Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2021, Side 21

Skessuhorn - 21.04.2021, Side 21
MiðVikudAGur 21. ApríL 2021 21 Slysavarnafélagið Landsbjörg hef- ur átt í góðu samstarfi við Mjólk- ursamsöluna undanfarin ár og notið stuðnings í formi vöruút- tekta þegar sjálfboðaliðar félags- ins sinna tímafrekum útköllum og fjáröflunum. Nú hafa félögin stigið skrefinu lengra og undir- ritað samstarfssamning, þar með Mjólkursamsalan bætist við öflug- an hóp aðalstyrktaraðila og styð- ur með myndarlegum hætti starf mörg þúsund sjálfboðaliða. „Mikið hefur mætt á sjálfboða- liðum okkar frá því jörð fór að skjálfa af krafti á reykjanesi og ekki síður eftir að eldgos í Geld- ingardölum hófst. undanfarn- ar fjórar vikur hafa um þúsund sjálfboðaliðar frá björgunarsveit- um, af nánast öllu landinu, lagt sitt af mörkum til að tryggja ör- yggi ferðafólks við gosstöðvarnar. Margir hópar sjálfboðaliða hafa staðið vaktina og oftar en ekki hafa vaktir verið mannaðar allan sólar- hringinn. Við þessar aðstæður hefur það sýnt sig enn og aftur að gott samstarf Slysavarnafélagsins Landsbjargar við fyrirtæki eins og Mjólkursamsöluna er nauðsynlegt til að tryggja að félagið geti sinnt sínu hlutverki,“ segir í tilkynningu frá kristjáni Þór Harðarsyni fram- kvæmdastjóra Landsbjargar. „Sá stuðningur sem við finnum fyrir í samfélaginu er okkur ómetanleg- ur. Við gætum ekki leyst verkefni okkar án stuðnings sem við fáum frá almenningi og fyrirtækjun- um í landinu. Þess vegna er fram- tak Mjólkursamsölunnar til fyrir- myndar og okkur hlakkar til að eiga áfram gott samstarf við MS í framtíðinni“ sagði kristján. mm Meðfylgjandi mynd var tekin við undirskrift samningsins. Þarna eru Pálmi Vilhjálmsson forstjóri Mjólkursamsölunar og Kristján Þór Harðarson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Mjólkursamsalan er nýr styrktaraðili Landsbjargar aðstæður voru kannaðar. Sólin var um það bil að setjast og gægðist örlítið á milli skýja á meðan hagl- élið dundi yfir okkur. Þar voru að- stæður fínar en gosmengun held- ur mikil svo við ókum til baka og komum að gosinu aðeins vestar, við endann á gönguleið A. Á þess- um tímapunkti var sólin sest og glóandi hraunið lýsti upp myrkr- ið. Enn var éljagangur og nokkuð hvasst en aðstæður að öðru leyti góðar. Stórkostlegt sjónarspil Ekki voru margir í brekkunni að fylgjast með gosinu, ætli það hafi ekki verið á milli tuttugu og þrjá- tíu manns. Björgunarsveitafólk raðaði sér með gasmæla víðsvegar um svæðið til að vera til taks fyr- ir fólk og fylgjast með gasmeng- un á svæðinu. Þetta var heldur ró- legt kvöld, fólk sat í brekkunni og horfði á stórkostlegt sjónarspil- ið sem móðir náttúra bauð upp á. Þegar klukkan sló ellefu byrjaði björgunarsveitin að rýma brekk- una, ganga á milli fólks og biðja það að halda af stað til baka. rým- ingin gekk mjög vel og tók tæp- lega hálftíma. Þá voru allir lagð- ir af stað til baka og tveir björg- unarsveitarmenn fylgdu hópnum. Þá héldum við af stað á bílnum til baka að bílastæðinu þar sem Sig- urður Axel og Ágúst biðu eftir ró- lega vakt bæði á göngustígnum og bílastæðinu en klukkan níu fóru þeir niður að bílastæði til að vísa fólki frá sem hugðist leggja af stað að gosinu. Róleg vakt Vaktin var með rólegra móti þenn- an föstudaginn. Sigurður Axel hef- ur tekið þrjár vaktir við gosstöðv- arnar og sagði hann blaðamanni að hin tvö skiptin ekki hafi verið jafn róleg. „Okkar verkefni hafa mest verið að aðstoða fólk sem hefur meitt sig, verið illa búið og líka fólk sem hefur hálfpartinn bara gefist upp á göngunni, örmagnast,“ seg- ir Sigurður Axel. Björgunarsveitin hefur einnig það hlutverk að leið- beina fólki hvert eigi að fara og að- stoða fólk sem lendir í vandræð- um á leiðinni. „Það er frekar bratt- ur kafli sem fólk hefur verið í vand- ræðum með og þá aðstoðum við. Á hinum vöktunum sem ég hef tekið hafa hjólin eiginlega verið á ferð- inni allan tímann að aðstoða fólk,“ segir Sigurður Axel. Þegar líður á daginn felast störf björgunarsveit- arinnar í að loka svæðinu og að lok- um að rýma það. Svæðinu er lokað klukkan níu á kvöldin fyrir fólk sem ætlar að ganga af stað og klukkan ellefu er svæðið við gosstöðvarnar rýmt. „Þau vilja hafa svæðið autt á nóttunni svo okkar síðasta verk hef- ur verið að rýma. Þegar ég hef ver- ið þarna hefur það gengið vel. Fólk er mjög tillitssamt og skilur þetta vel,“ segir Sigurður Axel. Ánægjan við að hjálpa Aðspurður segir Sigurður Axel það ekki hafa verið erfitt að manna vaktir Björgunarfélags Akraness við eldgosið en bætir við að félagið þurfi heldur ekki að manna vakt- ir alla daga. En hvað er það sem fær fólk til að leggja þetta á sig? „Ég held að hver og einn hafi sína ástæðu. Það er vissulega spennandi að fara þarna á svæðið og sjá eld- gosið. Við fáum líka góða æfingu út úr þessu, sérstaklega fólk sem hef- ur áhuga á að aðstoða fólk sem hef- ur meiðst. Hjá mörgum er það svo bara ánægjan að fá að hjálpa til sem drífur fólk áfram held ég,“ svar- ar Sigurður Axel. Aðspurður seg- ir hann flesta sem hann hefur séð leggja leið sína að gosinu vera vel búna fyrir göngu en þó séu sum- ir sem mættu búa sig betur. „Fólk þarf sérstaklega að huga að skófatn- aði, þetta er löng ganga, sérstaklega ef það á að skoða gosið allt, og erf- itt að ganga þetta á strigaskóm. Svo þarf að gæta þess að ef fólk er með börn með sér að þau séu líka eins vel búin, í vindþéttum fötum, góð- um skóm og bara klædd við hæfi,“ segir Sigurður Axel að endingu. arg Skoðað hvað gasmælirinn sagði. Sölvi Már og Björn Torfi horfa yfir eldgosið á meðan sólin sest. Eldgosið og hraunrennslið var stórfenglegt þegar sólin hafði sest. Sölvi Már og Björn Torfi komnir í brekkuna þar sem fólk fylgdist með gosinu. Glóandi hraunið lýsti upp myrkrið. Kvikan sem streymir upp úr jörðinni kemur beint úr möttli jarðar.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.