Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 41

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2019, Blaðsíða 41
41 „Staðurinn 22 er gamli Kiki. Það var kaffihús á neðstu hæðinni, þar sem Bravo er núna, dansað á miðhæðinni og dansað efst uppi. Það er eitthvað við þetta horn, númer 22 þar sem Kiki er núna. Það hafa oft verið gay staðir þarna, svo hætta þeir og svo koma þeir aftur. Það er einhver ára á þessu horni, senan hefur flust til en ætíð ratar hún heim aftur, á hornið góða. Hommarnir hafa aldrei þolað staðina á meðan þeir eru starfandi en svo sjá þeir þá alltafí rósrauðum bjarma þegar þeir eru hættir. Fjarlægðin gerir fjöllin blá,“ segir Guðjón og brosir. „Í bókinni skrifa ég um hinsegin samfélagið og þá sérstaklega hommasamfélagið, hvernig skemmtanalífið var og hræðsluna við það að koma út úr skápnum á alnæmisárunum. Tímarnir hafa sem betur fer breyst mikið. En hinsegin bókmenntir verða að vera sýnilegar í samfélaginu og í umræðunni. Ég bý í 101, kenni við MR og kenndi áður í Austurbæjarskóla en síðustu sumrum hef ég að mestu varið í Berlín þar sem ég hef fengist við þýðingar og skriftir. Ég bý ásamt 19 ára syni mínum og það var um svipað leyti og hann fæddist sem ég kom út úr skápnum. Þannig að ég er hinsegin faðir í 101 Reykjavík,“ segir Guðjón. „Helför hommanna lauk ekki eftir stríð“ Guðjón gaf ekki bara út Hina hliðina á síðasta ári heldur þýddi hann einnig bók eftir Ralf Dose um Magnus Hirschfeld. Hirschfeld var þýskur læknir og baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks. Í upphafi tuttugustu aldarinnar starfrækti hann framsækna rannsóknarstofnun á málefnum hinsegin fólks í Berlín. Bókin gerir grein fyrir ævi hans og störfum hinsegin hreyfingarinnar í árdaga hennar, bæði austan hafs og vestan. „Ég gaf út ævisögu Magnusar Hirschfeld, því að ég bý alltaf í Berlín á sumrin. Hirschfeld rak stofnun í Berlín. Ég vildi segja frá þessari veröld sem var á Weimar- tímanum. Mennirnir með bleika þríhyrninginn greinir frá því sem kom á eftir seinni heimstyrjöldinni en mig langaði til þess að segja frá því sem kom á undan henni. Hirschfeld var að gera rannsóknir á hommum og lesbíum, veitti ráðgjöf og gerði mjög mikið af flottum hlutum á þessum tíma en það fyrsta sem nasistarnir lokuðu var þessi stofnun hans. Margt af því sem er verið að ræða í dag er það sem Hirschfeld var að tala um á sínum tíma og þess vegna ákvað ég að segja þessa sögu og kynna þetta aðeins fyrir fólki. Ég fór í kaffi á Hirschfeld- stofnunina, talaði við Ralf Dose og hann gaf mér leyfi til þess að þýða bókina yfir á íslensku. Ég hófst síðan handa og fékk styrk til þess að gera þetta. Helför hommanna lauk ekki eftir stríð. Markmið mitt, af því að ég er framhaldsskólakennari, er að búa til efni með þessum þýðingum fyrir nemendur svo þeir geti lesið um hinsegin líf og hinsegin baráttu. Draumur okkar nokkurra sem í framhaldsskólunum störfum er að vera með áfanga um það efni sem yrði kenndur við nokkra skóla, fyrir unga nemendur og sérstaklega hinsegin fólk. Nemendur í öllum skólum gætu þó líka sótt hann, þetta yrði kennt í fjarnámi og með staðbundnum lotum þannig að þetta yrði menningarlegur klúbbur framhaldsskólanema þar sem fólk gæti hist og lært sitthvað um menningu og sögu hinsegin fólks. Það þarf að auka sýnileika hinsegin fólks innan skólakerfisins. Við ætlum að kynna þetta á ráðstefnu um framhaldsskólann nú í haust. Við erum að vinna að þessu nokkrir kennarar í nokkrum skólum. Við myndum reyna að vinna þetta í samstarfi við Samtökin ‘78 og Háskóla Íslands þannig að þetta getur líka orðið vettvangur fyrir fólk til að kynnast. Sumir vilja ekkert vera í skemmtanalífinu. Sumir vilja bara vera að gera eitthvað annað,“ segir Guðjón. Guðjón segir ekki margt fram undan á þessu sviði þegar hann er spurður út í verkefni framtíðarinnar. „Ég held að ég muni ekki skrifa mikið meira á þessum vettvangi. Ég er orðinn svona frekar þurrausinn. Mér finnst að unga fólkið eigi að skrifa og segja frá. Það er svolítið gaman að sjá að þessir þekktu rithöfundar eins og Sjón og Auður Ava eru farin að fjalla um okkur, þannig að við erum orðin viðfangsefni í bókmenntum á miklu víðtækari hátt heldur en áður. Það vantar svolítið efni á íslensku, finnst mér,“ segir Guðjón og bendir á að styrkir fyrir bókmenntir af þessu tagi þyrftu að vera betri. Guðjón gaf okkur góðfúslegt leyfi til að birta eina sögu úr bókinni hans. Milli eftirvæntingar og örvæntingar Mörgum drengjannna þótti gaman að dansa og vissu að þeir voru ýmsum augnayndi á gólfinu. Þeir kunnu best við sig við súlu nokkra fyrir miðjum sal, burðarstoð sem varð eftir þegar skilveggur var rifinn. Þaðan sást vel til allra á staðnum og allir sáu þá auðvitað hver stóð við súluna. Þess vegna var hún kölluð örvæntingarsúlan. Flestum drengjanna fannst það þó ekki koma sér við á nokkurn hátt. Þeir vissu að þeir þurftu ekki að örvænta. Öllu heldur var þetta rétti staðurinn fyrir þá því að þarna fékk fegurð þeirra að njóta sín. Þeir álitu sig bera af öðrum mönnum og töldu sig þá Lilju sem allir vildu kveðið hafa. Þeir sem ekki áttu jafn mikla sénsa sveimuðu um staðinn og héldu sig frekar í skuggsælum skotum þar sem þeir voru ekki eins áberandi. Þeir biðu oft við hina súluna á dansgólfinu sem gekk undir nafninu eftirvæntingarsúlan. Frá súlunum höfðu menn góða yfirsýn yfir staðinn þar sem þetta lifandi leikhús bærðist á milli eftirvæntingar og örvæntingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.