Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Síða 46

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019 - 15.09.2019, Síða 46
^SPYRNUFt^ F.v. Helgi Þorvaldsson, Davíð Jónsson, Sigurður Þórðarson, Baldur Þórðarson, Ólafur Guðmundsson, Benedikt Baldursson Sölvi Óskarsson, Óli Viðar Thorstensen, Jón H Ólafsson og Gísli Þór Þorkelsson. Skákin í Þrótti Alveg frá fyrstu árum félagsins hefur skákin fylgt Þrótti, með nokkrum hléum þó. Mikill áhugi var á skákkvöldum í “Bragganum” við Ægisíðuna, sem Skák- og Bridgeklúbbur félagsins hélt og komu margir góðir starfskraftar til félagsins úr hópunum. Aðalhvatamenn að þessum skákkvöldum voru þeir Aðalsteinn Guðmundsson í KRON í Skerjafirði, Magnús V. Pétursson, sem var formaður hans í 5 ár, og Jens Tómasson, allir úr Skerjafirði og Eyjólfur Jónsson sundkappi af Grímsstaðaholtinu. Skákmót Þróttar fóru fram árlega og var fyrsti skákmeistari Þróttar Sigmar Grétar Jónsson sem hlaut 13,5 vinninga í 14 skákum. Fyrsti íþróttasigur Þróttar á nágrönnunum KR vannst einmitt við skákborðið 10 - 2. Fljótlega eftir flutning félagsins í Sæviðarsundið 1969 var aftur tekið til við skákina og teflt í þó nokkur ár og meðal skákmeistara Þróttar þau árin má nefna Guðjón Sv. Sigurðsson, Helga Guðmundsson og Magnús V. Pétursson. Aftur lagðist hún af, en 1990 - 1992 voru haldin skákmót Þróttar og sigraði Stefán Þormar í “Litlu kaffistof- unni” tvisvar og Ingvar Jóhannesson, nú alþjóðlegur skákmeistari, einu sinni. Margir góðir skákmenn komu fram á skákkvöldunum og má þar nefna Ingvar Jóhannesson og Karl Þorsteins, heimsmeistara barna 1979 og tvöfaldan Islandsmeistara. 'Árið 2004 fannst tveimur fyrrverandi þátttakendum í skákinni, þeim Jóni H. Ólafssyni og Helga Þorvaldssyni, tími til kominn að reyna að safna saman gömlum skákmönnum og endurvekja skákina í Þrótti. Það hefur tekist þokkalega og voru 12 -14 þátttakendur með fyrstu árin en nú hefur heldur fækkað í hópnum og væri gaman ef einhverjir eldri Þróttarar sem vildu komast í góðan félagsskap létu í sér heyra. Tefld er ein skák, 30 mín. á mann, á hverju skákkvöldi og keppt um titilinn “Skákmeistari Þróttar” og síðan er tekið til við hraðskák og keppt um titilinn “Stigameistari Þróttar”. Teflt er í annarri hverri viku frá október fram á vor. Ekki er nauðsynlegt að taka þátt í báðum mótunum. Skákmeistarar Þróttar síðustu ára hafa verið þeir Baldur Þórðarson 2004, Benedikt Baldursson 2005 og Ólafur Guðmundsson 2006, 2007 2008 og 2009. Jóni H. Ólafssyni tókst að stöðva sigurgöngu Ólafs og sigraði 2010. Ólafur sigraði síðan aftur 2011, 2012, 2013 og 2014. Júlíus Óskarsson sigráði 2015, Óli Viðar Thorstensen 2016 og 2017, Júlíus Óskarsson 2018 og Sigurður Þórðarson 2019. Stigameistarar Þróttar hafa verið þeir Helgi Þorvaldsson 2004, Bene- dikt Baldursson 2005, Ólafur Guðmundsson 2006 og 2007, Benedikt Baldursson 2008 og Ólafur Guðmundsson aftur 2009, 2010, 2011, 2012, 2013 og 2014. Sigurður Þórðarson sigraði 2015, Davíð Jónsson 2016, Júlíus Óskarsson 2017 og 2018 og Sigurður Þórðarson sigraði 2019. Nú er keppt um bikar sem verslunin Björk, í Bankastræti, gaf til mótsins. Það hefur skyggt á að “Aðalsteinsbikarinn” sem Magnús V. Pétursson gaf til minningar um Aðalstein Guðmundsson, föðurbróður sinn, og keppa á um á Skákmóti Þróttar hefur ekki fundist í mörg ár og er hér með lýst eftir honum. Aðalsteinn var sérstaklega velviljaður klúbbnum og gaf honum á sínum tíma fjölda tafla og bridge-bakka. Nú fyrir nokkrum árum gaf svo skákfélagið Hrókurinn félaginu nokkrar skákklukkur. 46 Helgi Þorvaldsson

x

Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Knattspyrnufélagið Þróttur 70 ára : 1949-2019
https://timarit.is/publication/1578

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.