Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2021, Síða 13

Skessuhorn - 21.04.2021, Síða 13
MiðVikudAGur 21. ApríL 2021 13 Gleðilegt fótboltasumar! Skagamenn bjóða alla velkomna á Akranes í sumar - jafnt fótbolta- áhugafólk sem aðra góða gesti S K E S S U H O R N 2 02 1 Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir umsóknum í lausar byggingarlóðir við Háamel í Melahverfi. Um er að ræða níu lóðir fyrir einnar hæðar einbýlishús, parhús og raðhús með samtals 11 íbúðum. Götuheiti: Hámarks byggingarstærð: *Gatnagerðargjald kr./m2 Einbýlishúsalóðir: Háimelur nr. 2 291 m2 22.741 kr./m2 Háimelur nr. 4 248 m2 22.741 kr./m2 Parhúsalóðir: Háimelur nr. 3-5 (2x150) 300 m2 22.457 kr./m2 Háimelur nr. 7-9 (2x160) 320 m2 22.457 kr./m2 Háimelur nr. 11-13 (2x160) 320 m2 22.457 kr./m2 Raðhúsalóð: Háimelur nr. 1 690 m2 22.457 kr./m2 * Gatnagerðargjald reiknast sem hlutfall af byggingarkostnaði, viðmið frá apríl 2021. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um lóðirnar og skipulagsskilmála má nálgast á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar www.hvalfjardarsveit.is og á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, Melahverfi, Hvalfjarðarsveit. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar eða á netfangið bygging@hvalfjardarsveit.is Við úthlutun lóðanna verður farið eftir úthlutunarreglum lóða í Hvalfjarðarsveit. Frestur til að skila inn umsóknum er til 4. maí 2021 F.h. Hvalfjarðarsveitar Arnar Skjaldarson, byggingarfulltrúi Auglýsing um lausar lóðir í Melahverfi, Hvalfjarðarsveit Melahverfi 2. áfangi, lausar lóðir til úthlutunar við Háamel. Lóðir við Lyngmel koma til úthlutunar á haustmánuðum 2021. Guðmundur ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, mælti á Alþingi í vikunni sem leið fyrir frumvarpi til breytinga á lög- um um rammaáætlun og tillögu til þingsályktunar um staðsetningu vindorkuvera í landslagi og náttúru íslands. Frumvarpið um breyting- ar á lögum um verndar- og orku- nýtingaráætlun (rammaáætlun) snýr að málsmeðferð virkjunar- kosta í vindorku. Verði það að lög- um mun vindorkan fá nokkuð aðra málsmeðferð og meðhöndlun inn- an rammaáætlunar en hinir hefð- bundnu virkjunarkostir, vatnsorka og jarðvarmi. í frumvarpinu er gert ráð fyrir því að skoðun og mat verkefnisstjórnar rammaáætlunar á virkjunarkost- um í vindorku taki mið af því sér- eðli vindorkunnar að hún er hvorki takmarkaður né staðbundinn orku- kostur og því hægt að hagnýta vind- orkuna víða um land. í frumvarp- inu og tillögu til þingsályktunar er byggt á því að landsvæðum verði skipt í þrjá flokka; í fyrsta flokk falli landsvæði þar sem vindorkunýting er ekki heimiluð, í annan flokk falli svæði sem geta verið viðkvæm til hagnýtingar vindorku og mælt er fyrir um að sæti sérstakri skoðun og mati verkefnisstjórnar rammaáætl- unar. í þriðja flokk falli öll önnur landssvæði og liggur ákvörðun- arvald varðandi virkjanir á þeim svæðum hjá viðkomandi sveitarfé- lagi á grundvelli almennra laga og reglna. Samkvæmt frumvarpinu er til- laga til þingsályktunar meginverk- færið við mat verkefnisstjórnar rammaáætlunar á einstökum virkj- unarkostum. í henni kemur fram skýr opinber stefnumörkun um staðsetningu slíkra mannvirkja út frá tilgreindum flokkum lands, auk þess sem mælt er fyrir um þær meg- inreglur, viðmið og áhrifaþætti sem byggja skal mat verkefnisstjórnar á þegar virkjunarkostir eru teknir til skoðunar. Verði frumvarp þetta að lögum og þingsályktunartillaga því fylgjandi samþykkt er gert ráð fyr- ir að ferli vegna skoðunar og mats á virkjunarkostum í vindorku verði einfaldara og skjótara en það er í dag enda verði byggt á skýrri opin- berri stefnumörkun um staðsetn- ingu slíkrar starfsemi. Jafnframt verður tryggð vernd svæða sem tal- in eru verðmætust út frá náttúru- fari. mm Þingsályktunartillaga um staðsetningu vindorkuvera

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.