Morgunblaðið - 25.03.2021, Page 57
MENNING 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2021
GLEÐILEGA PÁSKA - SJÁUMST EFTIR 3 VIKUR
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
94%
96%
99%BESTA MYNDIN Sýnd með íSlenSku og enSku tali
94%
Í
skáldsögunni Skegg Raspút-
íns gerði Guðrún Eva Mín-
ervudóttir eigið líf í Hvera-
gerði að söguefni og var
eiginmaður skáldsins, kvikmynda-
leikstjórinn Marteinn Þórsson, með-
al persóna bókarinnar. Í nýjustu
kvikmynd sinni Þorpið í bakgarð-
inum tekur Marteinn í sama streng,
ef svo má segja, og notar gistiheim-
ili þeirra hjóna sem sögusvið. Sjálfs-
vísandi eiginleikar, sem fram-
andgera söguheiminn með því að
benda á samsetningu hans og höf-
und listaverksins, eru algengari í
íslenskum bókmenntum en kvik-
myndum (þó að þeir hafi verið fast-
ur liður listrænnar
kvikmyndagerðar frá sjötta áratugi
20. aldar), en eru eitt helsta ein-
kenni umræddrar myndar.
Brynja (Laufey Elíasdóttir), kona
á fertugsaldri, er stödd í Hveragerði
eftir dvöl á heilsuhæli. Í upphafi ráf-
ar hún um bæinn, með viðkomu á
bensínstöð og strætóskýli en stað-
næmist við útskorið skilti áningar-
staðarsins Backyard Village, sem
skartar nöfnum listamannahjónanna
á útidyrahurðinni. Matti, leikinn af
Helga Svarari Helgasyni, tekur á
móti Brynju og fylgir henni í nota-
legan náttskála en söguhetjan sést
taka inn þunglyndislyfið Sertral
áður en hún leggst til hvílu. Frið-
urinn er skjótt úti er taktlausi Bret-
inn Mark (Tim Plester) bankar upp
á og kveðst vanta paprikuduft í mat-
seld og endurgeldur greiðann með
kvöldverðarboði, sem Brynja þigg-
ur. Skopleg samtalssena í rólegum
takti yfir fiskibollum í bleikri sósu
fylgir í kjölfarið. Í ljós kemur kemur
að Mark er á Íslandi í erindagjörð-
um af persónulegum toga og Brynja
er að glíma við óuppgerð áföll.
Morguninn eftir slæst Brynja í
för með Mark í lautarferð á af-
skekktan stað. Dulúð kraumar undir
slóðanum – hvert er þessi eilítið
furðulegi fýr að leiða söguhetjuna?
Brynja er við stýrið og hefur GPS-
hnit til að leiða sig í tvísýnni för. Við
tekur sterkasta atriði myndarinnar
þar sem harmræn tengsl Marks við
áfangastaðinn koma í ljós. Myndræn
útfærsla er virkilega flott – í víð-
mynd sjást persónurnar á gangi í
snævi þöktu landslagi og sjón-
arspilið verður listilega órætt. Und-
ir lok atriðisins er myndað ofan á
leikarana á flísteppinu og dróni
dregur sjónarhornið smám saman
fjær og fjær þar til verurnar sjást
aðeins í mýflugumynd en tónlist Jó-
fríðar Ákadóttur færir andartakið á
enn hærra svið. Formið styður vel
við þematískt og frásagnarlegt vægi
senunnar, sem er of sjaldan tilfellið í
gegnum verkið.
Fyrsti kafli myndarinnar ein-
kennist af samtölum og uppleggið er
leikritalegt í eðli sínu. Unnið er
markvisst með takmarkanir fram-
leiðslunnar til að reiða fram einfalt
drama í ákveðinni frásagnarhefð.
Þetta er undirstrikað með fyrr-
nefndum drónaskotum (en að vissu
leyti er þeim beitt á annan hátt en
oftast nær í íslenskri kvikmynda-
gerð) sem mynda þráðbeint niður á
viðföngin frá sjónarhóli æðri máttar
á sköpunarverkið. Fyrsta tilvik þess
sýnir Mark á gangi í átt að húsi
Brynju, morguninn eftir fiskbollu-
veisluna. Myndskeiðið afbyggir
blekkingu söguheimsins og leggur
sjónarhorn áhorfandans að jöfnu við
höfund þess (að leik við brúður sín-
ar). Hugrenningatengsl við brecht-
íska framsetningu Hundaheims
(2003) Lars Von Triers vakna óneit-
anlega. Endurtekin flugskot grafa
þó undan áhrifunum – og er líkt og
Marteinn og félagar standist ekki
mátið (myndbrot úr kvikmyndinni
XL í sjónvarpi bústaðarins blikkar
til manns og er annað dæmi ofgnótt-
arinnar). Til að opna á sjálfsvísandi
vídd væri nóg að takmarka sig við
guðfræðilega augsýn upphafskafl-
ans en ítrekuð notkun dróna dregur
einna helst fram stílískt ósamræmi
heildarinnar – og er frekar ódýr leið
til að sækja „framleiðsluvirði“ (e.
production value).
Upphafsþáttur Þorpsins kynnir
persónurnar og slær góðan sam-
hljóm húmors og alvöru en í fram-
haldinu fatast örlítið flugið. Á köfl-
um heldur frábær frammistaða
enska leikarans Tims Plesters
myndinni uppi en hann ljær fíflinu
tregafullan undirtón og gerir Mark
að sannfærandi persónu. Aðal-
persónan Brynja á að drífa áfram
frásögnina en kviknar ekki til lífs á
sama máta. Megingallinn liggur í
handriti myndarinnar, þótt samstarf
leikara og leikstjóra spili líka inn í,
en Brynja er einfaldlega of óskýr.
Hegðun hennar – líkt og framvindan
í heild – er á köflum tilviljunum háð
og göngutúrar að bæjarlæknum
skila áhorfendum litlu. Dyggðir tak-
markanna gleymast í seinni hálfleik
handritsins sem einkennist af útúr-
dúrum. Dramatík og gleðilegri úr-
lausn er þröngvað upp á söguna og
persónur hennar. Með réttu ber þó
að minnast á besta augnablik síðari
hlutans er Brynja og systir hennar
(Eygló Hilmarsdóttir) horfa úr
glugga á móður sína og Mark spjalla
saman og „talsetja“ samtal þeirra í
gríni. Sprellið vindur upp á sig og
skopraddirnar færast út í alvöru og
sorg systranna kemur í ljós. Þetta
er í senn frjó og fyndin útfærsla sem
vinnur vel með eiginleika miðilsins –
en fallegt tvenndarskotið af vöngum
systranna minnir á arf Ingmars
Bergmans.
Tónn Þorpsins er fráhvarf frá
fyrri verkum leikstjórans Marteins
Þórssonar og færir tráma og fjöl-
skylduharm inn í hlýjan yl Hvera-
gerðiskrúttsins en vandasamt er ná
slíkri blöndu réttri. Þorpið í bak-
garðinum er harla ójöfn en þó
áhugaverð kvikmynd, sem gæti
reynst stökkpallur fyrir næstu verk
aðstandenda.
Hamingjan er Hveragerðiskrútt
Áhugaverð Rýnir segir Þorpið í bakgarðinum eftir Martein Þórsson vera ójafna en þó áhugaverða kvikmynd.
Borgarbíó, Háskólabíó,
Smárabíó
Þorpið í bakgarðinum bbmnn
Leikstjórn: Marteinn Þórsson. Handrit:
Guðmundur Óskarsson. Kvikmynda-
taka: Bergsteinn Björgúlfsson. Klipping:
Valdís Óskarsdóttir, Marteinn Þórsson.
Aðalleikarar: Laufey Elíasdóttir, Tim
Plester, Eygló Hilmarsdóttir, Sóley Elí-
asdóttir, Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helgi
Svavar Helgason. Ísland, 2021. 92 mín.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR
Málverkið „Warrior“ sem banda-
ríski listamaðurinn Jean-Michel
Basquiat málaði árið 1982 var sleg-
ið hæstbjóðanda á vefuppboði
Christie’s í Hong Kong fyrir 41,9
milljónir dala, um 5,2 milljarða
króna. Mun það vera hæsta verð
sem greitt hefur verið fyrir verk
eftir vestrænan listamann í Asíu.
Japanskur safnaði greiddi þó enn
hærra verð fyrir málverk eftir Bas-
quiat árið 2017, 110 milljónir dala,
sem er hæsta verð sem greitt hefur
verið fyrir verk eftir listamanninn
sem lést árið 1988 aðeins 27 ára
gamall. „Warrior“ er sagt lýsa bar-
áttu svartra í heimi sem er stjórnað
af hvítum mönnum.
AFP
Expressjónískt „Warrior“ eftir Basquiat á
sýningu hjá Christie’s fyrir uppboðið.
.
5,2 milljarðar kr.
fyrir stríðsmann
Bandaríski
bassaleikarinn
Paul Jackson,
einn kunnasti
bassaleikari
fönksins, er all-
ur, 73 ára að
aldri. Jackson
var lykilmaður í
djassfönksveit
píanóleikarans
Herbie Hancock, Headhunters, en
plötur sveitarinnar nutu mikillar
hylli á áttunda áratug liðinnar ald-
ar og seldust í milljónavís.
Jackson byrjaði að leika á
kontrabassa en þegar fönkbylgjan
skall á, upp úr 1970, vakti frum-
legur, lagrænn og drífandi leikur
hans á rafbassa mikla athygli. Síð-
ust áratugi starfrækti Jackson eig-
in djassfönk-hljómsveitir.
Dáður fönkbassa-
leikari látinn
Paul Jackson