Morgunblaðið - 25.03.2021, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Úrval aukahluta:
Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur,
Minniskort, USB lyklar og fleira
VIÐ GERUM VIÐ
allar tegundir síma,
spjaldtölva, tölva og dróna
Körfur frá
25.000 kr.
Startpakkar frá
5.500 kr.
og margt
fleira
Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is
Allt fyrir frisbígolf
Töskur frá
3.990 kr.
Fjarlægðar-
mælir
3.990 kr.
Tinna Rósamunda Freysdóttir heldur úti
hlaðvarpinu Þreyttar mömmur ásamt Láru
Guðnadóttur. Sjálf hlustar hún reglulega á
hlaðvörp og fékk K100 hana til þess að gefa
lesendum álit á því sem hún hlustar á.
Hlaðvörp hafa verið gífurlega vinsæl und-
anfarið og erfitt getur verið að finna hlað-
varp sem hentar áhugasviði hvers og eins
enda um svakalegt úrval að ræða. Við hér á
K100 erum mikið áhugafólk um hlaðvörp og
ákváðum að ræða við það fólk sem heldur úti
hlaðvarpi hér á Íslandi og fá það til þess að
gefa okkur upp hvaða hlaðvarpsþætti, fyrir
utan sína eigin, það hlustar á í sínum frítíma.
Það ætti að geta gefið fólki góðar hugmyndir
um áhugaverð hlaðvörp sem henta þess
áhugasviði.
Tinna Rósamunda úr
hlaðvarpinu Þreyttar mömmur
„Það er eiginlega bara fyndið hvernig
þetta hlaðvarp varð til. Lára var búin að
vera að fylgja mér á Instagram í einhvern
tína og hafði velt því fyrir sér að senda mér
skilaboð og spyrja hvort ég myndi vilja byrja
hlaðvarpsþátt með henni. Við höfðum hist
einu sinni áður í „babyshoweri“ hjá sameig-
inlegri vinkonu en fyrir utan það þekktumst
við ekkert. Hún ákvað að slá til eftir smá
umhugsun og sendi mér skilaboð og mér
fannst þetta brilljant hugmynd og við vorum
sammála um að það vantaði einmitt svona
þátt í hlaðvarpsheiminn, þar sem tvær
mömmur koma saman vikulega og spjalla um
alls konar málefni. Við erum ekki fastar í
einhverju þema og elskum að tala saman og
taka fyrir hluti sem fólki finnst kannski
óþægilegt og/eða erfitt að tala um, tókum til
dæmis þátt um erfiðleika í samböndum um
daginn. Svo ætlum við að fá fólk í viðtöl líka
öðru hvoru. Við erum tvær súperþreyttar
mömmur og okkur finnst þetta ótrúlega
skemmtilegt og þessi viðbrögð sem við höf-
um fengið á þessum stutta tíma peppa okkur
mikið áfram. Við keyptum allar græjur sjálf-
ar og tökum upp í heimahúsi, rosa kósí.“
Tinna segist hlusta reglulega á hlaðvörp
og byrjaði á því þegar hún var í fæðing-
arorlofi árið 2019 og hlustaði þá mjög mikið.
Núna hlustar hún mest þegar hún er að þrífa
eða í göngutúr og stundum í bílnum.
Hlaðvarpslisti Tinnu:
Illverk:
„Illverk var fyrsta hlaðvarpið sem ég
bombaði mér í og ég hám-hlustaði á það.
Hún Inga sem er með þáttinn er mjög
skemmtileg og það sem heillar er að hún er
hún sjálf og er mjög fyndin og rosalega
mannleg, það er möst fyrir mig að hlusta á
fólk sem tekur sig ekki of alvarlega.“
Morðcastið:
„Tók líka góða syrpu á Morðcastinu en
þær systur Unnur og Bylgja eru mjög
skemmtilegar og fyndnar, fíla þær í botn.“
Podcast með Sölva Tryggva:
„Er búin að hlusta á nokkra þætti með
Sölva og það er svo gaman að geta valið úr
öllum þessum þáttum, maður veit ekkert
hverjir allir eru sem hann talar við og gam-
an að sjá inn á milli manneskju sem maður
vill hlusta á. Sölvi er pro, enda númer eitt á
Spotify Top 200-listanum, áfram Sölvi!“
Views:
„Tveir vitleysingar, David Dobrik og Jas-
on Nash. Einn er uppistandari og hinn
youtube-stjarna. Þeir eru ógeðslega steiktir,
fyndnir og skemmtilegir. Mér finnst gaman
að hlusta á þá með manninum mínum þegar
við erum að keyra, enda nennir hann ekkert
að hlusta á hvað sem er en við fílum þá
bæði.“
Í ljósi sögunnar:
„Söguþættir í umsjón Veru Illugadóttur.
Mjög áhugaverðir, er nýbyrjuð og þetta lof-
ar góðu.“
Áhugaverð hlaðvörp: Tinna Freys gefur álit
Ljósmynd/Aðsend
Hlaðvörp Tinna hlustar meðal annars á Morð-
kastið og Illverk.
Ljósmynd/Aðsend
Tinna Hlustar á hlaðvörp þegar hún tekur til.
Ljósmynd/Samsett
Tinna og Lára
Halda úti hlað-
varpinu Þreyttar
mömmur.
Fjölskyldubingó
mbl.is verður á
sínum stað í
kvöld þar sem
þau Siggi Gunn-
ars og Eva Ruza
sjá til þess að
færa fjölskyldum
landsins bingó-
tölurnar beint
heim í stofu.
Í síðustu viku
kom tónlist-
armaðurinn Sig-
tryggur Bald-
ursson, betur
þekktur sem
Bogomil Font, og
tók lagið fyrir
þátttakendur
Bingósins.
Í kvöld mætir
dúettinn Syca-
more Tree, sem
þau Ágústa Eva
og Gunnar Hilm-
arsson skipa, í
sett og taka lagið
fyrir þátttak-
endur.
Ásamt þeim Sigga og Evu verður furðu-DJ-inn í setti, tóm gleði og fullt
af stórglæsilegum vinningum.
Allar upplýsingar um þátttöku og útsendingu má finna með því að fara
inn á heimasíðu bingósins á www.mbl.is/bingo. Allar fyrirspurnir vegna
bingósins er hægt að senda á bingo@mbl.is.
Sycamore Tree
tekur lagið í kvöld
Sycamore Tree
Ágústa Eva og
Gunnar Hilmarsson.