Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Qupperneq 14
Oskar Jón og handboltinn
Óskar Jón Guðmundsson er snúinn aftur og tekinn við bæði yngri
flokkastarfi handknattleiksdeildar auk þess að þjálfa meistaraflokk
karla. Óskar var potturinn og pannan í starfi deildarinnar hér fyrir
nokkrum árum en ákvað árið 2015 að söðla um og flutti til Svíþjóðar
og fékkst þar við þjálfun. A öðru ári sínu í Svíþjóð bauðst honum að
flytja aftur heim og taka við handknattleiksdeild Harðar á Isafirði.
Starfið í Svíþjóð gaf honum mikla reynslu af þjálfun og á Isafirði tók
við annars konar reynsla, því þar kynntist hann núverandi unnustu
sinni og stjúpsyni. Við settumst niður með Óskari og spurðum hann
út í starfið framundan og stöðu Þróttar í handboltanum.
Óskar er bjartsýnn á veturinn en ljóst að mikið verk er fyrir höndum.
Meistaraflokkur stendur vel að vígi, strákarnir standa þétt saman og
stemning innan hópsins góð. Markmið vetrarins er að sögn Óskars:
„að koma gleðinni af æfingum inn í leikina hjá okkur og auðvitað að
ná í góð úrslit".
Hvað varðar yngri flokkana er staðan öllu erfiðari, Æfingahóparnir
eru fámennir og mikilvægt að fjölga iðkendum í öllum flokkum. Ekki
má lengur auglýsa íþróttastarf í skólum borgarinnar, og það gerir
íþróttafélögum erfiðar um vik að koma á framfæri því sem krökkum
stendur til boða. Óskar og hans fólk þarf því að treysta á að koma
boðskapnum áleiðis með öðrum leiðum. Vaxandi máttur samfélags-
miðla er ein þeirra leiða sem og dreifing á bæklingi í hverfinu. Óskar
leggur mikið upp úr því að æfingar séu skemmtilegar og vonar að sú
gleði smiti út frá sér meðal krakkanna í hverfunum og þannig megi
breiða boðskapinn sem víðast.
Það sem hefur háð Þrótti þegar talið berst að innanhúsgreinunum
er aðstöðuleysið. Bæði handboltamenn sem og blakarar hafa fundið
fyrir því þau 20 ár sem félagið hefur starfað í Laugardalnum. I byrjun
aldarinnar hafði handboltinn Höllina að mestu út af fyrir sig, nema
hvað Rnattspyrnudeild Þróttar og körfuboltamenn úr Armanni höfðu
nokkra tíma í viku. Síðar hvarf körfuboltinn úr Höllinni en blakið
færði starfsemi sína í Höllina; en nú er svo komið að körfuboltinn er
kominn aftur og þurfa þessar þrjár ört stækkandi íþróttagreinar að
deila með sér æfingatímunum. Aðstöðuleysið hamlar vexti deildanna
og hættan er sú að efnilegir handboltamenn færi sig annað þar sem
fleiri æfingar eru í boði og aðstaðan betri. Það er því verulega brýnt,
að mati Óskars, að Þróttur eignist sitt eigið íþróttahús, á Þróttar-
svæðinu, sem fyrst, svo Þróttur verði ekki uppeldisstöð fyrir önnur
félög í borginni.
14