Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2019, Page 69

Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2019, Page 69
69 sem kallast „fan favorite“ og fæ reglulega boð um að syngja hist og her um allan heim,“ segir hún og bendir á að keppnin hafi einnig skapað henni tækifæri utan Evrópu. „Í kjölfar Eurovision fékk ég tækifæri til að fara til Síle þar sem ég tók þátt í risastórri suður-amerískri söngvakeppni. Þá keppni sigraði ég sem var mjög súrrealísk upplifun.“ Hera segir að í þessum efnum sé mikilvægt að hafa opinn huga og stíga ölduna. „Eitt leiðir einfaldlega af öðru. Maður verður bara að passa sig á að þykjast ekki vita betur. Um leið og maður telur sig vita æðislega mikið, þá fyrst veit maður ekkert.“ Sárnaði umfjöllun fjölmiðla Fyrir hinn almenna áhorfanda virðist allt ganga smurt í keppni eins og Eurovision en Hera segir raunveruleikann allt annan. „Þetta er aldrei smurt. Á bak við tjöldin er allt dramað og vesenið á sínum stað en þetta verður auðvitað að líta út fyrir að vera fullkomið því annars færu allir á taugum,“ segir hún og bendir á að frammistaðan á stóra sviðinu skipti máli fyrir fleiri en bara sjálfan flytjandann. „Það er ekki bara ég sem stend þarna á sviðinu heldur líka öll fjölskyldan og allir vinir mínir. Ef eitthvað myndi sjást á mér, að ég sé að bogna eða fríka út, þá fær öll fjölskyldan að heyra það í Bónus daginn eftir. Maður þarf bara að halda andlitinu,“ segir Hera hugsi. „Í rauninni þarf stáltaugar til þess að taka þátt í þessu. Við höfum alveg séð fólk koma illa út úr þessu, flotta einstaklinga sem bara bognuðu undan álaginu sem getur auðveldlega gerst því þetta er drulluerfitt.“ Þó að álagið hafi verið mikið segir Hera sína upplifun góða sem sé fyrst og fremst frábæru samstarfsfólki að þakka. „Það var rosalega vel passað upp á mig,“ segir hún og leggur áherslu á að teymið verði að þekkja vel til og vita hvenær þurfi einfaldlega að loka flytjandann inni í herbergi til að hvílast. „Mér var til dæmis bara skammtaður einn klukkutími á dag fyrir fjölmiðlaviðtöl sem er frábær aðferð því þá verða allir svo æstir í að komast að. Þetta vissu Valli, umboðsmaðurinn minn, og Lóa systir, sem var framkvæmdastjóri hópsins, þannig að ég var bara leidd niður í viðtöl í klukkutíma og svo leidd burt aftur.“ Hera viðurkennir að henni hafi sárnað sumt sem fram kom í fjölmiðlum meðan

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.