Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 10
10
„Vissulega gerðist eitthvað sérstakt
þessa nótt“
Átökin við Stonewall voru ekki fyrstu
mótmæli hinsegin fólks í Bandaríkjunum,
fjarri því. Ýmis samtök höfðu áður sett
upp mótmælafundi, gengið kröfugöngur
og gert ýmislegt til að reyna að þoka
málum í réttindaátt. Allt undirbjó það
jarðveginn. Árið 1969 var loks komið
að uppskerunni. Ungt fólk var almennt
í uppreisn gegn stöðnuðu samfélagi,
mótmæli gegn stríðinu í Víetnam voru
Baráttudrottningarnar Silvia Rivera og
Marsha P. Johnson, fyrsta og önnur frá
vinstri, á mótmælafundi nokkrum árum eftir
Stonewall. Þær voru í fararbroddi aktívista og
stofnuðu STAR-samtökin árið 1970, róttækan
hóp sem veitti hinsegin unglingum og
kynlífsstarfsmönnum húsaskjól.
sæti fyrir svarta aftast í strætisvagninum
í Montgomery í Alabama árið 1955. Sá
atburður markaði vatnaskil í baráttu
svartra. Og Stonewall var sambærileg
tímamót í sögu hinsegin fólks. Lesbíska
baráttukonan Joan Nestle orðaði það
svo fyrir aldarfjórðungi: „Ég lít sannarlega
ekki svo á að saga homma og lesbía hafi
byrjað við Stonewall ... ég lít ekki svo
á að andófið hafi byrjað þar. Það sem
blasir við mér er söguleg samþætting
ólíkra afla. Sjöundi áratugurinn breytti
því hvað fólk var tilbúið til að þola í þessu
samfélagi og hvað fólk neitaði að láta
lengur yfir sig ganga ... Vissulega gerðist
eitthvað sérstakt þessa nótt árið 1969 og
við höfum ýtt undir þá tilfinningu vegna
þess að við höfum þörf fyrir að finna
upphafspunkt, eins og ég kalla það ... en
þetta er flóknara en svo að hægt sé að
fullyrða að allt hafi byrjað við Stonewall.“
Réttur tími í sögunni, nýir vindar blésu,
aukin vitund um mannréttindi. Hvernig
sem þessir þættir fléttuðust saman
var ljóst að ekki varð aftur snúið. Áhrif
átakanna við Stonewall voru ótrúlega
mikil á ótrúlega stuttum tíma. Ýmis
samtök aktívista spruttu upp á næstu
vikum og mánuðum í Bandaríkjunum,
miklu herskárri og meira áberandi en
nokkur dæmi voru um áður. Byltingin var
hafin og hún varð ekki stöðvuð.
daglegt brauð, konur börðust af hörku
fyrir jafnrétti og réttindabarátta svartra
var í algleymingi. Einn sagnfræðingur
líkti atburðunum við Stonewall við það
þegar Rosa Parks neitaði að færa sig í
Athugasemd: Orðaval í þessari grein
miðast við það orðfæri sem tíðkaðist á
þeim tíma sem atburðirnir gerðust, bæði
innan og utan hópa hinsegin fólks. Þá var
„homosexual“ regnhlífarhugtak yfir marga
hópa, sem án efa myndu sumir fylkjast
undir annan fána í dag. Sama á við um
„drag queens“ eða „transvestites“ þeirra
tíma, eflaust voru í þeirra hópi margir sem
á okkar tíma myndu skilgreina sig trans. Á
sjöunda áratugnum var hinsegin fólki ekki
lýst, og það lýsti sér ekki, sem sís, dulkynja,
eigerva, flæðigerva o.s.frv.
Á síðustu árum hafa verið birt ýmis
skjöl úr fórum lögreglunnar í New
York, sem varpa ljósi á atburðina við
Stonewall. Sakleysisleg lögregluskýrsla
greinir frá komu óánægðs bíleiganda
á lögreglustöð um nóttina. Hann hafði
lagt Volkswagen-bílnum sínum við
Christopher-stræti, andspænis Stonewall-
barnum, en einhver óþjóðalýður hafði
stokkið upp á bílinn og beyglað bæði þak
og vélarhlíf.