Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Síða 39
Helgi Björnsson í miklu stuði á Sveitabalti Laugardals.
Hitað upp á Ölver fyrir úrslitaleikinn gegn Aftureldingu
laugardaginn 21. september 2019.
Inkassodeild kvenna 2019. Að lokum var boðið upp í dansleik með Selmu
Björnsdóttur og hljómsveit Hússins þegar formlegri dagskrá lauk. Yfir 250
manns mættu og skemmtu allir sér mjög vel og var þetta mikil gleðihátíð fyrir
alla Þróttara. Myllumerki hátíðarinnar var #Lifi70.
í fyrra var haldið októberfest hjá félaginu sem tókst mjög vel. Stefnt er að
því að halda 80's ball I vetur sem margir hlakka til og svo verður Þorrablót
Laugardals i febrúar.
Þann 28. September verður einstök sögu og minjasýning i hátíðarsal Þróttar
í tilefni af 70 ára afmæli félagsins. Hægt verður að virða fyrir sér muni og
myndir úr 70 ára sögu félagsins. Það er mikil vinna sem lögð er í þessa sýn-
ingu svo engir Þróttarar mega láta þessa glæsilegu sýningu framhjá sér fara.
Afmælisdagskrá Þróttar á árinu lýkur svo á frumsýningu á nýrri heimildarmynd
um Þrótt þann 18. október. Heimildarmyndin “Lifi Þróttur” segir sögu félagsins
sem var stofnað af hugsjónafólki á Grímsstaðaholtinu 5. ágúst 1949. Myndin
segir sögu félagsins frá erfiðum bernskuárum, flutningi í Sundahverfið og loks
flutning þess öðru sinni, í Laugardal. Sigrar, töp og allt þar á milli. Mynd sem
enginn Þróttari má missa af.
í allt sumar hefur félagið staðið fyrir boltaleikjum yngri flokka í hléum á heima-
leikjum meistaraflokka félagsins á Eimskipsvellinum, “Boltaleikir í hálfleik”.
Þetta hefur mælst vel fyrir hjá foreldrum iðkenda yngri flokka og ekki síður hjá
börnunum sjálfum. Jóhannes Haukur Jóhannesson, leikari, sem sjálfur á börn
í Þrótti hefur stjórnað þessum leikjum af miklum myndugleika og á þakkir skilið
sem og bræðurnir öflugu Gunnar og Ásmundur Helgasynir sem voru svo góðir
að hlaupa í skarðið og stýra boltaleikjunum fyrir Jóhannes Hauk þegar hann
Þökkum öllum þeim 1.000 stuðningsmönnum sem komu og studdu
strákana í leiknum mikilvæga við Aftureldingu.
komst ekki vegna verkefna erlendis.
Þróttur sér um alla sjoppusölu á öllum leikjum á Laugardalsvelli. Sjálfboða-
liðar Þróttar hafa auk jiess séð um grill á landsleikjum. í svona verkefni þarf
stóran og góðan hóp af fólki sem Þróttur er svo heppinn að hafa aðgang að.
Þetta er fagfólk sem þekkir verkferlana sem skilar sér i betri sölu og þjónustu
fyrir gesti Laugardalsvallar.
Tveir af stærstu viðþurðum Þróttar ár hvert er VÍS-mótið og Capelli Sport Rey
Cup-mótið. Fjallað er um þessi vinsælu mót annars staðar I blaðinu en þetta
eru einu mótin sem bæði stelpur og strákar taka þátt I og eru bæði mótin orðin
stór hluti af íþróttalífinu ár hvert og hafa fyrir löngu fest sig í sessi.
í desember verður jólahappdrættið og svo mun Þróttur flytja inn Þróttar-jóla-
kúlur sem allir Þróttarar verða að eignast og setja á jólatrén sín.
Að lokum er vert að minnast þess að sjálfboðaliðar í félaginu koma líka að
öðrum viðburðum og skemmtunum eins og Color Run, Gung Ho og núna í ár
Ed Sheeran og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Lifi þróttur!
Boltaleikir yngri flokka í hálfleik á leikjum meistaraflokka félagsins
í sumar slógu í gegn.
39