Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Side 34
34
Hinsegin
listafólk
Allri list ber að fagna og
fjölbreytt flóra af íslensku
hinsegin listafólki prýðir
menningu okkar alla
daga. Dr. Ynda Gestsson
listfræðingur hefur stýrt
sýningum í Galleríi ʼ78,
sem sýnir list eftir hinsegin
listafólk, frá árinu 2015.
Undanfarið hefur hún, ásamt
samstarfsfólki sínu, einnig
unnið að nýrri hinsegin
listasýningu sem opnaði
31. maí síðastliðinn. Hún
ber heiti „Út fyrir sviga:
Myndlist og Samtökin ʼ78“
og er opin fram yfir Hinsegin
daga, eða til 18. ágúst, á
jarðhæð í Grófarhúsinu við
Tryggvagötu 15.
Sýningin er unnin í samvinnu
við Borgarskjalasafn
Reykjavíkur en Samtökin
ʼ78 og Borgarbókasafn
Reykjavíkur komu einnig
að undirbúningnum. Sýnd
eru verk frá tíu íslenskum
listamönnum en öll eiga þau
það sameiginlegt að vera
hinsegin. Einnig eru verk
frá tveimur Norðmönnum
til sýningar. Verkin eru öll
einstök, fjölbreytt og dýrmæt
á sinn hátt og tjá kúgun,
sársauka, gleði, stolt og frelsi.
Við hvetjum ykkur til að
skoða sýninguna og kynna
ykkur sögu hinsegin listafólks
á Íslandi.
Á sýningunni eru sýnd verk
eftir Böðvar Björnsson,
Valgarð Gunnarsson, Valtý
Þórðarsson, Körlu Dögg
Karlsdóttur, Örn Karlsson,
Unni Bragadóttur, Reynir
Katrínarson, Sólrúnu
Jónsdóttur og Önnu Sigríði
Sigurjónsdóttur. Einnig eru
verk Kjetil Berge og Göran
Ohldieck til sýningar, en þeir
ætluðu að opna sýningu
í Norræna húsinu árið
1983, en rétt fyir opnunina
hættu stjórnendur hússins
við þegar í ljós kom að
þemað í myndunum var
samkynhneigð.
„Sýningin er í heild
sinni létt-erótísk með
hómósexúal áherslum“
HEIMILD
Kjetil Berge og Göran
Ohldieck Grímur
Karen Margrét Bjarnadóttir skrifar