Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Page 40

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Page 40
 Tennisdeild Þróttar Tennisdeild Þróttar var stofnuð árið 1990 og var fyrstu árin með starfsemi við Sæviðarsund en í Laugardalnum frá árinu 2002 þar sem hún hefur hefur yfir að ráða tveimur útivöllum við suðurenda Val- bjarnarvallar. Eru þeir umgirtir trjágróðri á þrjá vegu en nokkuð opnir fyrir norðangjólunni, sem getur stundum verið býsna hress- andi. Vellirnir eru umluktir netgirðingu með gervigrasi á gegndreypu undirlagi, snjóbræðslu og flóðlýsingu þannig að þá má nota mestan part ársins þótt kalsamt geti verið í skammdeginu. Tennisdeildin hefur ekki aðstöðu innanhúss, nema í takmörkuðum mæli í Tennis- höllinni í Kópavogi fyrir þjálfun ungliða í samstarfi við önnur íþrótta- félög í Reykjavik. Tennisdeildin hefur lagt áherslu á tennis sem almenningsíþrótt því þjálfun afreksmanna er ekki möguleg nema með æfingaaðstöðu við þeirra hæfi vetur sem sumar. Þjálfun ungliða í Tennishöllinni hefur einnig leitt til þess að þeir sem stefna að keppnisþjálfun leita til þeirra félaga sem boðið geta innanhús- saðstöðu. Tennisdeildin hefur í samstarfi við tennisdeild Fjölnis boðið upp á sumarnámskeið fyrir börn og unglinga og námskeið fyrir byrjendur á öllum aldri sem og þá sem lengra eru komnir. Námskeiðahaldið og kennslan hafa verið í höndum menntaðra tennisþjálfara, sem tekið hafa að sér námskeiðshaldið. Námskeiðin hafa þótt takast vel og hafa skilað deildinni og íþróttinni nýjum iðkendum. Skipulag sumarstarfsins er þannig að vellirnir eru teknir frá fyrir svokallaða opna tíma þrisvar til fjórum sinnum í viku en þá geta allir sem vilja komið og spilað einliðaleik eða tvíliðaleik eftir íjölda þeirra sem mæta hverju sinni. Auk þess fá meðlimir deildarinnar gegn hóf- legu árgjaldi leyfi til að nota vellina hvenær sem þeir eru ekki frá- teknir fyrir fasta tíma félagsins og námskeiðin og eru ekki þegar fráteknir af öðrum klúbbfélögum. Umsýslu er haldið í lágmarki með því meðlimir sem þess óska fá afhentan lykil að tennisvöllunum gegn loforði um að ganga vel um og læsa á eftir sér við brottför. Tennisdeildin hefur fylgt þeirri stefnu að halda kostnaði í lágmarki og hefur þannig getað boðið meðlimunum afnot af völlunum á afar hagstæðu verði. Að afstöðnum vorhretunum safnast dyggir félagar saman einhverja góðveðurshelgina, hreinsa vellina og setja upp vindhlífar til að norðanvindurinn nái ekki að trufla leiki um of. Eru vellirnir þá tilbúnir fyrir átök sumarsins. Hlífar þessar eru svo teknar niður fyrir komu haustlægðanna. Fyrir þá sem leggja reglulega stund á tennis er þetta ein ódýrasta aðstöðuleiga sem íþróttafólki öðrum en skokkurum stendur til boða. Þrátt fyrir áherslu deildarinnar á tennis sem almenningsíþrótt taka meðlimi hennar einnig þátt í keppnismótum, einkum fyrir eldri aldursflokka og eins stendur deildin árlega fjnrir Tennismóti Þróttar sem er í mótaröð Tennissambands Island.

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.