Morgunblaðið - 15.03.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. MARS 2021
VR | Kringlunni 7 | 103 Reykjavík | Sími 510 1700 | vr@vr.is | vr.is
AðalfundurVR
Fundurinn fer fram bæði sem staðfundur
og fjarfundur í senn. Félagsmenn semætla
að sækja fundinn verða að skrá sig fyrirfram
annað hvort á stað- eða fjarfund á vef VR,
fyrir kl. 12.00 á fundardegi. Á staðfundi
verður grímuskylda viðhöfð og sóttvörnum
fylgt í hvívetna.
Vegna fyrirkomulags fundarins verða
allar kosningar rafrænar og fundargögn
sömuleiðis.
AðalfundurVR verður haldinnmiðvikudaginn
24. mars 2021 kl. 19.30 á Hilton Reykjavík Nordica.
Mikilvægt er að öll semmæta á fundinn
hafimeðferðis viðeigandi búnað (tölvu
eða snjalltæki) til þess að geta tekið þátt
í kosningum.
Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf,
lagabreytingar og ákvörðun um innborgun
í VR varasjóð.
Dagskrá og frekari upplýsingar er að finna
á vr.is/adalfundur.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Samkeppniseftirlitið hafnaði í síð-
ustu viku samningi sem kominn var
á um að Sigurður Elías Guðmunds-
son, hóteleigandi og verslunarmað-
ur í Vík í Mýrdal, keypti af Festi
hf. verslunina Kjarval á Hellu. Við-
bára eftirlitsins er meðal annars að
kaupandinn hafi ekki nægan fjár-
hagslegan styrk og sé háður og
hagsmunatengdur Festi þar sem
hann hefur verið lengi umboðsmað-
ur N1 á Vík. „Þessi niðurstaða er
okkur mikil vonbrigði þar sem við
vildum klára sölu á verslun Kjar-
vals á Hellu samkvæmt skilyrðum
sáttar sem á sínum tíma var gerð.
Við áttum okkur
hreint út sagt
ekki á niðurstöðu
Samkeppniseftir-
litsins þar sem
kaupandinn hef-
ur þekkingu og
fjárhagslega getu
til að reka þarna
verslun áfram í
núverandi
mynd,“ segir
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri
Festar, í samtali við Morgunblaðið.
Skilyrði voru sett
Samkeppniseftirlitið samþykkti
samruna N1 og Festar, undir
merkjum síðarnefnda félagsins, í
sumarlok 2018 en setti þó ýmis
skilyrði, sem áttu að vernda virka
samkeppni á eldsneytis- og dag-
vörumörkuðum. Eitt af því var að
selja Kjarvalsbúð fyrirtækisins á
Hellu. Festi rekur einnig Krónu-
verslun á Hvolsvelli og til vara hef-
ur verið opnað á að selja megi hana
í stað Kjarvals á Hellu, en sam-
keppnisyfirvöld telja og segja að
samruninn á sínum tíma dragi úr
virkri samkeppni á Hvolsvelli og
Hellu. Er þess því krafist að Festi
minnki umsvif sín á svæðinu.
Vorið 2019 var kominn á samn-
ingur um kaup heimamanns í
Rangárþingi á búðinni á Hellu, en
þegar á reyndi vildi sveitarfélagið,
Rangárþing ytra, sem á verslunar-
húsið við Suðurlandsveg, ekki fram-
selja leigusamninginn til viðkom-
andi. Nokkru seinna ætlaði
Samkaup að kaupa rekstur Krón-
unnar á Hvolsvelli og setja undir
sitt merki. Þá kom afsvar frá Rang-
árþingi eystra, sem á húsnæði
verslunarinnar, sem vildi ekki ljá
Samkaup það. Þá var þriðja atrenn-
an gerð, um sölu til Sigurðar Elías-
ar, og samningur undirritaður í
nóvember síðastliðnum. Ekkert
verður hins vegar, sem fyrr segir,
af sölunni eftir niðurstöðu Sam-
keppniseftirlits.
Viðskiptavinir vilja okkur
„Viðskiptavinir í Rangárvalla-
sýslu vilja halda í verslanir okkar,
það er alveg ljóst,“ segir Eggert
Þór Kristófersson. „Við munum
halda þessari vegferð áfram; að
reyna að selja Kjarval til nýrra og
öflugra eigenda til að tryggja
áframhaldandi öfluga verslun á
Hellu.“
Höfnuðu kaupanda að Kjarvali
Eggert Þór
Kristófersson
- Samkeppniseftirlitið samþykkti ekki sölu matvöruverslunar á Hellu - Þrjár atrennur verið gerðar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hella Verslun Kjarvals er í vestur-
hluta þessa stórhýsis á myndinni.
Frá því að starinn sást fyrst í
Borgarnesi upp úr 1960 hefur hon-
um fjölgað mikið. Hann er nokkuð
frekur til fjörsins og fer um í hóp-
um. Trúlega á kostnað skógar-
þrasta sem hafa ekki roð við hon-
um með sinn langa og oddhvassa
gogg. Starinn er fallegur fugl,
dökkur og doppóttur og jafnvel
svarblágrænn í sólskini. Nýverið
sást til stara í Borgarnesi sem er
alls ekki eins og hinir. Hann er
frekar grábrúnn og líkari grá-
þresti. Varð hann í fyrstu út undan
og fyrir nokkru einelti, kannski
vegna litarins en eftir að hann tók
saman við einn úr hinu liðinu hef-
ur verið litið á hann sem einn af
hópnum. Þeir tveir halda sig þó
oftast nokkuð til hlés og eru trú-
lega par.
Sá grái
einn af
hópnum
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Áframhaldandi lokun landamæra
Schengen-ríkjanna gæti haft afdrifa-
rík áhrif á íslenska ferðaþjónustu ef
landamærareglum verður ekki
breytt fyrir lok sumars. Í dag er bólu-
settum ferðamönnum frá öllum ríkj-
um utan Schengen-samstarfsins – en
þeirra á meðal eru Bandaríkin og
Bretland – meinaður aðgangur að
landinu. Þessi regla gildir þrátt fyrir
að ferðalangur frá svokölluðu þriðja
ríki geti reitt fram gilt bólusetning-
arvottorð eða mótefnavottorð sem
sannar að viðkomandi hafi þegar feng-
ið sjúkdóminn sem kórónuveiran veld-
ur.
Jóhannes Þór Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónust-
unnar, segir pólitískan vilja fyrir
hendi á Íslandi til að breyta þessum
reglum og opna landamærin fyrir
bólusettum ferðamönnum og þeim
sem eru með mótefni. Ákvörðun um
slíkt sé hins vegar í raun undir ráð-
herraráði Evrópusambandsins komin.
„Þetta er mjög pólitískt mál á milli
Bandaríkjanna og Evrópusambands-
ins. Schengen-lokunin var sett á í
kjölfar ákvörðunar Bandaríkja-
stjórnar um að loka á flug frá Evr-
ópu,“ segir Jóhannes. „Menn höfðu
vonast eftir betri samskiptum eftir
ríkisstjórnarskipti í Bandaríkjunum,
en eins og stendur
er Biden-stjórnin
alveg hörð á þess-
ari lokun.“
Dómsmálaráð-
herra hafi lagt
það til við ráð-
herraráð ESB að
færa ytri landa-
mæri Schengen
til meginlands
Evrópu, þannig að
hægt væri að taka við ferðamönnum
hér á landi, en þeir kæmust þá ekki
frá Íslandi inn í önnur Schengen-ríki
eins og nú er hægt. „Áslaug Arna
[Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráð-
herra] fór ansi langt með útfærslu á
þessari tillögu, og lagði hana fyrir
ráðherraráðið til að fá hjá því álit. En
ráðið tók ekki vel í hana svo íslensk
stjórnvöld ákváðu bara að fylgja til-
mælum ESB,“ segir hann. „Úr því að
það gekk ekki er mjög ólíklegt að Ís-
lendingar breyti þessu einhliða,
myndi ég halda. En þetta er auðvitað
afar slæmt fyrir okkur, sérstaklega
inn í haustið, því þá myndu Banda-
ríkjamenn, Bretar og Kínverjar alla
jafna koma til landsins. Það eru okk-
ar þrír helstu haust- og vetrarhópar
og eins og staðan er í dag kemst eng-
inn þeirra til landsins.“ jonn@mbl.is
Sumarið undir
Schengen komið
- Bólusetning ekki ávísun á inngöngu
Jóhannes Þór
Skúlason