Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 10
Tilboðsfrestur er 6. ágúst 2021
Sótt er um lóð á Mínum síðum á hafnarfjordur.is. Búið er að marka lágmarksverð í lóðina
sem er kr. 98.000.670. Tilboð undir lágmarksverði teljast ógild. Tilboð í lóð ásamt öllum
fylgigögnum þurfa að berast fyrir kl. 13 föstudaginn 6. ágúst. Sama dag á sama tíma verða
tilboðin opnuð í bæjarráðssal í Ráðhúsi Hafnarfjarðar.
Nánari upplýsingar á:
hafnarfjordur.is
Hjallabraut 49
Einstök lóð fyrir tíu sérbýli á jaðri útivistarsvæðis við Víðistaðatún
Hafnarfjarðarbæ auglýsir eftir tilboðum í lóð á rótgrónum og fjölskylduvænum stað í norðurbæ Hafnarfjarðar. Á lóðinni er
heimilt að byggja þrjú einbýlishús á einni hæð og tvö tveggja hæða raðhús, annað með þremur íbúðum og hitt með fjórum.
Samtals tíu sérbýli í skjólsælli og aðlaðandi vistgötu. Stutt er í alla verslun, þjónustu og menningu. Staðsetningin er einstök, við
norðvestur jaðar Víðistaðatúns sem er vinsælt svæði með fjölbreyttum möguleikum til útivistar.
Svetlana Tsíkanovskaja, sem bauð
sig fram gegn sitjandi forseta
Hvíta-Rússlands í fyrra og flúði
heimland sitt og leitaði hælis í
Lithaén, er í heimsókn á Íslandi og
ræddi við Fréttablaðið í gær.
thorvardur@frettabladid.is
UTANRÍKISMÁL Hv ít r ú ssnesk i
stjórnarandstæðingurinn Svetlana
Tsíkanovskaja kom hingað til lands
í gær í heimsókn á vegum Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra
og fundaði með honum, auk þess
sem hún hitti Steingrím J. Sigfússon
forseta Alþingis og Katrínu Jakobs-
dóttur forsætisráðherra.
Tsíkanovskaja f lúði frá heima-
landi sínu í fyrra eftir forsetakosn-
ingar í ágúst, þar sem hún bauð sig
fram gegn sitjandi forseta, Alexand-
er Lúkasjenkó. Hún leitaði hælis í
Litáen, en eiginmaður hennar Sergei
er í fangelsi í heimalandinu.
Lúkasjenkó hefur farið með völd
í landinu síðan 1994 og stjórnað
með harðri hendi. Vesturlönd, þar
með talið Ísland, segja kosningarnar
ólögmætar og Lúkasjenkó hafa
framið stórtækt kosningasvindl.
Evrópusambandið hefur komið á
refsiaðgerðum gegn Lúkasjenkó og
stjórn hans.
Íslensk stjórnvöld hafa fordæmt
aðgerðir stjórnarinnar gegn stjórn-
arandstæðingum og mótmælend-
um en fjöldi fólks hefur verið hand-
tekinn og mótmæli barin niður.
„Það er mér mikill heiður að vera
boðið hingað. Við erum að leita að
bandamönnum því við verðum að
horfa til framtíðar,“ segir Tsíkanov-
skaja.
„Líkt og við segjum í Hvíta-Rúss-
landi, þá getur ein manneskja ekki
gert mikið. Ég get ekki gert mikið
ein, en get stigið stutt skref. Allir
Hvít-Rússar geta stigið stutt skref.
Ef milljónir stíga stutt skref komust
við langt. Ísland er ekki eitt. Ísland,
í samstarfi við Norðurlöndin, við
Öryggis- og samvinnustofnun Evr-
ópu (ÖSE), við önnur lönd, getur
haft raunveruleg áhrif á ástandið,“
segir Tsíkanovskaja, um möguleg
áhrif Íslands á mál lands hennar.
Flugvél með hvítrússneskum
blaðamanni og stjórnarandstæð-
ingi var neydd til að lenda í höfuð-
borginni Minsk og hann hand-
tekinn í maí. Þá var hert mjög á
refsi aðgerðum ESB.
„Það mun koma í ljós hver við-
brögð stjórnarinnar verða. Þó
verður að segja að það eru undan-
þágur frá refsiaðgerðunum. Í
umræðunni um refsiaðgerðir, þá
er sagt að fólkið muni þjást. Það má
ekki gleymast að fólk er nú þegar
að þjást – ekki vegna refsiaðgerða
heldur vegna framgöngu stjórnar-
innar, vegna of beldis. Fólk vill að
þetta taki enda sem fyrst. Það eina
sem dugar eru harðar refsiaðgerðir.
Það sem við viljum núna, ef stjórnin
heldur áfram að beita of beldi, er
að undirbúnar verði enn frekari
refsiaðgerðir,“ segir hún. „Við byrj-
uðum ekki í ágúst með harðar
refsiaðgerðir. Við reyndum að ná til
stjórnarinnar fyrst og koma á við-
ræðum, í gegnum ÖSE og á öðrum
vettvangi.“ Lúkasjenkó og stjórn
hans sýndu slíkum viðræðum lítinn
áhuga og beittu frekar valdi.
Lúkasjenkó hefur ekki sýnt á
sér neitt farasnið og hefur snúið
sér í austurátt og leitað stuðnings
hjá Rússum og Vladimír Pútín for-
seta. Tsíkanovskaja segir baráttuna
hafa skipt um ham frá því sem var
í haust, þegar fjöldamótmæli fóru
fram víða um Hvíta-Rússland.
„Það eru ekki lengur stór mót-
mæli en á hverjum degi eru smærri,
staðbundin mótmæli. Við setjum
tákn okkar upp alls staðar. Lítil
dagblöð eru útbreidd um landið,
þar sem við gefum fólki réttar
upplýsingar enda er allt f læðandi
í stjórnaráróðri. Stjórnvöld lögðu
sjálfstæða fjölmiðlun í rúst, en
fólk þarf að fá að vita sannleikann.
Sjálfboðaliðar okkar eru að störfum
um allt land, þeir tala við fólk og
útskýra fyrir því hvernig það getur
beitt sér gegn stjórninni. Samstaða
er um allsherjarverkfall, þegar tími
er til kominn,“ segir Tsíkanovskaja
að lokum. ■
Segir fólk vilja að ástandið taki enda sem fyrst
Svetlana Tsík-
anovskaja segir
andstöðuna
gegn Alexander
Lúkasjenkó
halda áfram,
þrátt fyrir að
ekki sé efnt til
stórra mót-
mæla.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Stjórnvöld lögðu
sjálfstæða fjölmiðlun í
rúst, en fólk þarf að fá
að vita sannleikann.
Svetlana Tsíkanovskaja
10 Fréttir 3. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ