Morgunblaðið - 25.03.2021, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Í Þýskalandivarð óvenju-leg atburða-
rás í gær sem
sumir þýskir miðl-
ar telja jafnvel
sögulega. Angela
Merkel kanslari steig fram á
blaðamannafundi og lýsti því
yfir að hún hefði gert mistök
og að hún ein, stöðu sinnar
vegna, bæri ábyrgð á þeim
mistökum.
Mistökin fólust í því að
Merkel hafði boðað „páskaró“
sem átti að felast í því að nær
öllu yrði lokað í landinu yfir
páskana. Þetta áttu að verða
hörðustu sóttvarnaaðgerðir
frá upphafi þeirra hörðu sótt-
varnaaðgerða sem Þýskaland
hefur beitt undanfarið ár í
baráttunni við kórónuveiruna.
Blaðið Der Spiegel velti því
upp á vef sínum í gær að hin
harkalegu áform hefðu verið
umdeilanleg lagalega og
Merkel hefði sætt gagnrýni
fyrir hve langt var gengið.
Þetta varð til þess að Merkel
endurskoðaði ákvörðunina,
sem þó hafði verið tekin eftir
fund með forsætisráðherrum
allra sambandsríkja Þýska-
lands, og baðst afsökunar á
mistökunum, eins og áður seg-
ir.
En það eru eflaust ekki að-
eins viðbrögðin við þessari til-
teknu ákvörðun sem hreyfðu
við Merkel og fengu hana til
að skipta um kúrs, þar hafði
eflaust sitt að segja að efa-
semdir fara vaxandi um
forystumenn innan Evrópu-
sambandsins og ríki þess, ekki
síst forysturíkið Þýskaland og
kanslara þess, þegar kemur að
sóttvarnamálum og bólusetn-
ingum.
Í Þýskalandi hafa þær radd-
ir heyrst að með afsökunar-
beiðni sinni hafi Merkel slegið
vopnin úr höndum gagnrýn-
enda sinna, sem ella hefðu
gert henni lífið leitt og jafnvel
óbærilegt hefðu hinar hörðu
aðgerðir náð fram að ganga.
Aðrir velta því upp hvort við-
snúningurinn hafi verið póli-
tísk mistök og veikleikamerki.
Tíminn kann að leiða þetta í
ljós en afsökunarbeiðni kansl-
arans er einnig umhugs-
unarverð í ljósi þess að sama
dag og Merkel kynnti viðsnún-
ing sinn og baðst afsökunar
var einnig haldinn blaða-
mannafundur hér á landi. Þar
kynntu forsætisráðherra og
heilbrigðisráðherra mjög
hertar aðgerðir yfir páskana,
nokkurs konar íslenska
„páskaró“, og voru fjarri því
afsakandi. Forsætisráðherra
sagði góðan árangur hafa
náðst í sóttvarnaaðgerðum og
að við hefðum þurft að beita
mun mildari að-
gerðum en erlend-
is hefði verið gert,
og nefndi út-
göngubann er-
lendis sem dæmi.
Vandinn er hins
vegar sá, þó að ráðamenn hér
vilji lítt ræða hann, hvað þá
biðjast á honum afsökunar, að
Ísland er í afar viðkvæmri
stöðu vegna þeirra ákvarðana
sem hér hafa verið teknar um
bólusetningar.
Í Ísrael er búið að bólusetja
58% þjóðarinnar að minnsta
kosti einu sinni og 52% eru að
fullu bólusett. Í Bretlandi eru
þessi hlutföll 43% og tæp 4%,
en Bretar hafa lagt áherslu á
að koma fyrri skammti bólu-
setningar til sem flestra en
seinka á móti seinni skammt-
inum til að hraða því að ná upp
hjarðónæmi. Með sama
áframhaldi, sem Evrópusam-
bandið gerir að vísu sitt um
þessar mundir til að þvælast
fyrir, er þess skammt að bíða
að hjarðónæmi náist í Bret-
landi. Bandaríkin hafa bólu-
sett fjórðung þjóðarinnar einu
sinni og 14% að fullu.
Þá má nefna Ungverjaland,
sem hefur þrátt fyrir veru
sína í Evrópusambandinu
reynt að brjótast undan bólu-
setningaroki sambandsins, og
hefur bólusett 17% þjóðar-
innar einu sinni og rúm 5% að
fullu. Alllangt að baki koma
önnur ríki ESB og Ísland, sem
hengdi sig í bólusetningu
sambandsins og sýpur nú
seyðið af því. Hér á landi er
aðeins búið að bólusetja 11%
þjóðarinnar einu sinni og tæp
5% að fullu. Tímasetningar
um bólusetningu meirihluta
eða þorra þjóðarinnar, og þar
með að ná upp hjarðónæmi,
eru í besta falli þokukenndar
og ómarktækar.
Þetta sleifarlag hér á landi,
sem enn er alveg óútskýrt svo
vit sé í, þýðir að Íslendingar
munu því miður þurfa að búa
lengi enn við umfangsmiklar
sóttvarnaaðgerðir og sífellda
hættu á að upp komi smit sem
breiði úr sér. Það felur ekki
aðeins í sér stöðuga hættu á
hertum aðgerðum eins og nú
hafa verið kynntar, heldur
einnig að Íslendingar munu
ekki geta nýtt sér það til fulls
að Bretar og Bandaríkjamenn
hafa náð góðum árangri og
stefna hraðbyri í átt að hjarð-
ónæmi.
Allt hlýtur þetta að vera á
ábyrgð íslenskra ráðamanna
þó að þeir hafi ekki tekið sama
pól í hæðina og Angela Merk-
el, sem taldi embætti sitt kalla
á þann óvenjulega blaða-
mannafund sem hún hélt í
gær.
Angela Merkel tekur
ábyrgð á klúðri
vegna kórónu-
veiruaðgerða}
Ólíkt hafast þær að
Á
síðustu dögum hafa hópsýkingar
af völdum breska afbrigðis kór-
ónuveirunnar því miður blossað
upp. Afbrigðið er mun meira smit-
andi en önnur afbrigði veirunnar
og veldur líka meiri einkennum hjá börnum en
önnur afbrigði veirunnar. Ríkisstjórnin kynnti
því í gær hertar sóttvarnaaðgerðir sem byggj-
ast á tillögum sóttvarnalæknis og hafa það
markmið að draga úr útbreiðslu veirunnar eins
og kostur er. Niðurstaða okkar er að með því
að grípa inn með þessum ákveðna hætti núna
þýði það vonandi að aðgerðirnar þurfi að gilda í
skemmri tíma í heild en ella.
Í meginatriðum er um að ræða sömu reglur
og tóku gildi 31. október á liðnu ári og gáfust
vel til að kveða niður þriðju bylgju faraldursins.
Nándarregla verður áfram 2 metrar og reglur
um grímuskyldu óbreyttar. Sem fyrr verða börn fædd
2005 og síðar undanþegin grímuskyldu en falla undir
fjölda- og nálægðartakmarkanir.
Þær aðgerðir sem nú hafa tekið gildi felast í því að al-
mennar fjöldatakmarkanir miðast við 10 manns og ná til
allra sem fæddir eru 2015 eða fyrr, trú- og lífsskoð-
unarfélög mega taka á móti 30 gestum við athafnir og há-
marksfjöldi í erfidrykkjum, fermingarveislum og sam-
bærilegum viðburðum er nú 10 manns. Sund- og baðstaðir
verða að hafa lokað og það sama gildir um líkamsrækt-
arstöðvar. Íþróttir inni og úti, jafnt barna og fullorðinna,
sem krefjast meiri nálægðar en 2 metra, eða þar sem
hætta er á snertismiti vegna sameiginlegs
búnaðar, eru óheimilar. Sviðslistir og sam-
bærileg starfsemi, svo sem bíó, er óheimil, og
það sama á við um skemmtistaði, krár, spila-
sali og spilakassa.
Veitingastaðir mega hafa opið til kl. 22, með
að hámarki 20 gesti í rými sem allir skulu
skráðir og fá afgreiðslu í sæti sem eru núm-
eruð. Vínveitingar skal bera til sitjandi við-
skiptavina. Verslanir mega taka á móti 5 ein-
staklingum á hverja 10 fermetra og að
hámarki 50 manns. 20 starfsmenn mega vera í
sama rými og viðskiptavinir. Starfsemi hár-
snyrtistofa, snyrtistofa og sambærileg starf-
semi verður áfram heimil.
Tekin hefur verið ákvörðun um að hefja að
nýju bólusetningu með bóluefni Astra Zeneca.
Hér á landi munum við bólusetja þá sem eru
70 ára og eldri með efninu og þessi ákvörðun mun leiða til
þess að á næstu tveimur vikum munum við bæði ná að
bólusetja alla heilbrigðisstarfsmenn og alla þá sem eru 70
ára og eldri.
Þessar aðgerðir sem nú hafa verið kynntar eru víð-
tækar og munu reyna á okkur öll. Staðan er sem betur fer
sú að nú erum við búin að koma mörgu af okkar viðkvæm-
asta fólki í skjól með bólusetningum og það skiptir máli.
Við höfum gert þetta áður og við getum gert þetta aftur,
saman.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Við getum þetta saman
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
SVIÐSLJÓS
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
G
ervigreind er að umbylta
fjöldamörgum sviðum
samfélagsins og er nú
unnið á vegum forsætis-
ráðherra að stefnumörkun um gervi-
greind. Fyrir skömmu birti ráðu-
neytið vinnuskjal með uppleggi
nefndar að stefnu Íslands um gervi-
greind í samráðsgátt og kallaði eftir
samráði og viðbrögðum, sem ekki
létu á sér standa ef marka má fjölda
umsagna sem bárust.
Þá stendur fyrir dyrum að gefa
þjóðinni kost á að kynna sér gervi-
greind á sérstöku námskeiði. Í
nýútkominni fjármálaáætlun segir
að ríkisstjórnin hafi ákveðið að færa
íslensku þjóðinni að gjöf opið vef-
námskeið um gervigreind sem muni
líta dagsins ljós í marsmánuði.
Ósennilegt er þó að takist að
gangsetja námskeiðið fyrir næstu
mánaðamót en samkvæmt upplýs-
ingum Vigdísar Jóhannsdóttur,
markaðsstjóra á verkefnastofu um
Stafrænt Ísland, vinna forsætis- og
fjármálaráðuneytið í sameiningu að
þessu verkefni fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar. Um er að ræða net-
námskeið sem verður opið öllum og
er stefnt að formlegri kynningu þess
á blaðamannafundi eftir páska.
Ríkisstjórnin kynnti í nóvember
sl. hugmyndina um að ráðast í
fræðsluátak fyrir almenning um
gervigreind í samræmi við aðgerða-
áætlun fyrir Ísland í fjórðu iðnbylt-
ingunni. Er markmiðið að hvetja
fólk til að nýta sér þau tækifæri sem
felast í gervigreind í nærumhverfi
sínu, á vinnustað eða annars staðar.
„Námskeiðið er hannað til að
vera aðgengilegt flestum, óháð aldri,
starfsreynslu eða öðru. Kynning á
áhrifum fjórðu iðnbyltingarinnar og
helstu tækni sem henni tengjast var
ein af aðgerðum sem skilgreindar
voru í aðgerðaáætlun fyrir Ísland í
fjórðu iðnbyltingunni. Áhersla í
námskeiðinu, sem er að finnskri
fyrirmynd, er á að efla grunn-
skilning almennings á gervigreind
og tengdri tækni,“ segir í umfjöllun
um námskeiðið í fjármálaáætluninni.
Innleiðing gervigreindar er nú
þegar að þróast í atvinnulífinu, svo
sem í verslun og þjónustu og benda
Samtök atvinnulífsins á í umsögn við
stefnu forsætisráðherra að hún hafi
tekið mikinn kipp á seinasta ári þeg-
ar finna þurfti nýjar samskipta- og
söluleiðir vegna takmarkana í kór-
ónuveirufaraldrinum. Gervigreind
hefur víðar haslað sér völl. Um 18%
ríkisstofnana nýta nú þegar gervi-
greind að einhverju marki sam-
kvæmt nýlegri könnun.
Í umsögn VR er bent á að
tryggja þurfi að innleiðing þessarar
tækni skapi ekki samfélagslegan
óstöðugleika og starfsfólk á vinnu-
markaði þurfi að fá hvatningu og
tækifæri til að læra um gervigreind
og möguleika hennar. „Verði gervi-
greind til þess að störfum fækki
verulega getur skapast hér mikið
ójafnvægi og fyrirséð hætta á sam-
félagslegum óróa. Jafnframt beri að
leggja á það áherslu að fyrirtæki sjái
sér hag í því að halda ráðningar-
sambandi þannig að innleiðing
gervigreindar leiði ekki sjálfkrafa til
fækkunar starfa og hvatar séu
til staðar til að stuðla að endur-
menntun og þjálfun,“ segir VR.
Grunnur þessa fræðsluátaks er
notkun þekkts gervigreindar-
námskeiðs sem þróað hefur verið af
háskólanum í Helsinki og finnsku
ráðgjafarfyrirtæki. Hafa nokkrar
þjóðir þegar innleitt það. Hér á landi
er verkefnið unnið í samstarfi við
Verkefnastofu um stafrænt Ísland,
Háskóla Íslands og Háskólann
í Reykjavík, og verður til
tveggja ára.
Þjóðinni boðið á nám-
skeið um gervigreind
AFP
Alþjóðaráðstefna um gervigreind Nú er hafin umræða hér um hvaða
gildi samfélagið á að hafa að leiðarljósi við innleiðingu tækni gervigreindar.
„Þeir sem vinna með beinum
hætti að þróun og notkun gervi-
greindar þurfa að hafa skýr
lög og reglur til að styðjast
við, en það þarf einnig staðla,
samfélagsleg viðmið og efna-
hagslega hvata til þess að
stuðla að aukinni virðingu fyrir
mannréttindum,“ segir í ítar-
legri umsögn Þroskahjálpar um
stefnuna um gervigreind. Benda
landssamtökin m.a. á að dæmi
séu um innbyggða mismunun
gervigreindar sem geti ýtt undir
ójafnrétti og fordóma. Andlits-
greiningarbúnaður geti t.d. fest
í sessi mismunun gagnvart fólki
með dekkri húðlit og dóms- og
löggæslukerfi nýti sér gervi-
greind sem byggist á fordómum
til þess að meta líkurnar á því
að sakborningur brjóti af sér
aftur, svörtu fólki í óhag. Hol-
lenskur dómsstóll hafi t.d. talið
að eftirlitskerfi með bótaþegum
hafi verið brot á mannrétt-
indum.
Innbyggð
mismunun
TÆKNI OG MANNRÉTTINDI