Morgunblaðið - 25.03.2021, Síða 57

Morgunblaðið - 25.03.2021, Síða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021 GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST EFTIR 3 VIKUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ FRANCESMcDORMAND MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO PEOPLE’S CHOICE AWARD TORONTO FILM FESTIVAL SIGURVERARI GOLDEN LION BEST FILM VENICE FILM FESTIVAL SIGURVERARI EVENING STANDARD THE GUARDIAN TOTAL FILM THE DAILY TELEGRAPH TIME OUT EMPIRE BESTA MYNDIN BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI Frances McDormand BESTI LEIKSTJÓRI Chloé Zhao 6 ÓSKARS TILNEFNINGAR MEÐAL ANNARS ® 94% 96% 99%BESTA MYNDIN Sýnd með íSlenSku og enSku tali 94% Í skáldsögunni Skegg Raspút- íns gerði Guðrún Eva Mín- ervudóttir eigið líf í Hvera- gerði að söguefni og var eiginmaður skáldsins, kvikmynda- leikstjórinn Marteinn Þórsson, með- al persóna bókarinnar. Í nýjustu kvikmynd sinni Þorpið í bakgarð- inum tekur Marteinn í sama streng, ef svo má segja, og notar gistiheim- ili þeirra hjóna sem sögusvið. Sjálfs- vísandi eiginleikar, sem fram- andgera söguheiminn með því að benda á samsetningu hans og höf- und listaverksins, eru algengari í íslenskum bókmenntum en kvik- myndum (þó að þeir hafi verið fast- ur liður listrænnar kvikmyndagerðar frá sjötta áratugi 20. aldar), en eru eitt helsta ein- kenni umræddrar myndar. Brynja (Laufey Elíasdóttir), kona á fertugsaldri, er stödd í Hveragerði eftir dvöl á heilsuhæli. Í upphafi ráf- ar hún um bæinn, með viðkomu á bensínstöð og strætóskýli en stað- næmist við útskorið skilti áningar- staðarsins Backyard Village, sem skartar nöfnum listamannahjónanna á útidyrahurðinni. Matti, leikinn af Helga Svarari Helgasyni, tekur á móti Brynju og fylgir henni í nota- legan náttskála en söguhetjan sést taka inn þunglyndislyfið Sertral áður en hún leggst til hvílu. Frið- urinn er skjótt úti er taktlausi Bret- inn Mark (Tim Plester) bankar upp á og kveðst vanta paprikuduft í mat- seld og endurgeldur greiðann með kvöldverðarboði, sem Brynja þigg- ur. Skopleg samtalssena í rólegum takti yfir fiskibollum í bleikri sósu fylgir í kjölfarið. Í ljós kemur kemur að Mark er á Íslandi í erindagjörð- um af persónulegum toga og Brynja er að glíma við óuppgerð áföll. Morguninn eftir slæst Brynja í för með Mark í lautarferð á af- skekktan stað. Dulúð kraumar undir slóðanum – hvert er þessi eilítið furðulegi fýr að leiða söguhetjuna? Brynja er við stýrið og hefur GPS- hnit til að leiða sig í tvísýnni för. Við tekur sterkasta atriði myndarinnar þar sem harmræn tengsl Marks við áfangastaðinn koma í ljós. Myndræn útfærsla er virkilega flott – í víð- mynd sjást persónurnar á gangi í snævi þöktu landslagi og sjón- arspilið verður listilega órætt. Und- ir lok atriðisins er myndað ofan á leikarana á flísteppinu og dróni dregur sjónarhornið smám saman fjær og fjær þar til verurnar sjást aðeins í mýflugumynd en tónlist Jó- fríðar Ákadóttur færir andartakið á enn hærra svið. Formið styður vel við þematískt og frásagnarlegt vægi senunnar, sem er of sjaldan tilfellið í gegnum verkið. Fyrsti kafli myndarinnar ein- kennist af samtölum og uppleggið er leikritalegt í eðli sínu. Unnið er markvisst með takmarkanir fram- leiðslunnar til að reiða fram einfalt drama í ákveðinni frásagnarhefð. Þetta er undirstrikað með fyrr- nefndum drónaskotum (en að vissu leyti er þeim beitt á annan hátt en oftast nær í íslenskri kvikmynda- gerð) sem mynda þráðbeint niður á viðföngin frá sjónarhóli æðri máttar á sköpunarverkið. Fyrsta tilvik þess sýnir Mark á gangi í átt að húsi Brynju, morguninn eftir fiskbollu- veisluna. Myndskeiðið afbyggir blekkingu söguheimsins og leggur sjónarhorn áhorfandans að jöfnu við höfund þess (að leik við brúður sín- ar). Hugrenningatengsl við brecht- íska framsetningu Hundaheims (2003) Lars Von Triers vakna óneit- anlega. Endurtekin flugskot grafa þó undan áhrifunum – og er líkt og Marteinn og félagar standist ekki mátið (myndbrot úr kvikmyndinni XL í sjónvarpi bústaðarins blikkar til manns og er annað dæmi ofgnótt- arinnar). Til að opna á sjálfsvísandi vídd væri nóg að takmarka sig við guðfræðilega augsýn upphafskafl- ans en ítrekuð notkun dróna dregur einna helst fram stílískt ósamræmi heildarinnar – og er frekar ódýr leið til að sækja „framleiðsluvirði“ (e. production value). Upphafsþáttur Þorpsins kynnir persónurnar og slær góðan sam- hljóm húmors og alvöru en í fram- haldinu fatast örlítið flugið. Á köfl- um heldur frábær frammistaða enska leikarans Tims Plesters myndinni uppi en hann ljær fíflinu tregafullan undirtón og gerir Mark að sannfærandi persónu. Aðal- persónan Brynja á að drífa áfram frásögnina en kviknar ekki til lífs á sama máta. Megingallinn liggur í handriti myndarinnar, þótt samstarf leikara og leikstjóra spili líka inn í, en Brynja er einfaldlega of óskýr. Hegðun hennar – líkt og framvindan í heild – er á köflum tilviljunum háð og göngutúrar að bæjarlæknum skila áhorfendum litlu. Dyggðir tak- markanna gleymast í seinni hálfleik handritsins sem einkennist af útúr- dúrum. Dramatík og gleðilegri úr- lausn er þröngvað upp á söguna og persónur hennar. Með réttu ber þó að minnast á besta augnablik síðari hlutans er Brynja og systir hennar (Eygló Hilmarsdóttir) horfa úr glugga á móður sína og Mark spjalla saman og „talsetja“ samtal þeirra í gríni. Sprellið vindur upp á sig og skopraddirnar færast út í alvöru og sorg systranna kemur í ljós. Þetta er í senn frjó og fyndin útfærsla sem vinnur vel með eiginleika miðilsins – en fallegt tvenndarskotið af vöngum systranna minnir á arf Ingmars Bergmans. Tónn Þorpsins er fráhvarf frá fyrri verkum leikstjórans Marteins Þórssonar og færir tráma og fjöl- skylduharm inn í hlýjan yl Hvera- gerðiskrúttsins en vandasamt er ná slíkri blöndu réttri. Þorpið í bak- garðinum er harla ójöfn en þó áhugaverð kvikmynd, sem gæti reynst stökkpallur fyrir næstu verk aðstandenda. Hamingjan er Hveragerðiskrútt Áhugaverð Rýnir segir Þorpið í bakgarðinum eftir Martein Þórsson vera ójafna en þó áhugaverða kvikmynd. Borgarbíó, Háskólabíó, Smárabíó Þorpið í bakgarðinum bbmnn Leikstjórn: Marteinn Þórsson. Handrit: Guðmundur Óskarsson. Kvikmynda- taka: Bergsteinn Björgúlfsson. Klipping: Valdís Óskarsdóttir, Marteinn Þórsson. Aðalleikarar: Laufey Elíasdóttir, Tim Plester, Eygló Hilmarsdóttir, Sóley Elí- asdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helgi Svavar Helgason. Ísland, 2021. 92 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR Málverkið „Warrior“ sem banda- ríski listamaðurinn Jean-Michel Basquiat málaði árið 1982 var sleg- ið hæstbjóðanda á vefuppboði Christie’s í Hong Kong fyrir 41,9 milljónir dala, um 5,2 milljarða króna. Mun það vera hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir vestrænan listamann í Asíu. Japanskur safnaði greiddi þó enn hærra verð fyrir málverk eftir Bas- quiat árið 2017, 110 milljónir dala, sem er hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir verk eftir listamanninn sem lést árið 1988 aðeins 27 ára gamall. „Warrior“ er sagt lýsa bar- áttu svartra í heimi sem er stjórnað af hvítum mönnum. AFP Expressjónískt „Warrior“ eftir Basquiat á sýningu hjá Christie’s fyrir uppboðið. . 5,2 milljarðar kr. fyrir stríðsmann Bandaríski bassaleikarinn Paul Jackson, einn kunnasti bassaleikari fönksins, er all- ur, 73 ára að aldri. Jackson var lykilmaður í djassfönksveit píanóleikarans Herbie Hancock, Headhunters, en plötur sveitarinnar nutu mikillar hylli á áttunda áratug liðinnar ald- ar og seldust í milljónavís. Jackson byrjaði að leika á kontrabassa en þegar fönkbylgjan skall á, upp úr 1970, vakti frum- legur, lagrænn og drífandi leikur hans á rafbassa mikla athygli. Síð- ust áratugi starfrækti Jackson eig- in djassfönk-hljómsveitir. Dáður fönkbassa- leikari látinn Paul Jackson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.