Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 38

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 38
38 Ekkert eðlilegra Á æskuheimili Gunnu, eins og hún er kölluð af flestum, var samkynhneigð sjálfsagður og eðlilegur þáttur í mannlífinu. Það var hommi í fjölskyldu hennar, frændi sem henni þótti dásamlega skrýtinn og hún elskaði. Hann gekk um með tösku og var alla tíð svolítið öðruvísi en aðrir. Það var einnig talað um lesbíur; það var eðlilegt og gerði ekkert til. Mamma Gunnu sagði stundum þessi væri svoleiðis og það væri allt í lagi með það. Gunnu finnst mikill gróði að hafa verið alin upp við gríðarlega víðsýni og þegar hún komst til vits og ára skildi hún að þetta var veröld sem átti jafn mikinn rétt á sér og hennar eigin. „Ástin spyr ekki hvers kyns þú ert. Fólk verður ástfangið og á að fá að vera það sjálft. Það á skilið að fá að vera í friði og það sé borin virðing fyrir því,“ segir hún og bætir við að hún hafi ákveðið að reyna að skilja fólk, hlusta á það og taka slaginn en fljótlega séð að það yrði erfitt. Þekkingin heim Gunna lærði félagsráðgjöf í Danmörku og þar bjó hún í kommúnu með Gísla manninum sínum, vinkonu sinni Ingibjörgu Sólrúnu og ýmsum öðrum. Hún kynntist mörgu hinsegin fólki í Danmörku og er sannfærð um að það hafi mótað viðhorf hennar til þessa hóps þar sem hún hafi tekið þar allt inn eins og svampur. Vinkonurnar, sem áttu seinna báðar eftir að verða áberandi í íslenskri pólitík, tóku heim með sér þekkingu og reynslu sem þær áttu auðvelt með að heimfæra á íslenskar aðstæður og voru ekki feimnar við að tala um það. Þær áttu báðar eftir að hafa mikil áhrif á réttindabaráttu hinsegin fólks og töluðu síðar hvor fyrir sínu frumvarpinu; öðru um staðfesta samvist og hinu um hjónaband samkynja para. Konurnar í hreyfingunni Það byrjaði allt þegar Gunna var ung kona í Rauðsokkahreyfingunni en rauðsokkurnar vildu að lesbíur ættu sitt pláss og athvarf innan hreyfingarinnar. Þegar þær fóru á kvennafundi erlendis hittu þær tugþúsundir lesbía og smátt og smátt opnaðist hugur þeirra og hjarta fyrir hinsegin konum. Á sama tíma voru þó ekki margar konur á Íslandi opinberlega lesbíur. Gunna hlær og rifjar upp þegar hringt var og spurt eftir lesbíum í Rauðsokkahreyfingunni. Þá var því svarað að því miður væri hún erlendis þar sem þá var einungis vitað um eina. Kvennalistinn var stofnaður á grunni Rauðsokkahreyfingarinnar. Stefna hans var að gera konur sýnilegri í samfélaginu, stofna kvennaframboð og setja velferð barna í forgrunn. Kvennalistinn var einnig ein af fyrstu pólitísku hreyfingunum sem studdi mannréttindabaráttu samkynhneigðra, meðal annars var sérstakur kafli í stefnuskránni um réttindi þeirra. Gunna vill þó sérstaklega minnast Kristínar Kvaran frá Sjálfstæðisflokknum sem setti fyrst fram tillögu um afnám misréttis gegn samkynhneigðu fólki. „Það er mikilvægt að muna að þetta er mál sem gengur þvert á flokka og enginn einn á heiðurinn af því að lyfta þessu hlassi,“ segir Gunna. Það voru þó ekki allir sammála um að baráttumál hinsegin kvenna ættu heima í hreyfingu Kvennalistans og sumir óttuðust að málefni þeirra yrðu of fyrirferðarmikil. Staðfest samvist Gunna er þekktust innan hinsegin samfélagsins sem talskona staðfestrar samvistar en það var ekki auðvelt að koma slíku máli í gegn og margir þyrnar voru á leiðinni. Árið 2003 bað hún um að gerð yrði skýrsla um sambúðarform fólks og í henni var réttindaleysi samkynhneigðra para í sambúð staðfest. Þau nutu engra réttinda í samanburði við gagnkynhneigð pör. Skýrslan var vel unnin og ítarleg og er enn þann dag í dag notuð þegar nánari skýringa á lögunum er þörf. Að sögn Gunnu var skýrslan notuð sem vopn eða tæki þegar búin var til nefnd sem átti að fara yfir málin. Sú nefnd var farsællega skipuð og meðal annars áttu Samtökin ʼ78 þar sinn fulltrúa, Þorvald Kristinsson. Vinna hópsins skilaði miklu efni sem lögfræðingar forsætisráðuneytis Davíðs Oddsonar unnu með þegar frumvarp um málið var samið. „Þannig var svo hægt að mynda grunn til að búa til frumvarp til að rétta hlut samkynhneigðra. Þetta er eitt af þeim málum sem lýtur ekki pólitískum lögmálum; hvorki hægri né vinstri. Mál hjartans. Mál sem má ekki flýta um of og verður að vinna sig inn í sátt. Stærra en einhver einn því það varðar líf svo margra,“ segir Gunna. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, var mjög mótfallinn frumvarpinu sem gerði því erfitt fyrir. Í janúar 2006 lét hann hafa eftir sér í sjónvarpsviðtali: „Hjónabandið á það inni hjá þjóðinni að því sé ekki kastað á sorphaugana.“ Ekki var hægt að túlka ummælin á annan hátt en að hjónabönd hinsegin fólks gerðu hjónabönd gagnkynhneigðra merkingarlaus. Úr hátíðarræðunni 27. júní 2006 Í dag eru tímamót. Tímamót þess að allir skulu jafnir fyrir lögum, hvern svo sem þeir kjósa að elska. Hommar og lesbíur fagna, þjóðin fagnar og unnendur mannréttinda og réttlætis fagna. … Umburðarlyndi og víðsýni er undirstaða allrar mennsku og menningar hjá einni þjóð. Mikil vinna er framundan þó svo að lagaleg staða sé nú í höfn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.