Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2021, Page 8

Skessuhorn - 21.04.2021, Page 8
MiðVikudAGur 21. ApríL 20218 Aflatölur fyrir Vesturland 10. til 16. apríl. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu. Akranes: 9 bátar. Heildarlöndun: 100.278 kg. Mestur afli: Ebbi Ak-37: 31.502 kg. í þremur löndun- um. Arnarstapi: 1 bátur. Heildarlöndun: 2.642 kg. Mestur afli: Straumey EA-50: 2.642 kg. í einni löndun. Grundarfjörður: 6 bátar. Heildarlöndun: 300.398 kg. Mestur afli: Sigurborg SH-12: 83.117 kg. í einni löndun. Ólafsvík: 13 bátar. Heildarlöndun: 262.346 kg. Mestur afli: kristinn Hu-812: 82.034 kg. í fjórum löndunum. Rif: 11 bátar. Heildarlöndun: 369.155 kg. Mestur afli: Magnús SH-205: 101.531 kg. í fimm löndun- um. Stykkishólmur: 2 bátar. Heildarlöndun: 4.590 kg. Mestur afli: Fjóla SH-707: 2.970 kg. í þremur löndunum. Topp fimm landanir á tíma- bilinu: 1. Sigurborg SH-12 GRU: 83.117 kg. 12. apríl. 2. Hringur SH-153 GRU: 71.855 kg. 14. apríl. 3. Farsæll SH-30 GRU: 70.459 kg. 12. apríl. 4. Runólfur SH-135 GRU: 62.088 kg. 12. apríl. 5. Tjaldur SH-270 GRU: 52.451 10. apríl. -frg Fullur á röngum vegar- helmingi VESTURLAND: Á að- fararnótt sunnudags barst lögreglu tilkynning um und- arlegt aksturslag ökumanns á kjalarnesi. Ók téður öku- maður ítrekað yfir á rangan vegarhelming svo litlu mun- aði að árekstur yrði. Lög- regla stöðvaði ökumanninn á Akrafjallsvegi og reyndist hann vera sýnilega ölvaður auk þess skora hátt í blæstri í áfengismæli lögreglu. Öku- maður var handtekinn og fór málið í hefðbundið ferli. -frg Bílvelta við Dalsmynni SNÆFELLSNES: Bíl- velta varð á Snæfellsnesi við dalsmynni um hádegis- bil á mánudaginn. Ökumað- ur vörubíls sem kom að slys- inu tilkynnti um óhappið. Sjúkrabíll og lögregla voru send á staðinn. Þá hafði öku- maður náð að komast sjálf- ur út úr bílnum. Ökumaður hafði verið í bílbelti og líkn- arbelgur sprungið út. Þrátt fyrir það slasaðist ökumað- ur sem var einn á ferð nokk- uð og var fluttur á sjúkrahús. -frg Ljóslaus kerra með of þungan farm VESTURLAND: Lögregla hafði afskipti af ökumanni með ljóslausa kerru í eftir- dragi á mánudaginn. Öku- manni var fylgt að bílastæði við Hagamel þar sem vega- eftirlitsbifreið lögreglunn- ar kom á staðinn og vigtaði ökutækið. reyndist heild- arþungin umfram leyfileg mörk auk þess sem frágang- ur farms reyndist ófullnægj- andi. -frg Heyrði eitt- hvað en sá ekk- ert í sumarbú- staðnum VESTURAND: Á þriðju- dag barst lögreglu tilkynn- ing um að öryggiskerfi væri í gangi í sumarbústað við Miðárás. Tilkynnandi sagð- ist vera með öryggiskerfi sem hann gæti fylgst með úr símanum sínum. Hann sagð- ist jafnframt ekki sjá neitt en heyra eitthvað. Við nán- ari athugun reyndist skyldur aðili hafa farið að bústaðn- um til þess að athuga hvort allt væri í lagi og reyndist svo vera. -frg umhverfisstofnun hefur nú lagt fram tillögu að friðlýsingu Borg- arvogs í Borgarnesi. Ef tillagan verður samþykkt verður Borgar- vogur friðland í samræmi við máls- meðferðarreglur laga um náttúru- vernd. Frestur til að gera athuga- semdir við tillöguna er til og með 14. júlí næstkomandi. Ábending- um og athugasemdum skal skila með tölvupósti á netfangið ust@ ust.is eða með pósti til umhverf- isstofnunar. „Tillagan er unnin af samstarfs- hópi sem í áttu sæti fulltrúar um- hverfisstofnunar, Borgarbyggðar, kirkjuráðs og umhverfis- og auð- lindaráðuneytisins. Markmiðið með friðlýsingu svæðisins er að viðhalda og vernda til framtíðar náttúrulegt ástand Borgarvogs og líffræðilega fjölbreytni svæðisins þannig að það fái að þróast sam- kvæmt náttúrulegum lögmálum sínum og á eigin forsendum. Jafn- framt er það markmið friðlýsing- arinnar að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins og að al- menningur fái notið svæðisins til náttúruskoðunar og fræðslu,“ seg- ir í kynningu umhverfisstofnunar. mm Ný lög um opinberan stuðning við nýsköpun voru samþykkt á þingi í síðustu viku þegar 32 stjórnarlið- ar greiddu brautargengi þeirra at- kvæði. Frumvarpið var lagt fram af Þórdísi kolbrúnu r Gylfadóttur ráðherra ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar. Nú hafa verið gerðar umfangsmiklar breytingar á opin- beru stuðningsumhverfi nýsköpun- ar á landinu. Starfsemi Nýsköpun- armiðstöðvar íslands verður lögð niður, stofnað verður tæknisetur með áherslu á stuðning við frum- kvöðla og sprotafyrirtæki á sviði hátækni, framlög til nýsköpunar á landsbyggðinni verða aukin og nýr sjóður settur á fót fyrir rannsóknir í byggingariðnaði auk fleiri aðgerða sem frumvarpið tekur um. „Með þessum breytingum á opinberum stuðningi við nýsköp- un höfum við náð að forgangsraða verkefnum í takti við nýsköpunar- stefnu,“ sagði ráðherrann og bætti við: „Stuðningur við nýsköpun hef- ur aukist gríðarlega í tíð þessarar ríkisstjórnar og framlög til nýsköp- unar, rannsókna og þekkingargreina hafa vaxið um ríflega sjötíu prósent. Þetta kemur m.a. fram í stóraukn- um framlögum í Tækniþróunar- sjóð, auknum framlögum í endur- greiðslur vegna rannsókna og þró- unar og stofnun kríu - sprota- og nýsköpunarsjóðs.“ mm Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra mælti í síðustu viku fyrir frumvarpi sem miðar að því að styrkja lagastoð og heimildir fagráðsráðs eineltis- mála. í frumvarpinu er meðal ann- ars kveðið á um skýrari heimildir ráðsins til þess að vinna með pers- ónuupplýsingar og heimild til að takmarka aðgang aðila að gögn- um ef talið er að slíkt geti skaðað hagsmuni barns, til samræmis við ákvæði barnaverndarlaga. Aukin- heldur er fjallað um skipan ráðsins og hæfniskröfur sem gerðar eru til þeirra sem þar eiga sæti. Fagráð eineltismála starfar nú bæði fyrir grunn- og framhalds- skóla en vísa má eineltismálum til ráðsins þegar ekki finnst fullnægj- andi lausn á þeim innan skóla eða sveitarfélags. ráðið veitir álit sín á grundvelli gagna og upplýsinga sem því berast. Slík álit hafa með- al annars að geyma leiðbeiningar til aðila skólasamfélagins, svo sem foreldra, um hvernig vinna megi að úrlausn mála með hagsmuni barna að leiðarljósi. Fagráð eineltismála er ekki stjórnvald í skilningi stjórn- sýslulaga þar sem álit þess eru ráð- gefandi. Niðurstöður þess eru því ekki skuldbindandi fyrir aðila máls gagnvart öðrum úrræðum sem lög og reglur kunna að bjóða upp á. „Einelti er samfélagslegt mein og er brýnt að allir leggi sitt af mörk- um til að uppræta það,“ sagði Lilja d Alfreðsdóttir menntamálaráð- herra þegar hún fylgdi frumvarp- inu úr hlaði. mm Afar fjölskrúðugt fuglalíf er við Borgarvog. Þangað hafa einnig slæðst stærri skepnur eins og blöðruselir og hvalir, eins og þessi hrefna sem varð innlyksa þar í byrjun október 2016. Kynna tillögu að friðlýsingu Borgarvogs Lilja D Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. Ráðherra talar fyrir skýrari umgjörð um eineltismál Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir ráðherra nýsköpunar, iðnaðar og ferðamála. Ljósm. Stjórnarráðið. Lög um nýsköpun samþykkt á þingi

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.