Skessuhorn


Skessuhorn - 21.04.2021, Side 27

Skessuhorn - 21.04.2021, Side 27
MiðVikudAGur 21. ApríL 2021 27 Pennagrein Á síðustu vikum hafa farið fram ein- staklega gagnlegar og fróðlegar um- ræður, gagnvirkt samtal, á vegum landshlutasamtakanna SSV um þróun menningarstefnu landshlutans fyrir komandi ár. Fyrir það framtak vil ég þakka og fagna með því að væta ögn í fjaðurstafnum. Öll erindin má finna á samfélagsmiðlasíðu SSV og hvet ég áhugasama til að kynna sér þau. Þar er menningararfur, fjölmenning og samvinna til umræðu, víðsýni og nýsköpun í hávegum höfð með það að leiðarljósi að gera gott samfélag betra. Stórt HuH fyrir því! Ætlun mín, jafnframt því að vekja athygli á tilgreindri umræðu, er þó að leggja smá orð í belg sem upplýstur neytandi, listunnandi og áhugamaður um skapandi greinar, skipuleggjandi menningarviðburða og verkefna sem og starfsmaður víðfeðmrar menning- arstofnunar í samfélaginu, Þjóðkirkj- unnar á íslandi. um leið og ég vona að rýni í orð- ræðuna verði til gagns, vil ég taka fram að þau sjónarmið sem ég vil leiða fram rúmast ekki í einum pistli eins og stendur. Menningarmál eru snúinn og viðamikill málaflokkur sem ræða þarf af fullri sanngirni. Það verður ekki gert með einhverri fljóta- skrift. Hér á eftir mun ég tæpa á for- sendum og efnistökum þeirrar rýni sem ég vonast til að geta miðlað í okkar góða héraðsfréttamiðli, mikil- vægri og merkilegri menningarstofn- un, sem gagnast hefur samfélaginu á Vesturlandi lengi til virkrar umræðu. Þetta uppbyggilega verkefni hef- ur starfandi menningarfulltrúi SSV, Sigursteinn Sigurðsson, leitt af stakri prýði og var skipulag og framsetning öll einstaklega vel unnin og gefur gott fordæmi. Það er mikil gæfa þegar fólk í skap- andi greinum snýr heim til að starfa af áhuga og eljusemi á sínu sviði með það að markmiði að valdefla og styðja við vöxt og þróun menningar í víð- asta skilningi þess orðs samfélagi sínu til heilla. í umræðunni um nýsköp- un og lifandi listir, menningarstarf, skapandi greinar sem og fræðastörf, er mikilvægt að geta hugsað út fyrir „kassann“ eins og Sigursteinn nefndi í lokaumræðu fimmta og síðasta mennningarstefnumótsins. Ég tek heilshugar undir þau orð. En hvað er í „kassanum“ og hvað er utan hans; hvað höfum við og hvert stefnum við, er spurningin. upplýst umræða um menningu kallar á að hugtök og skilgreiningar nái yfir og miðli þeim sameiginlega skilningi sem býr að baki. Það er jákvætt og eðlilegt að gefandi samtal miði að því að „víkka, dýpka og opna“ þann veruleika sem við vísum til með hugmyndinni um menningarstarf og menningararf. Það er mjög mikilvægt í öllu tali um auðlindir að tækifærin til að nýta, efla og þróa tengsl okkar við þær, séu sem jöfnust, sama á hvaða sviði menning- ar og nýsköpunar við störfum. Tengsl fræða og þjóðmenningar, lista & ný- sköpunar, iðnaðar og ferðaþjónustu eru sjálfsögð og gefin stærð í samtím- anum sem við virðum og metum. Allt vinnur best saman. Mannauður sem sýnir hæfni til frumsköpunar sem og nærandi safnastarfsemi leiðir það af sér að samtímaþekking og menning- ararfur haldast hönd í hönd á vegferð til stefnumóts við framtíðina. Þver- fagleg vinnubrögð í þeim efnum eru ekki pólítískur rétttrúnaður heldur birtist gagnsemi þess í bættum lífs- kjörum íbúa í blómlegu samfélagi. Á Vesturlandi er ekki „hnignandi“ mannlíf þrátt fyrir áföll sem hafa dun- ið yfir vaxandi atvinnugreinar eins og ferðaþjónustu og fræðasamfélagið gengur í endurnýjun lífdaga, eins og uppbygging á Bifröst gefur fyrirheit um með nýjum áherslum. Við erum ekki af baki dottin heldur lögum okk- ur að breyttum aðstæðum. Það er mikilvægt þegar stefnumót- unarvinna er unnin til framtíðar að endurhugsa hlutina af fagmennsku og ígrunda aðstæður. Útvíkkun hug- taksins menningar, rétt eins og skil- greininga á listum, hefur staðið yfir í um hálfa öld á Vesturlöndum. Sú þróun hófst með ögrandi yfirlýs- ingu eins mikilvægasta listamanns 20. aldar, Joseph Beuys, um að „allir“ séu listamenn. Án þess að dvelja um of við þá yfirlýsingu eða tímamót er mikilvægt að ávarpa þann fljótfærn- islega misskilning sem sumir ganga með, um að þau orð eigi að merkja að þar með sé allt „list“ – því þar er verið að tala um mannskilninginn en ekki allt það sem mannskepnan tekur sér fyrir hendur. Sú bylting sem yf- irlýsingin boðaði neyslu- og tækni- hyggjusamfélagi samtímans var að allir upplýstir þjóðfélagsþegnar væru frjálsar og skapandi verur sem hefðu rétt á eigin túlkunum og verðmæta- mati. Þar af leiddi sú ábyrgð að hafa fullgildan rétt til að meta sköpun- arverk annarra á eigin forsendum. Þetta er mikilvægur punktur, annars væri undirritaður ekki að tefla honum fram, því að á þeim forsendum hefur umræða um menningu og listir byggt síðan. Þannig var listhugtakið víkkað út og sá veruleiki sem við köllum í dag „svið skapandi greina“ spratt úr þeim farvegi. kassinn frægi sprakk og ákvörðunarvald lista- og menningar- stofnana um virði hugverka sem og handverks og iðnaðar var afnumið. Tímabil fjölmenningar hófst. Vandinn við fjölmenn- ingarumræðuna Við lifum í fjölmenningarsamfélagi þar sem hugtak eins og „list“ hef- ur víðtæka merkingu; barnamenn- ing, þjóðmenning, sagnaarfur og byggingartækni; allt eru þetta jafn- gild menningarfyrirbæri og þau viljum við standa vörð um þeg- ar við mótum nýja menningar- stefnu. Það er raunar ekki ný staða og venst furðu fljótt, að upplifa sig staddan í afskiptum menning- ar afkima, í orðræðu samtímans um menningarmál, þegar maður starf- ar í kirkjunni. Sumum finnst það í raun sjálfsagt því að kirkjan sé að þröngri skilgreiningu ekki menn- ingarstofnun því að þar sé verið að iðka trú. ímyndin er því sú að þar sé um trúarstofnun að ræða sem sé ekki þátttakandi í lifandi og gagn- virkri menningarumræðu. Af einum frummælanda í umræðu SSV um menningarstefnuna mátti marka að þar sem þar færi fram „helgihald og þvíumlíkt“ þá væri erfitt að horfa á kirkjur sem vettvang fyrir ann- arskonar menningu; en þær hefðu jú að geyma ýmsar þjóðargersem- ar sem væru hluti af menningararf- inum. Eins nefndi Margrét Björk Björnsdóttir að það gæti verið við- kvæmt að ræða mögulegt hlutverk í samhengi þróunar menningar- starfs, þó þar væri um að ræða vin- sæla áfangastaði ferðaþjónustu og viðburða vegna sambands sókn- arfólksins við sína helgidóma. Sú orðræða þróaðist ekki frekar á þeim vettvangi sem vísað er til en ég tel rétt að geyma umfjöllun um kirkjur sem vettvang menningarviðburða í samhengi við „nýtingu“ þeirra í samhengi vangaveltna um hvern- ig hægt sé að hafa meira gagn af vannýttum húsum, eins og vitum og félagsheimilum, til betri tíma. Heldur vil ég beina sjónum mín- um að því að menning með trúar- legum tilvísunum, eða hlutverki kirkna sem vettvangs menningar fólksins sem þar lifir og starfar, er ekki minna virði en önnur menning – og jafnvel kjörinn vettvangur fyr- ir ákveðna tegund menningar sem brúar bil ólíkra hópa vegna sam- eiginlegs grundvallar sem trúarleg umgjörð skapar, óháð kirkjudeild- um. kirkjurnar eru vitnisburður um kristna menningu og hafa verið vett- vangur safnaða til að skapa samfélag um hefðir, sögu og vonir manna, en um leið myndað umgjörð um merk- ingarleit, haft áhrif á lífsafstöðu fólks og skapað gildi og tilvistargrunn ein- staklinga með ólíkum hætti, rétt eins og listin í öllum sínum myndum get- ur gert. Hvaða augum ég lít á notk- un guðshúsa til „annarrar notkunar“ í samhengi menningarstarfsemi mun ég fjalla um síðar, í ljósi þess hvernig ég hef nálgast þau mál í tengslum við menningarverkefni sem ég hef tekið þátt í, í ljósi og samhengi köllunar minnar til starfa fyrir kirkjuna, sem eru söfnuðir og sóknir, fólk en ekki hús. Ég mun því ekki orðlengja með dæmum sem vísa út fyrir þá umræðu sem verið er að vísa til hér. um leið og ég boða á komandi vikum dýpri umfjöllun um samspil kirkju, menn- ingar og lista, mikilvægi góðrar sam- vinnu og fer yfir dæmi um reynslu og tækifæri, þar sem veraldleg og trúar- leg menning geta átt gjöfult samtal á ýmiskonar vettvangi, þá vil ég enda þennan pistil á tveimur dæmum sem ramma ágætlega inn öndverða póla, sem birta það ágætlega hvernig kirkj- an virðist að mörgu leyti jaðarsett í umræðunni um mótun menning- ar og þróunar framtíðarsýnar í þeim efnum, sem á sér ekki bara stað hér á Vesturlandi heldur í samtímanum al- mennt. Það er eðlileg krafa og raunar ákall skynseminnar að orðræðan sem höfð er uppi um hlutverk kirkjunnar í nær- samfélaginu taki mið af því að hún sem stofnun hefur í sögu og samtíð verið mikilvægur hluti af því sem kallað er menningarlíf, hvort sem viðkemur tónlist, myndlist, byggingarlist eða ritmenningu þjóðarinnar. Auk þess hefur hún alla tíð verið þátttakandi í virku samtali um listir og merkingar- leit mannsins í gegnum þær persónur sem fyrir hana hafa starfað. um hlut- verk hennar þegar kemur að varð- veislu menningararfsins þarf ekki að fjölyrða; sumir líta jafnvel á kirkjurn- ar sínar sem einhverskonar safnastarf- semi, þar sem saga byggðarlagsins er með táknrænum hætti skráð í kirkju- garðinum sem guðshúsinu fylgir. Líkt og ég sagði að framan þá get- ur það reynst vel að byggja á þeim grunni sem fyrir er, þegar til verks á að vanda. inní því landslagi eru kirkj- urnar ekki bara hús sem varðveita hefðir og sögu samfélaga og ramma inn helgihald hennar, heldur vett- vangur einstaklinga nú sem fyrr sem horfa eftir tækifærum til að bæta og efla samfélag sitt. Það eru ekki bara „sóknarbörnin“ sem eru mannauð- urinn, heldur verður að nefna það í þessu samhengi að á vegum safnað- anna, í umboði kirkjunnar, starfa 11 prestar í fullu starfi á Vesturlandi í dag. Þeir iðka af einlægni þá list- grein að þjóna fólki í gleði og sorg, hlúa að menningararfi og byggja upp samfélög á grundvelli hugsjónar um andlegt heilbrigði og góð lífsgæða. Fólk sem boðar von um aukinn vöxt og þroska með túlkunarfræðum og sagnagáfu, innsæi og fagurfræði, eins og hverjir aðrir listamenn eða höf- undar innan annarra skapandi greina. Væri ekki synd að jaðarsetja eða gild- isfella öll þau tækifæri sem það felur í sér að horfa á kirkjuna sem hluta af menningunni í stað þess að útmála hana sem viðkvæman anga valda- stofnunar sem ætli sér boðvald í sið- ferðismálum. Sú kirkja sem lætur sér annt um þjónustu við fólk tekur mið af þörfum þess og markmiðum, end- urspeglar vilja fólksins sem á þær og á fullt erindi í samtalið um þá framtíð- arsýn í menningarmálum sem nú er unnin, með opnu samtali og gagnlegu ferli, sem byggir á samvinnu margra. Svart-hvítt sjónarhorn á lífrænan veruleika Til að varpa ljósi á jaðarsetningu kirkjunnar eða menningarfyrirbæra sem tilheyra kristnu samhengi vil ég leggja fram tvö dæmi sem segja má að marki öndverða póla á mæli- kvarðanum frá höfnun til þöggun- ar. Annars vegar er það þá að kirkj- an afhelgi sig til að geta verið „hlut- laus“ vettvangur menningarstarfs en hins vegar er þar á móti til- hneigingin til að forðast að tala um það sem hefur verið áorkað á for- sendum kristins menningararfs. Að framan var vísað til SSV-umræðu þar sem kirkjuhús var nefnt til sög- unnar til að varpa ljósi á ákveðnar aðstæður. Af því innleggi spunnust smá pælingar, góðra gjalda verðar, sem snérust þó fyrst og síðast um það að dæmi væru um að kirkjur gætu gagnast vel og verið skemmti- legar þegar þær fengju allt annað hlutverk. Það væri í anda fjölmenn- ingarinnar að þar færi eitthvað allt annað fram en „helgihald og svo- leiðis“ en einmitt ef að þær væru af- helgaðar, hlutverk þeirra sem helgir staðir væri afnumið, þá gætu þær orðið ákjósanlegur vettvangur fyrir aðra starfsemi sem myndi auka fjöl- breytni og efla listir og menningu. Að mínu viti birtir orðræða af þessu tagi mjög þrönga sýn, ekki bara á kirkjuna sem „hús eða stað“ heldur líka á það hvað við teljum að megi eða eigi að fara fram innan þessara húsa. Til þess að tryggja „frelsi lista og iðn- aðar“ verði því að afhelga byggingu svo að ekki verði árekstrar; annars séu þær bara fyrir trúað fólk og siði þeirra. Nú vil ég taka fram að ég er ekki mót- fallinn því að kirkjur séu teknar úr notkun og fái annað hlutverk, jafnvel gagnlegra fyrir söfnuð og samfélag, en tíminn mun leiða í ljós hvort þarfir eða óskir sókna á næstu árum munu hníga að því. Aftur á móti, svo það sé á hreinu, þá er engin þörf á að af- nema trúarlegt hlutverk þar sem sátt skapast um það hvaða menningarstarf getur átt heima þar inni og verið að- dráttarafl fyrir aðrar atvinnugreinar, eins og ferðaþjónustuna. Tónleikar, upplestrar og viðburðir fyrir unga sem aldna, jafnvel leiksýningar geta átt heima í kirkjuhúsum þegar sam- ráð er haft og ábyrgð tekin á því að vanvirða ekki merkingar og táknheim þess. Flest ef ekki öll listaverk öðlast nýtt samhengi í trúarlegri umgjörð og það getur sannarlega skapað dýpt eða spurningar sem annars hefðu ekki sprottið fram, í „veraldlegu menning- arrými.“ Opin sýn á hlutverk kirkna kall- ar ekki bara á umræðu um það hvort „önnur menning“ megi fá inni í kirkj- unum, heldur – svo við höldum okkur við hin jákvæðu sjónarhorn og tölum um sóknartækifærin – þarf að styðja nýsköpun og umbætur á kirkjuhús- um svo þau geti þjónað víðtækara og merkingarbærara hlutverki á nýjum tímum. Skrásetning sögunnar og nýj- ar leiðir til að miðla listaverkum og þeim menningararfi sem kirkjurn- ar geyma er tækifæri til nýsköpunar og frjórrar umræðu því þarfir eig- endanna, þau sem mynda sóknina um hvert kirkjuhús, geta breyst. Eins og dæmin sanna. Og þá erum við komin að hinum pólnum á þessum neikvæða ás, þar sem viðmót til menningarupp- byggingar á kirkjulegum forsendum mætir nánast þöggun því sannarlega, þrátt fyrir víðfeðmar umræður, var hvorki minnst á framtíðarhlutverk Snorrastofu í samhengi fræðastarfs eða samvinnuverkefna né reykholts- kirkju og reykholtshátíð í tengslum við tónlistarlíf og menningarstarf í landsfjórðungnum. Það held ég sé ekki með ráðum gert en segir okk- ur ákveðna sögu að sneitt sé hjá allri umræðu um eitt mikilvægasta dæmið um menningarstarf og stofnanir sem segja mætti að væru saman einmitt það menningarhús sem landshlutinn getur verið hvað stoltastur af, með sín sérsvið og aðdráttarafl sem byggir á þjóðmenningu og sagnahefð, fræða- og ritmenningu, skapandi listum og kristnum menningararfi. Það er hvorki þörf á því að rekja fyrir þeim sem þekkja af reynslunni hversu mik- ilvæg uppbyggingin í reykholti hefur verið fyrir Borgarfjörð né pláss hér til að benda á alla þá möguleika sem fel- ast í gefandi samvinnu við félagslega uppbyggingu sem verður best þegar byggt er á sögu og hefð, nýsköpun og fræðastarfi án þess að annaðhvort verði að skilgreina verkefnin sem ver- aldleg eða trúarleg, kristin eða fjöl- menningarleg; því kassann fræga er löngu búið að sprengja og engin skýr mörk eru á milli góðrar listar og lé- legrar afþreyingar, ef við leyfum okk- ur að nota gildishlaðin hugtök til há- tíðarbrigða. Þegar rætt er um mótun menn- ingarstefnu þá getum við ekki vikist undan því að að meta og virða þau lífsgæði, framtakssemi og elju, sem fólk nær og fjær, undir forystu öfl- ugs fólks með framtíðarsýn um upp- byggingu og reisn kirkjustaðarins sögufræga, hefur áorkað fyrir menn- ingarlíf á Vesturlandi. Það fordæmi skapaði sérstöðu sem margir aðrir hafa getað byggt enn frekar á í þró- un annarra skapandi greina; ekki bara í sögu- og menningartengdri ferða- þjónustu. Bein og óbein áhrif upp- byggingarinnar í reykholti, þar sem merk saga og öflugur sóknarprestur voru lyklar að ófyrirséðri uppbygg- ingu, er ekki hægt að meta í dag því „lifandi kirkja“ sem er í tengslum og tekur þátt í mótun menningar, heldur áfram að þróast og vaxa, jafnvel um- fram það sem frumkvöðlarnir sáu fyr- ir sér. Þess vegna verðum við að muna að forðast ekki umræðu um merkan arf og mikilvægt hlutverk sem mann- og menningarauður kirkjunnar getur haft í því félagslega landslagi sem við erum að greina og reyna skilja betur, þegar kallað er eftir samtali og sam- ráði um mótun menningarstefnu. Það er mín trú að vaxtarmöguleik- arnir og tækifærin spretti upp af nær- andi samtali og vona að þetta greinar- korn megi stuðla að því. Arnaldur Máni Finnsson Höf. er sóknarprestur í Staðar- staðarprestakalli og áhugamaður um menningu. Menningarstefna í kössum og kirkjum?

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.