Morgunblaðið - 25.03.2021, Síða 37
FRÉTTIR 37Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
SVEPPUR (bleikur, blár) - Verð 9.900,-
SVEPPUR (silfur, gull, kopar) - Verð 10.900,-
KANÍNA - Verð 11.900,-
HEICO lampar
í barnaherbergið
Viking Spectrum
Stærðir: 25-35
Verð: 13.995.-
Viking Spectrum
Stærðir: 25-35
Verð: 13.995.-
VATNSHELDIR VIKING GÖTUSKÓR
Viking Bislett
Stærðir: 34-40
Verð: 16.995.-
Viking Bislett
Stærðir: 34-40
Verð: 16.995.-
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
Egypsk stjórnvöld reyndu í gær að
losa flutningaskipið MV Ever Given
frá Taívan eftir að það festi sig í
Súez-skurðinum. Reyndu drátt-
arbátar að toga skipið á flot, en auk
þess voru skurðgröfur notaðar til
þess að losa jarðveg þar sem skipið
strandaði.
Skipið, sem er 400 metra langt og
59 metra breitt, var á leiðinni til
Rotterdam frá Kína þegar það lenti
í sandstormi sem byrgði skipstjóra
þess sýn. Strandaði skipið þannig
að það þveraði skurðinn nánast, og
opnuðu Egyptar því fyrir ýmsa
hliðarskurði, sem ekki höfðu verið
nýttir í áraraðir til þess að liðka
fyrir skipaumferð.
Þrátt fyrir það óttast sérfræð-
ingar í vöruflutningum að þeir
muni nú tefjast um marga daga,
þar sem skurðurinn er mikilvæg líf-
æð.
Ekki var búið að losa skipið þeg-
ar blaðið fór í prentun, en í versta
falli mun þurfa að sækja krana til
þess að aflesta það og létta þannig.
Slíkt ferli gæti tekið nokkrar vikur.
AFP
Súez-skurðurinn Á þessari gervihnattamynd sést hvernig skipið hefur fest sig í skurðinum, en óttast er að strandið muni valda töfum á flutningum.
Risaskip
stíflaði Sú-
ez-skurðinn
Ljóst var í gær að Likud-flokkur
Benjamíns Netanyahu, forsætisráð-
herra Ísraels, hefði fengið flest at-
kvæði í þingkosningunum sem fram
fóru þar í landi í fyrradag, en enginn
skýr þingmeirihluti var þó í kortunum
eftir að niðurstöður lágu fyrir.
Þetta voru fjórðu kosningarnar í
Ísrael á síðustu tveimur árum, en von-
ast var til að kosningarnar nú myndu
binda endi á pólitíska ólgu sem ríkt
hefur síðustu árin. Svo reyndist hins
vegar ekki, þar sem bandalag flokka,
sem heitið hefur því að starfa ekki
með Netanyahu, fékk einnig álíka
mörg þingsæti og Likud.
Netanyahu hefur setið lengst allra
á stóli forsætisráðherra í Ísrael, eða í
12 ár. Snerist kosningabarátta hans
að miklu leyti um þann árangur sem
landið hefur náð í baráttunni við kór-
ónuveiruna, en Ísraelsmenn hafa náð
að bólusetja að fullu ríflega helming
allra sem búa í landinu.
Þá lagði Netanyahu áherslu á feril
sinn við að verja hagsmuni Ísraels út
á við, og var þar mikil áhersla lögð á
þann árangur sem náðist undir lok
síðasta árs, þegar nokkur arabaríki
tóku upp stjórnmálasamband við
landið í fyrsta sinn.
Það dugði Netanyahu þó ekki, þar
sem hægriflokkabandalag hans náði
einungis 52 þingsætum af þeim 61
sem þarf til að fá meirihluta á ísr-
aelska þinginu, en andstæðingar hans
fengu 54 þingsæti.
Yair Lapid, leiðtogi stjórnarand-
stöðuflokksins Yesh Atid, sem skil-
greinir sig til miðju, var vongóður um
að sér gæti tekist að mynda ríkis-
stjórn án þátttöku Netanyahus, en
allt eins þótti líklegt vegna úrslitanna
að fimmtu kosningarnar frá árinu
2019 yrðu haldnar í náinni framtíð.
Stefnir í stjórn-
arkreppu áfram
- Enginn skýr sigurvegari í Ísrael
AFP
Ísrael Netanyahu og Sara kona
hans sjást hér ávarpa samflokks-
menn sína á kosninganóttina.