Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 65
Í heild voru þetta
glæsilegir tónleikar.
TÓNLIST
Sönghátíð í Hafnarborg
Tónlist eftir: Tónskáld við
Miðjarðarhafið
Flytjendur: Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir, Alexander Jarl
Þorsteinsson, Francisco Javier
Jáuregui og Pétur Jónasson
Hafnarborg
miðvikudaginn 30. júní
Jónas Sen
Ég er með Apple úr og í því er app
sem mælir hljóðstyrk. Að gamni
mínu kveikti ég á appinu á tón-
leikum á Sönghátíð í Hafnarborg á
miðvikudagskvöldið. Þar var nefni-
lega sérlega raddsterkur söngvari,
Alexander Jarl Þorsteinsson tenór.
Ég sat næstum því aftast, en samt
mældi appið raddstyrk Alexanders,
þegar hann var á efstu tónunum í
laginu fræga, O sole mio, hvorki
meira né minna en 88 desíbel. Jú,
rokktónleikar fara upp í 120, en þá
eru líka græjur í botni. Þetta var
órafmagnaður söngur. Áheyrendur
á fremstu bekkjum áttu alla samúð
skilið, hávaðinn þar hlýtur að hafa
verið ægilegur.
Raddstyrkurinn var rúmlegum
tíu stigum meira en hinn söngvari
kvöldsins, Guðrún Jóhanna Ólafs-
dóttir mezzósópran. Samt söng hún
ekkert lágt. Hljómburðurinn var
líka ágætur, bergmálið hæfilegt, og
meira að segja gítar barst vel á öft-
ustu bekki.
Hrífandi söngur
Yfirskrift tónleikanna var Söngvar
f rá Miðjarðarhaf inu . Guðr ún
Jóhanna hóf dagskrána með þjóð-
laginu Que ne suis-je fougere í
útsetningu Guillaume P. A. Gata-
yes, og var söngur hennar sérlega
hrífandi. Túlkun hennar var full
af innlifun, lifandi og skemmtileg;
röddin tær og falleg.
Með Guðrúnu spilaði Francisco
Javier Jáuregui á gítar. Leikur hans
var léttur og kraftmikill, og fallega
ómþýður og ljóðrænn þegar við átti.
Sömu sögu er að segja um næstu
lögin á efnisskránni, en þau voru
eftir höfunda sem eru nánast
óþekktir í íslensku tónleikalífi.
Meira að segja lögin sem tenórinn
knái söng fyrst, og hárið á konunum
á fremsta bekk sveiflaðist til og frá,
voru ekki einhver týpísk tenórmús-
ík. Þau voru eftir Federico Moreno
Torroba, sem var uppi á öldinni sem
leið. Lögin voru þó ekki í ómstríðum
stíl eins og svo oft viðgekkst þá, og
tíðkast svo sem enn. Nei, þau voru
ljúf og þægileg áheyrnar. Söngurinn
sjálfur var hins vegar risastór. Rödd
Alexanders er voldug og einstaklega
kröftug, en líka afar fögur. Túlkun
hans var jafnframt sannfærandi,
einlæg og grípandi. Hann er magn-
aður söngvari.
Til heiðurs Debussy
Gítarleikarinn fyrrgreindi, Javier
Jáuregui, var í lykilhlutverki á tón-
leikunum. Hann sá um meðleikinn,
en ekki píanóleikari eins og vaninn
er. Jáuregui lék líka einleik í verki
eftir Manuel de Falla, Homenaje, til
heiðurs Debussy. Spilamennskan
var vönduð og vel mótuð. Tónlistin
var margslungin og óljós. Heildarút-
koman var ekki beint hrífandi, en
hún var athyglisverð; tónmálið kom
ávallt á óvart.
Annar gítarleikari steig einnig á
svið á tónleikunum, Pétur Jónasson.
Þeir Jáuregui frumfluttu útsetningu
hins síðarnefnda á þjóðvísum eftir
de Falla, fyrir tvo gítara og söng-
rödd Guðrúnar Jóhönnu. Útsetn-
ingin var hugvitsamleg og lifandi,
en maður saknaði eins lagsins úr
lagaf lokknum (Siete canciones
populares españolas). Það er hress-
asta lagið; skrýtið að það skyldi ekki
fá að vera með.
Í heild voru þetta glæsilegir tón-
leikar. Söngurinn var sjarmerandi,
og kynningar söngvaranna voru
oft fyndnar. Dagskráin var auk
þess forvitnileg; eins og áður sagði
var margt sem bar fyrir eyru afar
fáheyrt hér á landi. Það var svo
sannarlega gaman. n
NIÐURSTAÐA: Flottir tónleikar
með fínum tónlistarflutningi og
krassandi músík.
Yfirgengilegur raddstyrkur í Hafnarborg
Rödd Alexanders er voldug og einstaklega kröftug, segir Jónas Sen.
kolbrunb@frettabladid.is
Sunnudaginn 4. júlí kl. 16 mun Tríó
Amasia f lytja tónlist millistríðs-
áranna í Hallgrímskirkju í Saurbæ,
Hvalfirði. Tríó Amasia skipa þau
Hlín Erlendsdóttir f iðluleikari,
Ármann Helgason klarinettuleikari
og Þröstur Þorbjörnsson gítarleikari.
Efnisskrá tónleikanna saman-
stendur af litríkum tónum fyrir
fiðlu, klarinettu og gítar. Tónverkin
eiga það sameiginlegt að vera samin
undir áhrifum tónlistar millistríðs-
áranna en í þeim má heyra fjölmörg
ólík stílbrigði, áhrif frá franskri
kaffihúsa- og götutónlist og djassi
en á tónleikunum heyrast þjóðlög
frá Ungverjalandi, Spáni, Dan-
mörku, Svíþjóð og Armeníu ásamt
dönsum frá Kúbu og Suður-Amer-
íku, auk argentínskrar tangótón-
listar. Tónsmiðirnir sem eiga verk
á efnisskránni eru Laurent Boutros,
Béla Bartók, Ferdinant Rebay og
Astor Piazzolla. n
Sumartónleikar Tríó Amasia
Tríó Amasía flytur tónlist milli-
stríðsáranna í Saurbæ, Hvalfirði.
kolbrunb@frettabladid.is
Sirkus í bænum! er y f irskrift
dagskrár sunnudagsins 4. júlí á
Árbæjar safni milli 13 og 16, en þá
eiga þorpsbúar von á kynlegum
kvistum með magnaða hæfileika.
Hægt verður að berja augum loft-
fimleikafólk, lygilega góðan galdra-
mann, trúðinn Silly Suzy sem blæs
sápukúlur í gríð og erg, skeggjuðu
konuna, ósýnilega manninn í
Suðurgötu og fleiri skrautlegar per-
sónur. Hjá sterkasta manni heims
má taka á því af öllum lífs og sálar
kröftum og fara því næst í skemmti-
lega útileiki eins og stígvélakast og
pokahlaup. n
Sirkus í Árbæjarsafni
Sirkus verður í
Árbæjarsafni á
sunnudag.
LAUGARDAGUR 3. júlí 2021 Menning 37FRÉTTABLAÐIÐ