Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 68
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
n Lífið í
vikunni
27.06.21
03.07.21
Silkifaraldur
Rakel Mjöll f lúði Covid-ástandið í
London og nýtti tímann hér til að
sauma flíkur úr lífrænu silki og naut
þekkingar ömmu sinnar, Guðrúnar
Ásmundsdóttur leikkonu, sem hún
deilir silkiástríðunni með. Afrakst-
urinn er til sýnis í Gallerí Flæði.
Prinsessa fólksins
Díana prinsessa hefði orðið 60 ára 1.
júlí en hún lést í hörmulegu bílslysi í
París 31. ágúst 1997. Hennar var víða
minnst með hlýhug á fimmtudag-
inn, sem hinnar einu sönnu prins-
essu fólksins. Meðal annars með
styttu sem synir hennar afhjúpuðu.
Klippt bensínstöð
Fallandi gengisvísitala bensín-
stöðva gerir þær ekki með öllu ónot-
hæfar. Hárskerinn Benedikt Októ
hefur þannig komið sér fyrir í gömlu
stöðinni við Kópavogsbraut, ásamt
klæðskeranum Rakel Ýri og lands-
lagsarkitektinum Lilju Kristínu.
Skáld í 35 gráðum
Skáldið Kristján Hreinsson er vel
bakaður í 35 gráðu hita í Mílanó,
þar sem hann skrifar eins og vindur-
inn. Höfundarverkið er orðið býsna
drjúgt en ellefta skáldsagan, Lökin
í golunni, er nýkomin út og byggir
óbeint á örlögum móður hans.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sumar
útsalan
í fjórum verslunum
| Smáratorgi
| Holtagörðum
| Akureyri
| Ísafirði
| HEILSUDÝNUR OG –RÚM
| MJÚK- OG DÚNVÖRUR
| SVEFNSÓFAR
| SMÁVÖRUR
| STÓLAR
| SÓFAR
| BORÐ
SMÁRATORGI
OPIN Á SUNNUD.
KL. 13–17
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
LICATA
u-sófi
Licata u-sófi í Kentucky koníak áklæði.
Hægri eða vinstri tunga. Svartir nettir
járnfætur. Stærð: 366 x 226 x 82 cm
Dormaverð: 369.990 kr.
Aðeins 221.940 kr.
40%
AFSLÁTTUR
SUMAR
ÚTSALA
Von er á nýrri plötu frá Ástu í haust, en lagið Melabúð verður á henni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR EYJÓLFSSON
Í dag kemur út myndband við
lagið Melabúðin, með tón-
listarkonunni Ástu. Hún kom
eins og stormur inn í íslenskt
tónlistarlíf með plötunni
Sykurbað, sem hlaut mikið lof
gagnrýnenda.
steingerdur@frettabladid.is
Tónlistarkonan og víóluleikarinn
Ásta Kristín Pjetursdóttir kom eins
og stormur inn í íslensku tónlistar-
senuna. Frumraun hennar, platan
Sykurbað, hlaut mikið lof gagn-
rýnenda og var tilnefnd til íslensku
tónlistarverðlaunanna í nokkrum
flokkum og hlaut þau fyrir bestu
plötuna. Hún vinnur nú að nýrri
plötu en von er á henni í haust. Ásta
er hægt og rólega að gefa út lög af
plötunni og nú fyrir viku kom út
lagið Melabúðin, en myndband við
lagið kemur út í dag.
„Við Árni Hjörvar Árnason, bassa-
leikari The Vaccines, höfum unnið
saman í að þróa nýjan hljóðheim
sem er miklu stærri og fjölbreytt-
ari. Ég nota víóluna rosalega mikið,
hljóðheimurinn er rosalega mikið
byggður út frá henni,“ útskýrir Ásta
Ásta segir lagið Melabúðina vera
allt öðruvísi en það sem hún hefur
gefið út áður.
„Viðfangsefnið er tilfinningalega
léttara, en ég samdi lagið eftir að
hafa orðið vitni að unglingsstrák-
um í Melabúð að tala um ástarlíf
sitt. Við fyrstu sýn virtust þeir vera
svo ótrúlega „too cool for school“,
í dýrum fötum og með algjört
týpuálag að reyna að vera eitthvað
harðir gaurar. En síðan þegar ég
heyrði hvað þeir voru að tala um þá
sá ég að þetta voru bara litlir, sak-
lausir drengir með tilfinningar, sem
reyndu að fela það með því að setja
upp einhverja grímu með veraldleg-
um hlutum. Það er eiginlega kjörn-
unin á laginu, að við erum öll bara
litlar og saklausar mannverur með
tilfinningar, sama hvað við reynum
að fela það,“ segir hún.
Myndbandinu er leikstýrt af
Snæfríði Sól Gunnarsdóttur. Rakel
Ýr Stefánsdóttir sá um tökur, klipp-
ingu og eftirvinnslu.
„Þær eru alveg frábærar, það var
svo gott að vinna með þeim, alltaf
svo gott að vinna með fólki sem
hefur ástríðu fyrir því sem það tekur
sér fyrir hendur.“
Ásta segir það í raun ekki hafa
komið til greina að taka mynd-
bandið upp neins staðar annars
staðar en í Melabúðinni.
„Ég er svo þakklát bræðrunum
Pétri og Snorra, eigendum búðar-
innar, fyrir að leyfa okkur að nota
búðina sem sviðsmynd. Þetta er
náttúrulega svo ótrúlega „iconic“
búð og ég ætla að leyfa mér að full-
yrða að hún eigi sér stóran sess í
hjörtum margra Íslendinga.
Við byrjuðum að taka mynd-
bandið eitt kvöld þegar búðin
lokaði og vorum þar alla nóttina að
taka upp, því ekki var hægt að loka
búðinni yfir daginn. Þetta var þaul-
skipulagt og við vorum svo heppin
að allt gekk upp.“
Myndbandið er nokkurs konar
hliðarveruleiki og sýnir fantasíu
um hvað gerist í Melabúðinni eftir
lokun, að sögn Ástu.
„Það er lítið sem ekkert „privacy“
þar, maður er alltaf innan um hillur
og utan í öðru fólki. Þetta er kannski
eins konar samsplæsing á Mela-
búðinni eins og hún er í raun og
veru og einhvers konar galaklúbbi
og djamminu. Nokkurs konar fyrir-
partí fyrir ball,“ segir hún og hlær.
Á morgun er Ásta með tónleika
í Pikknikk-seríu Norræna hússins.
Þar mun hún að sjálfsögðu taka
lagið Melabúðin. n
Ásta samdi lag um góða
drengi með týpuálag
En síðan þegar ég
heyrði hvað þeir voru
að tala um þá sá ég að
þetta voru bara litlir,
saklausir drengir með
tilfinningar, sem
reyndu að fela það
með því að setja upp
einhverja grímu með
veraldlegum hlutum.
40 Lífið 3. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ