Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Síða 74

Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2019, Síða 74
Veitingastaðurinn Jómfrúin við Lækjargötu hefur um árabil verið eftirlæti margra. Allt frá upphafi hefur hún verið griðastaður hinsegin fólks og á síðari árum einnig stutt duglega við bakið á Hinsegin dögum í Reykjavík. Það var Jakob Jakobsson, heimsins fyrsta karlkyns smurbrauðsjómfrú, sem opnaði Jómfrúna árið 1996 og rak hana ásamt eiginmanni sínum, Guðmundi Guðjónssyni, til ársins 2015 þegar sonur hans, Jakob Jakobsson yngri, tók við keflinu. Þó að ást Jómfrúarinnar á sínum hýrustu gestum (og ísköldu ákavíti) sé óbilandi er það djassinn sem á hug hennar og Hin Hýra djassel skandi jómfrú jómfrúin - THe queer jazz lover in reykjavik hjarta yfir björtustu sumarmánuðina. Alla laugardaga í júní, júlí og ágúst fyllist Jómfrúargarðurinn því af seiðandi djasstónlist sem flutt er af landsliði tónlistarfólks. Þetta sumarið koma þar fram Margrét Eir, kvartett Kristjönu Stefáns, Siggi Flosa, Ragnheiður Gröndal, stórsveit Samúels J. Samúelssonar og þannig mætti áfram telja. Jómfrúargarðurinn er umlukinn þéttri miðborgarbyggð með lágreistum húsum til suðurs og því skjólsæl og sólrík paradís á björtum sumardögum. Skandinavísk sumarstemning sem enginn ætti að láta framhjá sér fara! For years the restaurant Jómfrúin has not only attracted a large group of LGBT+ guests but also been a proud supporter of Reykjavik Pride. Founder Jakob Jakobsson, the first man in the world to graduate as a “smørrebrødsjomfru”, operated Jómfrúin with his husband until 2015 when his son, Jakob Jr., took over. On a sunny summer day the backyard of Jómfrúin is a real paradise which could explain why some of Iceland’s best musicians show up there every Saturday in June, July and August to play live jazz music – something that’s truly worth experiencing!

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.