Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 32

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 32
32 Þórir Björnsson 28. APRÍL 1926 - 27. APRÍL 2019 Þórir Björnsson vinur minn lést 27. apríl síðastliðinn. Við kynntumst árið 1984 í London þar sem hann bjó hjá vinum sínum. Hann bauð mér í teboð með þeim. Þórir klæddist leðri og fór á klúbba. Vinir hans voru heldri herramenn í London, þar á meðal þjónar drottningarmóðurinnar en drottningin sjálf fæddist nokkrum dögum á undan honum. Þórir vinur minn ólst upp á Framnesveginum og átti sitt athvarf þar alla ævi. Hann varði mörgum árum í London og einhverjum í Kanada. Hann var í ástandinu á stríðsárunum. Braggabúðirnar voru fyrir neðan Framnesveginn og dátarnir gáfu mömmu hans súkkulaði en honum kossa. Í framhaldinu hófst líf hans í útlöndum. Hann átti engin systkini og ekki börn, var aldrei í sambúð og alltaf einstæðingur en þó aldrei einn. Hann var alltaf svo ungur í anda og hress. Hann var með strákahóp í kringum sig, stráka sem voru ungir og sætir fyrir nokkrum áratugum en eru nú komnir af léttasta skeiði ef ekki látnir. Það var mikill lífskraftur í honum. Hann var gestrisinn, mikið partýljón og aldrei var lognmolla hjá honum. Hann bauð upp á drykk sem við strákarnir kölluðum Arsenik, því hann var svo varhugaverður. Arsenik- kokteillinn samanstendur af 80% gini og 20% sætu Vermont. Þessu sturtaði Björnsson-familían í sig, sem vorum við strákahópurinn. Margir okkar byltust niður stigann á Framnesveginum. Alltaf hringdi Þórir daginn eftir og sagðist ekki hafa séð eins mikið áfengi fara í einu partýi og þetta versnaði með árunum, fannst honum. Alltaf bauð hann liðinu aftur og var virkur félagslega og áhugasamur um tilveruna. Líf Þóris er stórmerkileg saga. Það er dýrmætt að hafa kynnst honum og heyra hann segja frá lífinu á stríðsárunum. Þórir var 33 árum eldri en ég og á þeim aldri sem ég er á í dag þegar við kynnumst. Hann var svo áhugaverður og talaði um hernámsárin eins og ég tala um alnæmistímann. Ár sem eru svo langt í burtu en þó svo nálægt í fólki eins og honum. Hann var tryggur vinur og gaf góð ráð. „Kurteisi kostar ekki peninga“, sagði hann við strákana á veitingastaðnum 22 þegar allt ætlaði um koll að keyra í baráttu- og áfallastreitu níunda og tíunda áratugarins. Hann kom að stofnun Samtakanna ’78 og HIV Ísland. Hann sá á eftir mörgum félögum í gegnum tíðina. Það var styrkur í Þóri og í huga mínum er einkunnarorð hans þrautseigja. Aldrei kvartaði hann yfir hlutskipti sínu eða lagði árar í bát. Hann barðist fyrir lífi sínu fram á síðustu stundu og dó degi fyrir 93ja ára afmælið sitt. Þessi lágvaxni, þrjóski herramaður var óhræddur við að segja meiningu sína umbúðalaust. Hann var skarpgreindur, notaði Facebook og tölvur og tileinkaði sér nýjungar. Hann fylgdist vel með. Þórir fékk sér nightcap eins og drottningarmóðirin fram yfir áttrætt. Þá fékk hann sykursýki og hætti. Þórir hafði áhrif á mig. Hann var heimilisvinur heima hjá okkur Stig, manni mínum. Ég dáðist að honum á margan hátt. Hann hélt reisn sinni og dampi allt fram á síðasta dag. Ég mun sakna þessa litríka vinar míns og minnast um ókomin ár. Einar Þór Jónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.