Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Page 21

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Page 21
leiki, og síðast en ekki síst leikmenn “old boys”, sem leggja sig alla fram og keppast um hver dæmi fiesta leiki. Mörg fyrirtæki og stofnanir hafa staðið vel við bakið á Rey Cup í gegnum árin. Þar ber helst að nefna Reykjarvíkurborg sem styrkir mótið myndarlega. Svo má einnig nefna fyrirtæki í hverfinu, t.d. Hilton hótelið þar sem þátttakendur fá hádegis- og kvöldmat og hinn árlegi dansleikur fer fram. KSI leggur einnig sitt af mörkum og leggur til Laugardalsvöllinn fyrir úrslitakeppnina. Aðrir styrktar- aðilar hafa komið að mótinu í gegnum árin, en fyrir mótið í ár var gerður samningur við Capelli Sport til fimm ára og verða þeir aðal styrktaraðilar mótsins þann tíma og því kallast mótið“Capelli Sport Rey Cup” næstu árin. Dagskrá Rey Cup er í stórum dráttum sú sama og hún var á fyrsta mótinu árið 2002, sem ber vott um framsýni þeirra sem komu að mótinu í byrjun. Auk keppninnar sjálfrar er skrúðganga félagsliða, grillveisla í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, dansleikur, sundlaugar- partý og foreldrakvöld á Café Flóru í Grasagarðinum. En auðvitað á alltaf einhver framþróun sér stað. Tækninni fleygir fram og á mótinu í sumar var tekin upp sú nýbreytni að streyma frá völdum leikjum beint í gegnum internetið í samstarfið við íslenska nýsköpunarfyrirtækið OZ Sport. Partick Thistle Football Club sigurvegarar í 4. flokki karla í keppni A liða Að lokum Það er ljóst að við núverandi aðstæður getur Rey Cup ekki orðið mikið stærra en það er í dag. Svæði Þróttar í Laugardalnum ber ekki mikið fleiri leiki, og þrátt fyrir að Þróttur eigi á að skipa fjölda frábærra sjálfboðaliða sem eru tilbúnir til að leggja mikið á sig, þyrfti meira að koma til svo að stærra mót geti orðið að veruleika. I því ljósi verður áherslan lögð á að gera gott mót ennþá betra með styrkingu umgj örðarinnar. ÍA sigurvegarar í 4. flokki kvenna í keppni A liða En leyfum Guðmundi að eiga lokorðið. Það voru ákveðin tímamót í mínum huga þegar Rey Cup var valinn „besti grasrótarviðburðurinn 2008“ að mati KSI og UEFA og var Michel Platini forseti Knattspyrnusambands Evrópu viðstaddur verðlaunaafhendinguna. I mínum huga var um að ræða táknræna staðfestingu á því að „Draumurinn um Rey Cup ævintýrið var orðinn að veruleika" og því full ástæða til að horfa björtum augum til fram- tíðar á þessum tímamótum. A bak við þetta fjöregg Þróttar stendur mikill fjöldi sjálfboðaliða úr hópi foreldra og aðstandenda, iðkenda auk velunnarra sem borið hafa uppi óeigingjarnt starf allt frá upphafi til dagsins x dag. Halldór Magnússon ■ iá'jSiV i "(25) J LIFI ÞRÓTTUR LUXOR .S50 -1400 • # (J.V.VJXOR.IS \5\ ISl Iji

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.