Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Síða 38
38
Ekkert eðlilegra
Á æskuheimili Gunnu, eins og hún er
kölluð af flestum, var samkynhneigð
sjálfsagður og eðlilegur þáttur í
mannlífinu. Það var hommi í fjölskyldu
hennar, frændi sem henni þótti
dásamlega skrýtinn og hún elskaði. Hann
gekk um með tösku og var alla tíð svolítið
öðruvísi en aðrir. Það var einnig talað um
lesbíur; það var eðlilegt og gerði ekkert
til. Mamma Gunnu sagði stundum þessi
væri svoleiðis og það væri allt í lagi með
það. Gunnu finnst mikill gróði að hafa
verið alin upp við gríðarlega víðsýni og
þegar hún komst til vits og ára skildi
hún að þetta var veröld sem átti jafn
mikinn rétt á sér og hennar eigin. „Ástin
spyr ekki hvers kyns þú ert. Fólk verður
ástfangið og á að fá að vera það sjálft.
Það á skilið að fá að vera í friði og það
sé borin virðing fyrir því,“ segir hún og
bætir við að hún hafi ákveðið að reyna að
skilja fólk, hlusta á það og taka slaginn en
fljótlega séð að það yrði erfitt.
Þekkingin heim
Gunna lærði félagsráðgjöf í Danmörku
og þar bjó hún í kommúnu með Gísla
manninum sínum, vinkonu sinni
Ingibjörgu Sólrúnu og ýmsum öðrum.
Hún kynntist mörgu hinsegin fólki í
Danmörku og er sannfærð um að það
hafi mótað viðhorf hennar til þessa hóps
þar sem hún hafi tekið þar allt inn eins og
svampur. Vinkonurnar, sem áttu seinna
báðar eftir að verða áberandi í íslenskri
pólitík, tóku heim með sér þekkingu
og reynslu sem þær áttu auðvelt með
að heimfæra á íslenskar aðstæður og
voru ekki feimnar við að tala um það.
Þær áttu báðar eftir að hafa mikil áhrif
á réttindabaráttu hinsegin fólks og
töluðu síðar hvor fyrir sínu frumvarpinu;
öðru um staðfesta samvist og hinu um
hjónaband samkynja para.
Konurnar í hreyfingunni
Það byrjaði allt þegar Gunna var ung
kona í Rauðsokkahreyfingunni en
rauðsokkurnar vildu að lesbíur ættu sitt
pláss og athvarf innan hreyfingarinnar.
Þegar þær fóru á kvennafundi erlendis
hittu þær tugþúsundir lesbía og smátt
og smátt opnaðist hugur þeirra og
hjarta fyrir hinsegin konum. Á sama
tíma voru þó ekki margar konur á Íslandi
opinberlega lesbíur. Gunna hlær og
rifjar upp þegar hringt var og spurt eftir
lesbíum í Rauðsokkahreyfingunni. Þá var
því svarað að því miður væri hún erlendis
þar sem þá var einungis vitað um eina.
Kvennalistinn var stofnaður á grunni
Rauðsokkahreyfingarinnar. Stefna hans
var að gera konur sýnilegri í samfélaginu,
stofna kvennaframboð og setja velferð
barna í forgrunn. Kvennalistinn var einnig
ein af fyrstu pólitísku hreyfingunum
sem studdi mannréttindabaráttu
samkynhneigðra, meðal annars var
sérstakur kafli í stefnuskránni um réttindi
þeirra. Gunna vill þó sérstaklega minnast
Kristínar Kvaran frá Sjálfstæðisflokknum
sem setti fyrst fram tillögu um afnám
misréttis gegn samkynhneigðu fólki.
„Það er mikilvægt að muna að þetta er
mál sem gengur þvert á flokka og enginn
einn á heiðurinn af því að lyfta þessu
hlassi,“ segir Gunna.
Það voru þó ekki allir sammála um
að baráttumál hinsegin kvenna ættu
heima í hreyfingu Kvennalistans og
sumir óttuðust að málefni þeirra yrðu of
fyrirferðarmikil.
Staðfest samvist
Gunna er þekktust innan hinsegin
samfélagsins sem talskona staðfestrar
samvistar en það var ekki auðvelt að
koma slíku máli í gegn og margir þyrnar
voru á leiðinni. Árið 2003 bað hún um
að gerð yrði skýrsla um sambúðarform
fólks og í henni var réttindaleysi
samkynhneigðra para í sambúð staðfest.
Þau nutu engra réttinda í samanburði
við gagnkynhneigð pör. Skýrslan var
vel unnin og ítarleg og er enn þann
dag í dag notuð þegar nánari skýringa
á lögunum er þörf. Að sögn Gunnu var
skýrslan notuð sem vopn eða tæki þegar
búin var til nefnd sem átti að fara yfir
málin. Sú nefnd var farsællega skipuð og
meðal annars áttu Samtökin ʼ78 þar sinn
fulltrúa, Þorvald Kristinsson.
Vinna hópsins skilaði miklu efni sem
lögfræðingar forsætisráðuneytis Davíðs
Oddsonar unnu með þegar frumvarp um
málið var samið. „Þannig var svo hægt að
mynda grunn til að búa til frumvarp til að
rétta hlut samkynhneigðra. Þetta er eitt
af þeim málum sem lýtur ekki pólitískum
lögmálum; hvorki hægri né vinstri. Mál
hjartans. Mál sem má ekki flýta um of
og verður að vinna sig inn í sátt. Stærra
en einhver einn því það varðar líf svo
margra,“ segir Gunna.
Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, var
mjög mótfallinn frumvarpinu sem gerði
því erfitt fyrir. Í janúar 2006 lét hann hafa
eftir sér í sjónvarpsviðtali: „Hjónabandið á
það inni hjá þjóðinni að því sé ekki kastað
á sorphaugana.“ Ekki var hægt að túlka
ummælin á annan hátt en að hjónabönd
hinsegin fólks gerðu hjónabönd
gagnkynhneigðra merkingarlaus.
Úr hátíðarræðunni 27. júní 2006
Í dag eru tímamót. Tímamót þess
að allir skulu jafnir fyrir lögum,
hvern svo sem þeir kjósa að elska.
Hommar og lesbíur fagna, þjóðin
fagnar og unnendur mannréttinda
og réttlætis fagna.
… Umburðarlyndi og víðsýni er
undirstaða allrar mennsku og
menningar hjá einni þjóð. Mikil
vinna er framundan þó svo að
lagaleg staða sé nú í höfn.