Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 4

Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 4
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 Alexander Kristjánsson alexander@mbl.is Harðar samkomutakmarkanir tóku gildi á miðnætti. Ákveðið var í flýti í gær að skella í lás eftir að 17 kór- ónuveirusmit greindust innanlands í fyrradag, en það er mesti fjöldi smita á einum degi frá í nóvember. Aðgerðirnar eru kunnuglegar. Samkomubann mun miðast við tíu manns, sundlaugum, líkamsræktar- stöðvum og skemmtistöðum verður lokað og hámarksfjöldi í verslunum verður takmarkaður enn frekar. Reglurnar gilda í þrjár vikur. Allt skólastarf verður enn fremur fært á netið fram yfir páska ef frá er talið leikskólastarf. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra var brúnaþung þegar hún ávarpaði blaðamenn í Hörpu síðdeg- is í gær. Hún væri ekki komin til að færa gleðifregnir. Katrín sagði nauð- synlegt að stíga fast til jarðar til að vinna bug á útbreiðslu veirunnar. Ekki brugðist nógu hratt við seinast Undir þetta tekur Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. Í samtali við mbl.is segir hann að síðasta bylgja faraldursins hafi sýnt að ekki sé vænlegt að fara hægar í sakirnar til að sporna gegn útbreiðslu nýrrar bylgju. „Það eru meiri líkur á því að okkur takist vel upp ef við gerum þetta snemma og getum þá væntanlega slakað á fyrr,“ segir Þórólfur. Hann bendir þó á að þau afbrigði veirunn- ar sem nú ríða húsum, breska og brasilíska, séu talin meira smitandi en önnur auk þess sem breska af- brigðið virðist dreifast betur á milli barna. Innlagnir á spítala tvöfalt algengari Rannsóknir erlendis hafa sýnt að breska afbrigði veirunnar er mun meira smitandi en flest önnur af- brigði og norskar rannsóknir sýna að spítalainnlagnir eru meira en tvöfalt algengari hjá öllum aldurshópum, einnig hjá börnum eldri en sex ára. Þetta er meðal þess sem fram kom í minnisblaði sóttvarnalæknis sem sent var ráðherra í snatri í gær áður en hertar reglur voru kynntar. Tillögum Þórólfs var að mestu fylgt, en þó ákvað ráðherra að veita veitingastöðum og trúfélögum rýmri fjöldatakmarkanir en Þórólfur hafði lagt til. Þá eru börn fædd 2015 eða síðar undanskilin fjöldatakmörkunum þrátt fyrir að sóttvarnalæknir hafi lagst gegn því. Nándarregla verður áfram 2 metrar og reglur um grímuskyldu óbreyttar Sem fyrr eru börn fædd 2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en falla undir fjölda- og nálægðar- takmarkanir. Börn í leikskólum eru undanþegin 2 metra reglunni og fjöldatakmörkunum. Almennar fjöldatakmarkanir: 10 manns Takmarkanir ná til allra sem fæddir eru 2014 eða fyrr Trú- og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum sem skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri Tveggja metra nándarregla og grímuskylda Hámarksfjöldi í erfidrykkjum, fermingarveislum og sambærilegum viðburðum er 10 manns Sund- og baðstaðir lokaðir Heilsu- og líkamsræktar- stöðvar lokaðar Verslanir mega taka á móti 5 einstaklingum á hverja 10 m2 að hámarki 50 manns Ökunám og flugnám með kennara óheimilt Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna, sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra eða þar sem hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs búnaðar, eru óheimilar Starfsemi hársnyrtistofa, snyrtistofa og sambærileg starfsemi er áfram heimil Vínveitingar skal bera til sitjandi viðskiptavina. Heimilt er að taka á móti nýjum gestum til kl. 21.00 Skemmtistaðir, krár, spilasalir og spila- kassar lokaðir Veitingastaðir mega hafa opið til kl. 22, með að hámarki 20 gesti í rými sem allir skulu skráðir og fá afgreiðslu í sæti sem eru númeruð Sviðslistir og sambærileg starfsemi, svo sem bíó, er óheimil Grunn-, framhalds-, tónlistar- og háskólar eru lokaðir frá og með í dag og þar til hefðbundið páskafrí tekur við 17 ný innanlandssmitgreindust sl. sólarhring 75 eru nú meðvirkt smit og í einangrun Fjöldi smita frá 30. júní 2020 Heimild: covid.is Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum júlí ágúst september október nóvember desember janúar febrúar mars Fullbólusettir: 19.887 einstak-lingar Helstu breytingar á samkomutakmörkunum 454 einstaklingareru í sóttkví 1.186 einstaklingareru í skimunarsóttkví 20 starfsmennmega vera í sama rými og viðskiptavinir Tveggja metra nándarregla og grímuskylda Skellt í lás í þrjár vikur - Fjöldatakmarkanir miðast við 10 manns - Sundlaugum, líkamsræktarstöðvum og skemmtistöðum lokað - Fjarkennsla fram yfir páska - Nauðsynlegt að stíga fast til jarðar, segir forsætisráðherra Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ný bylgja Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og þríeyki almannavarna boðuðu til blaðamannafundar í Hörpu til að kynna hertar aðgerðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.