjavík” specifically to commemorate the thirtieth anniversary of the Christopher Street uprising. About fifteen hundred guests came together in Ingólfstorg on Saturday, 26 June, and it was promptly decided to hold a similar celebration here in the city every year. A year later, when the first Pride parade was underway, twelve thousand people attended. In a 2017 interview, Heimir Már Pétursson, one of Reykjavik Pride’s founders, said, “We got twelve thousand people. Not to fight us. Not to make fun of us. Not to belittle us, but to walk with us. That’s when I knew that we’d succeeded at this and tears ran down my face.” Over the last two decades Pride has grown and thrived and today is not just one of the country’s most-attended festivals but probably the most-attended Pride event in the world – relative to the population. We’re obviously very proud of this success, but we take our role seriously and treat the history with respect – because only by knowing where we came from can we know where we are going. And we’re going forward. We will forge ahead toward full equality – legally and socially. We will combat all adversity – assault, discrimination, and the microagressions of daily life. We will continue to discuss, study, and challenge. And we’ll celebrate too. So for these reasons Reykjavík Pride 2019 will last for ten days, with more, and more varied, events than ever before. We will celebrate the achievements of the past decades and show where we are going. Onward. On behalf of the directors of Reykjavík Pride I wish you a hearty welcome to the festival of the year and hope that you enjoy it to the fullest. Together, we’ll paint Reykavík in all the colors of the rainbow like never before. Happy Pride! Gunnlaugur Bragi, President of Reykjavík Pride
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.