Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Page 5
Viðræður eru í gangi við Reykjavíkurborg og vonumst við eftir góðri
niðurstöðu nú á haustmánuðum.
Flaggskip félagsins eru örugglega stóru knattspyrnumótin sem við
höldum, Capelli Rey Cup og VIS mótið. Þessi tvö frábæru mót hafa
gengið sérlega vel árum saman og aðsókn alltaf mikil, en undanfarin
fjögur ár hefur verið uppselt á Capelli Rey Cup. Þessi mót eru okkur
til mikils sóma og frábær vitnisburður um öflugt starf í félaginu.
Framtíð félagsins er sannarlega björt og við sem erum í forystu þess
erum sannfærð um að með bættri aðstöðu getum við veitt fleiri
börnum í hverfinu tækifæri til að taka þátt í starfinu og í framtíðinni
náð enn betri árangri. Við erum með hæft og reynt starfsfólk og góða
blöndu af efnilegum og reyndum þjálfurum. Krakkar frá okkur eru
í úrtökum landsliða auk þess sem all nokkrir eru fastamenn í yngri
landsliðum Islands.
Það hefur verið virkilega gaman að taka þátt í þeim viðburðum sem
tengst hafa afmælinu á árinu. Framundan er mjög áhugaverð sögu-
sýning um félagið sem opnar 28.september. Þar verða sýndir munir,
treyjur og margt fleira sem ekki hafa verið sýndir áður og tengjast
sögu félagsins. Einnig verður síðar á árinu frumsýnd heimildarmynd
um Þrótt, við ætlum að halda sögukvöld o.fl. Eg hlakka til að sjá sem
flesta á þessum skemmtilegu viðburðum sem framundan eru.
Að lokum vill ég þakka hinum fjölmörgu sjálfboðaliðum sem koma
að svo mörgum störfum í félaginu og vinna mjög óeigingjarnt starf.
Einnig þakka ég formönnum deilda, stjórnum, þjálfurum og starfs-
fólki fyrir góð störf á afmælisárinu.
Til hamingju með afmœlið,
Finnbogi Hilmarsson,
Formaður Þróttar.
HÚSASMIÐJAN OG BLÓMAVAL ÓSKA ÞRÓTTI
TIL HAMINGJU MEÐ 70 ÁRA AFMÆLIÐ!
ttí
blÓffiQUQl