Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Síða 20

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Síða 20
Rey Cup - fjöregg Þróttar Þróttur - Brighton úrslitaleikur í 3. flokki karla A lið á Rey Cup Allir Þróttarar þekkja knattspyrnumótið Rey Cup. Mótið er haldið af Þrótti og setur sterkan svip á Laugardalinn í lok júlí ár hvert þar sem íslenskir og erlendir unglingar leika knattspyrnu sér og öðrum til skemmtunar. í ár fór 18. mótið fram. Alls tóku 95 lið þátt, þar af 11 erlend lið. Ef taldir eru saman þátttakendur og aðstandendur má reikna með að hátt í 2500 manns hafi sótt Laugardalinn heim til þess að spila eða fylgjast með knattspyrnu, auk fjölda annarra viðburða sem eru hluti af dagskánni. Arið 2017 á 15. afmælisári mótsins ritaði Guðmundur Vignir Oskars- son fyrsti mótstjóri Rey Cup grein í Rey Cup blaðið og sagði frá tilurð mótsins. Gefum Guðmundi orðið: „Upphafiega hugmyndin kviknaði á tjaldsvæðinu á Akureyri í hópi foreldra 5. flokks drengja í Þrótti sem tóku þátt í ESSO mótinu í júlí 2001. Rætt var um það tækifæri sem fælist £ því að Þróttur væri fluttur í Laugardalinn, ekki síst fyrir unglingastarfið, þar sem vöntun var á knattspyrnumótum fyrir 3. og 4. flokk drengja og stúlkna hér heima. í framhaldi af ESSO mótinu hafði 5. flokki drengja verið boðin þátttaka á einu stærsta knattpyrnumóti Bretlands, „Watford and London International Festival", og hafði sá sem þetta skrifar tekið að sér fararstjórn æfinga- og keppnisferðarinnar. í keppnisferð greinarhöfundar til Watford og síðan á Tivoli Cup í Danmörku var aflað fróðleiks sem unnið var með innan Þróttar við mótun hugmyndafræði Rey Cup, auk séríslenskra áherslna. Watford mótið var 140 liða mót með um 1.200 þátttakendum af báðum kynjum á unglingsaldri, leikinn var 11 manna bolti og gist í skólum. Það sem í boði var á svæðinu var t.d. diskó, grillveisla, tóm- stundahöll í útjaðrinum og ýmsar skoðunarferðir m.a. inn til London. Það var greinilegt að það sem Watfordmótið hafði upp á að bjóða var ný reynsla fyrir íslensku drengina frá Þrótti. Mótshaldarar beggja móta voru fúsir til að veita allar þær upplýsingar sem óskað var eftir og miðla gögnum sem gætu nýst Þrótturum við uppbyggingu síns eigin móts. Rey Cup likanið var byggt á því markverðasta frá þessum mótum. Rey Cup var ætlað að verða árviss alþjóðleg knattspyrnuhátíð í háum gæðaflokki í Laugardalnum. Horft var til þess að þátttakendur væru innlendir sem erlendir unglingar af báðum kynjum á aldrinum 13 til 16 ára og íjölskyldur þeirra. Auk þátttöku í knattspyrnukeppninni sjálfri var ákveðið að bjóða upp á skemmtun fyrir keppendur sem og fjölskyldur þeirra undir slagorðinu „Fótbolti og íjör!“ til að undir- strika þessa áherslu. Stefnt var að því að einn stærsti og vinsælasti dansleikur ársins færi fram á Rey Cup, nokkurs konar árshátíð fyrir þessa árganga". Bakhjarlar Rey Cup krefst mikillar vinnu sjálfboðaliða. Strax að loknu móti er farið að huga að því næsta; sérstaklega að afla þátttöku erlendra liða. Blað mótsins er gefið út áður en það hefst og því dreift í öll hús í hverfinu sem og á mótinu sjálfu. Einnig þarf að skipuleggja gistingu og vaktir í skólum, huga að innkaupum fjrrir morgunmat þátttakenda og dreifa matvörum í skóla hverfisins. Breiðblik sigurvegarar í 3 flokki kvenna A lið Mikil vinna fer einnig í móttöku erlendra liða, en hvert lið fær tengi- lið sem er vakinn og sofinn yfir velferð þeirra á meðan dvöl þeirra stendur. Einnig starfar mannvirkjanefnd sem undirbýr mótið; setur upp söluturna, útisalerni, passar upp á vellina og heldur svæðinu snyrtilegu. Kappaleikjanefnd sér um skipulag mótsins og heldur utan um úrslit leikja og raðar liðum í riðla. Þetta er þó engan veginn tæmandi Iisti yfir öll þau verkefni sem þarf að sinna til þess að mótið verði að veruleika og fari sem best fram. Fjöldi dómara kemur að mótinu. í gegnum árin hefur fjöldi erlendra dómara notað sumarfríið sitt til að ferðast til íslands og dæma leiki á mótinu. Einnig dæma leikmenn meistaraflokks karla og kvenna 20

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.