Morgunblaðið - 25.03.2021, Blaðsíða 20
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Laugardagur Fyrsta sólarhringinn byrjaði hraunið að teygja anga sína um Geldingadali og
hafði ekki enn kæft grasi grónar grundir og læk sem rann þarna um. Nú er allt komið á kaf.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Málverk Séð beint ofan í stóra gíginn og glittir í þá minni til hliðar, gegnum bláa móðuna, mettaða af brennisteinsdíoxíði og öðrum hættulegum gastegundum.
Morgunblaðið/Eggert
Upphafið Gosið hafði aðeins mallað í fjóra tíma þegar ljósmyndari Morgunblaðsins fór í flug
með þyrlu Landhelgisgæslunnar á miðnætti aðfaranætur laugardagsins. Tilkomumikil sjón.
ELDGOS Í FAGRADALSFJALLI20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
Aflögun sem varð á yfirborðinu þegar
kvikugangurinn þrengdi sér upp í jarð-
skorpuna við Fagradalsfjall hefur ekki
gengið til baka. Kristín Jónsdóttir, jarð-
eðlisfræðingur og hópstjóri nátt-
úruvárvöktunar hjá Veðurstofu Ís-
lands, segir að það sé eðlilegt því þar
hafi orðið opnun og kvikugangurinn
fyllt í hana.
Páll Einarsson, jarðeðlisfræðingur
og prófessor emeritus, sagði að svipað
hefði gerst fyrir eldgosið á Fimmvörðu-
hálsi 2010. Innskotslag þandi fjallið út
og það gekk ekki til baka. Þegar fór að
gjósa í toppnum seig fjallið þar en ekki
á Fimmvörðuhálsi. Páll telur líklegt að
kvikugangurinn við Fagradalsfjall sé að
mestu storknaður. Kristín telur of
snemmt að fullyrða að um dyngjugos sé
að ræða í Geldingadölum. „Það eru
bara nokkrir dagar síðan gosið byrjaði,
ætli við getum ekki rætt þetta eftir
nokkra mánuði,“ sagði Kristín. Hún
sagði ekki víst að þetta yrði stórt gos.
„Ef dampurinn dettur niður í því getur
pípan stíflast,“ sagði hún.
Páll sagði að svo virtist sem gosrásin
væri orðin nokkuð stöðug. Hún gæti
mögulega gosið nokkuð lengi ef engin
truflun yrði og nóg kvika væri til. Hann
sagði að héldi gosið áfram nógu lengi
væri hugsanlegt að þar byggðist upp
dyngja.
Mikið hefur dregið úr jarðskjálftum
á Reykjanesskaga. Í fyrradag mældust
þar um 170 skjálftar og í gærmorgun
höfðu orðið um 100 skjálftar frá mið-
nætti. Kristín taldi að áfram mætti bú-
ast þar við litlum skjálftum. „En það
eru minni líkur á stærri jarðskjálftum
sem finnast í byggð,“ sagði hún.
Páll sagði að nú yrðu jarðskjálftar
aðallega á fjórum svæðum á Reykja-
nesskaga. Þar hafa orðið kvikuinnskot
undanfarið. Það er við Reykjanes,
Svartsengi, Fagradalsfjall og í Móháls-
adal á Krýsuvíkursvæðinu þar sem land
reis í sumar.
„Þetta er ekki búið á Reykjanes-
skaga þótt þetta gos hafi komið upp,“
sagði Páll. gudni@mbl.is
Gangur líklega storknaður að mestu
- Of snemmt að fullyrða um dyngjugos í Geldingadölum - Mögulega getur gosið nokkuð lengi
- Dregið hefur úr jarðskjálftum - Minni líkur eru á stórum jarðskjálftum sem finnast í byggð
Morgunblaðið/Eggert
Eldgos Bráðin kvika vall upp úr strompunum í Geldingadölum í gær.