Morgunblaðið - 25.03.2021, Síða 39

Morgunblaðið - 25.03.2021, Síða 39
39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 Gönguleið Leiðin frá Suðurstrandarvegi að eldgosinu í Fagradalsfjalli er orðin vel sjáanleg í umhverfinu eftir að hún var stikuð fyrr í vikunni. Mosinn skemmist þá ekki meira á meðan. Eggert Risaverkefni (megaprojects) kallast þau verkefni sem einkenn- ast af mikilli upphafsfjárfestingu, háu flækjustigi í skipulagi og lang- varandi áhrifum á hagkerfi, um- hverfi og samfélag. Risaverkefnum fjölgar á alþjóðavísu og ná til jafn- fjölbreytilegra viðfangsefna og geimferða – eins og Alþjóðlegu geimstöðvarinnar og afþreyingar – eins og Dubailands. Flest risaverk- efnin víkja samt að fjárfestingum í innviðum samfélaga, svo sem sam- göngum, orkukerfum og við- brögðum vegna breyttra aðstæðna svo sem loftslagsbreytinga og tækninýjunga. Þegar fréttir berast af ferjunni Baldri vélarvana um hávetur á miðjum Breiðafirði eða að grunn- skólabörnin komist ekki inn í raf- rænt prófatökukerfi eru það í raun og veru fréttir af ófullburða inn- viðum. Fram undan eru mörg risa- verkefni á sviðum samgangna, sjálfbærni, umhverfismála, orku- skipta, nýsköpunar, tæknibreyt- inga og svo má áfram telja. Ef þau takast vel mun þjóðin uppskera aukna skilvirkni og betra samfélag. Ef illa fer geta þessi verkefni á hinn bóginn orðið umtalsverður baggi og haft neikvæð áhrif á hagsæld og efnahagslegar framfarir til lengri tíma. Á vegum MPM-námsins og rann- sóknasetursins CORDA, bæði við Háskólann í Reykjavík og hjá Verk- fræðingafélagi Íslands, var 17. mars síðastliðinn haldin mjög vel sótt mál- stofa sem höfundar þessa pistils telja að hafi verið mikilvægt framlag til að skilja betur þær áskoranir sem Ísland stendur frammi fyrir. Þarna stigu á stokk tveir heimskunnir fræðimenn, þeir Alfons van Marre- vijk og Werner Rothengatter, sem varið hafa langri og farsælli starfs- ævi til að rannsaka eðli og umhverfi risaverkefna. Werner Rothengatter er einn af höfundum bókarinnar „Megaprojects and Risk - An An- atomy of Ambition“ sem vakti heimsathygli þegar hún kom fyrst út árið 2003. Báðir þessir prófessorar lögðu áherslu á hve miklu skiptir að und- irbúa verkefnin vel. Öll stjórnsýsla þarf að vera fyrsta flokks, samskipti þurfa að byggjast á trausti og hag- kvæmniathuganir þurfa að miðast við að þeir sem í hlut eiga viti fyrir fram nákvæmlega eftir hverju er sóst, bæði fjárhagslega og í formi þeirra gæða sem verkefnið á að skila til samfélagsins. Fram kom að fyr- irkomulag fjármögnunar er gíf- urlega mikilvægt og þarf að liggja fyrir áður en byrjað er á verkinu. Algengast er að stuðst sé við svo- nefnt PPP-fyrirkomulag (private public partnership), þar sem fjár- festar og opinber fyrirtæki deila áhættunni og ávinningnum. Til að PPP-fyrirkomulagið sé skilvirkt og hagkvæmt þarf öfluga samn- ingastjórnun og ekki síst öfluga áhættustjórnun. Báðir bentu þeir á hve mikilvægt er að virkja saman krafta háskólanna, atvinnulífsins og stjórnsýslunnar eins og gert hefur verið víða annars staðar með góðum árangri. Þeir Rothengatter og Marrevijk tala inn í aðstæður á Íslandi án hlið- stæðu þegar kemur að opinberum innviðafjárfestingum í næstu fram- tíð. Því verður að spyrja hvort ís- lensk stjórnsýsla sé tilbúin. Munu fjárfestar geta treyst því að und- irbúningur verkefna sé með þeim hætti sem þeir Rothengatter og Marrevijk telja nauðsynlega for- sendu þess að vel fari? Einn kunn- asti greinandi risaverkefna í heim- inum er danski Oxford-prófessorinn Bent Flyvbjerg. Flyvbjerg hefur bent á það sem hann kallar „risa- verkefnis-mótsögnina“ (megaproj- ect paradox). Mótsögnin felst í því að þrátt fyrir að slík verkefni lýsi stórhug og metnaði þeirra sem ýttu þeim úr vör er algengara en ekki að þau snúist upp í andhverfu sína: Kostnaður fari fram úr áætlun, hag- ræn áhrif séu of- eða vanmetin og áhættan reynist of mikil miðað við ávinninginn. Í stað þess að ryðja brautina fyrir efnahagslegar fram- farir eins og lofað var íþyngja slík verkefni ríkissjóði og öðrum þeim sem tóku áhættuna. Höfundar þessarar greinar telja að slíkt megi ekki gerast. Fyrirlestrar þeirra Werner Rot- hengatter og Alfons van Marrevijk eru aðgengilegir á vef Verkfræð- ingafélags Íslands og MPM-námsins á Íslandi. Eftir Helga Þór Ingason, Svönu Helen Björnsdóttur og Þórð Víking Friðgeirsson » Fram undan eru mörg risaverkefni á sviðum samgangna, sjálfbærni, umhverf- ismála, orkuskipta, nýsköpunar og tækni- breytinga sem mik- ilvægt er að takist vel. Helgi Þór Ingason Höfundar eru verkfræðingar. Tími risaverkefna á Íslandi er runninn upp Þórður Víkingur Friðgeirsson Svana Helen Björnsdóttir Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi standa einarðlega vörð um reglur, sem tryggt hafa meiri hagkvæmni í rekstri íslensks sjávar- útvegs en þekkist ann- ars staðar. Sú verð- mætasköpun sem þetta kerfi hefur skapað skiptir miklu máli fyrir efnahagslíf landsins. Hagsmunir heildarinnar og landsbyggðarinnar mæla eindregið með því að henni verði ekki raskað. Ágreiningur okkar við Samtök fyr- irtækja í sjávarútvegi snýst um ann- að. Þau telja að fiskimiðin séu eina auðlindin í þjóðareign þar sem hag- kvæmni og réttlæti geti ekki farið saman. Hér erum við á öndverðum meiði. Lykillinn er enginn galdrastafur Lykillinn að þeirri lausn er enginn galdrastafur. Hann er einfaldlega sá sami og notaður er til að tryggja hag- kvæmni og réttlæti við nýtingu allra annarra náttúruauðlinda, bæði hér heima og annars staðar. Þessu tvöfalda markmiði má sem sagt ná með því að veita þröngum hópi einkarétt á auðlindum til nýt- ingar í tiltekinn tíma gegn gjaldi. Einkaleyfið felur í sér takmörkuð eignarréttindi. Sanngjarnt gjald fyrir slík réttindi endurspeglast síðan í verði þeirra. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að gera sjávarútvegsmálin að einu helsta deiluefni næstu kosninga. Hún hefur fallist á þá skoðun Samtaka fyr- irtækja í sjávarútvegi að fiskistofnar við Ísland séu eina auðlindin í veröld- inni sem ekki sé unnt að nýta þannig að saman fari hagkvæmni og réttlæti. Tvívegis hafa flokkar ríkisstjórn- arinnar á þessu kjörtímabili fellt til- lögur frá Viðreisn og fleiri flokkum um að tímabinda nýtingarréttinn í al- mennum lögum. Stefnu SFS skal frekar fylgt. Ríkisstjórnin velur ófrið En kosningastríðshanskanum var þó ekki kastað fyrr en formaður VG flutti tillögu að nýju stjórnarskrár- ákvæði um auðlindir í þjóðareign. Þar er ekki gert ráð fyrir grunnreglunni um tímabindingu nýtingarréttar. Í stað þess ætlar ríkisstjórnin að veita almenningi falska öryggiskennd um sjálfa þjóðareignina. Nýja stjórnarskrárákvæðið við- heldur áfram þeirri sérreglu í al- mennum lögum að einkaréttur til nýtingar fiskimiðanna sé ótímabund- inn. Meðan öll önnur einkaréttindi eru eðlilega háð mismunandi tíma- mörkum. Þegar festa á óréttlætið í sessi með nýju stjórnarskrárákvæði af þessu tagi er óhjákvæmilegt að kjósendur fái að segja álit sitt. Sérregla um áframhaldandi ranglæti við úthlutun aflaheimilda er orðið að meginmáli í komandi kosningum. Stjórnarskrárákvæði sem hnekkir ekki ótímabundnum einkarétti al- mennra laga er ekki svar við kröfum almennings um réttlæti. Það er bara jákvætt svar við beiðni Samtaka fyr- irtækja í sjávarútvegi um að raska ekki þeirra sérhagsmunum. Ætla kjósendur að veita núverandi ríkisstjórnarflokkum umboð til að festa þessa reglu í stjórnarskrána? Stefna Viðreisnar Stefna Viðreisnar í þessum efnum er mjög skýr. Í fyrsta lagi viljum við tryggja í stjórnarskrá að meginreglan um eðli- legt gjald fyrir tímabundinn einka- rétt nái til allra auðlinda þjóðarinnar. Það tryggir réttlæti. Í öðru lagi viljum við að í almenn- um lögum verði kveðið á um tíma- lengd einkaréttarins í sjávarútvegi eins og í öðrum auðlindagreinum. Við höfum talað um langan tíma, 20 til 25 ár. Það tryggir nauðsynlegan var- anleika. Í þriðja lagi teljum við að gjaldið eigi að endurspegla verðmæti einka- réttarins. Til að finna eðlilegt endur- gjald er markaðurinn besta lausnin. Hann stuðlar að auknu gegnsæi og minni hættu á að auðlindagjald ráðist af hagsmunaþrýstingi og pólitískum tengingum. Gerðir verða einkarétt- arlegir samningar um 4 til 5% veiði- heimilda á hverju ári. Með þessu móti má tryggja nauðsynlegan stöð- ugleika. Í fjórða lagi viljum við varðveita gildandi reglur um framsal aflaheim- ilda. Þær eru lykillinn að hagkvæmn- inni. Í fimmta lagi viljum við nýta hluta af auðlindagjaldinu til nýsköpunar at- vinnulífs á landsbyggðinni. Hér höf- um við nefnt innviðasjóð. Fjölmörg dæmi eru um það á undanförnum ár- um hvernig hreyfanleiki aflaheimilda hefur kippt efnahagslegum grund- velli undan heilu byggðarlögunum. Það er því eðlilegt og sanngjarnt að hluta hagnaðarins af sameiginlegri auðlind sé varið til að bæta það. Málamiðlun hafnað Við gerum okkur grein fyrir að gera má tímabundna samninga með föstu gjaldi þó að það sé flóknara en markaðslausnin. Á þessu kjörtímabili buðum við upp á slíka málamiðlun ásamt fleiri flokkum á Alþingi. Skemmst er frá því að segja að ríkisstjórnin kaus að hafna því boði. Einnig lögðum við til málamiðlun, sem styrkt hefði smábátana við út- hlutun varanlegrar aflahlutdeildar í makríl. Henni var líka hafnað. Hvers vegna hafnaði ríkisstjórnin öllum málamiðlunum? Hverra hags- muna er hún að gæta? Það er kominn tími á breytingar Aðalatriðið er þetta: Með engum rökum er unnt að halda því fram að réttlæti af þessu tagi og hagkvæmni fari ekki saman. Meðan ríkisstjórnin viðurkennir ekki þessa almennu grundvallarkröfu um tímabundinn einkarétt, sem nýt- ing allra annarra auðlinda í þjóð- areign byggist á, er hætt við var- anlegum ófriði um sjávarútveginn. Það er kominn tími til að breyta því. Þar eru ekki bara hagsmunir heildarinnar sem eru í húfi, heldur einnig útgerðarinnar og ekki síður alls fólksins á landsbyggðinni. Eftir Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur og Daða Má Kristófersson »Lykillinn að réttlæti og hagkvæmni er enginn galdrastafur. Hann er sá sami og við nýtingu allra annarra náttúruauðlinda; hér heima sem annars staðar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Höfundar eru formaður og varafor- maður Viðreisnar. Dr. Daði Már Kristófersson Réttlæti og hagkvæmni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.