Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 64
Þarna er
verið að
segja frá
sögulegum
atburðum
sem ég
hafði aldrei
heyrt um
áður.
Verkið fjallar um líf
með þeim fyrrverandi.
Pétur Már Ólafsson, útgefandi
Bjarts og Veraldar, sat ekki
auðum höndum í Covid og
þýddi sér til skemmtunar
skáldsöguna Blindgöng.
kolbrunb@frettabladid.is
Blindgöng er eftir hina sænsku Tove
Alsterdal, en fyrir tíu árum kom út
eftir hana hjá Veröld bókin Kon-
urnar á ströndinni. „Sú bók gekk
vel, en þær sem hún sendi frá sér í
kjölfarið hentuðu ekki okkur. Í árs-
byrjun 2019 fengum við síðan hand-
rit að þessari bók í hendur og ég sá
að sagan gerist í Súdetahéraðinu í
Tékklandi. Það vildi þannig til að
við fjölskyldan vorum einmitt á leið
á þessar slóðir svo ég dreif í að lesa
hana, fannst bókin frábær og eins
og það væri skrifað í skýin að við
ættum að gefa hana út. Í Covid var
síðan skyndilega mikið af lausum
tíma hjá mér, bæði lækkuðum við
starfshlutfall hjá öllum í útgáfunni í
tvo mánuði og svo var fátt annað að
gera. Ég byrjaði því að þýða Blind-
göng mér til skemmtunar og áður en
ég vissi af var ég búinn,” segir Pétur
Már.
Spurður hvað hafi heillað hann
við söguna segir Pétur Már: „Bæði
er sagan sjálf mjög spennandi og
áhrifamikil, en svo er líka hitt að
þarna er verið að segja frá sögu-
legum atburðum sem ég hafði aldrei
heyrt um áður.
Mikil baksaga
Söguþráðurinn er á þá leið að sænsk
hjón ákveða að lappa upp á hjóna-
bandið og kaupa vínbúgarð í Tékk-
landi í héraði sem áður hét Súdeta-
Útgáfan eins og skrifuð í skýin
Ég byrjaði því að
þýða Blindgöng
mér til skemmt-
unar, segir Pétur
Már.
kolbrunb@frettabladid.is
Valur Freyr Einarsson, fastráðinn
leikari við Borgarleikhúsið og höf-
undur verðlaunasýningarinnar
Tengdó, leikstýrir eigin verki á Nýja
sviði Borgarleikhússins á næsta
leikári. Fyrrverandi er leikverk sem
kemur úr ranni CommonNonsense
hópsins en Ilmur Stefánsdóttir leik-
myndahöfundur hannar leikmynd
og búninga og tónlistin er í höndum
Davíðs Þórs Jónssonar. Anna Kol-
finna Kuran sér um sviðshreyfingar.
Verkið fjallar um líf með þeim
sem við héldum að við værum hætt
að búa með: fyrrverandi! Leik-
hópinn skipa Jörundur Ragnarsson,
Vala Kristín Eiríksdóttir, Þorsteinn
Bachmann, Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir, Halldór Gylfason og Esther
Talía Casey. Áætluð frumsýning er í
mars 2022. n
Valur Freyr leikstýrir eigin verki
Valur Freyr
Einarsson
semur og leik-
stýrir. verkinu
Fyrrverandi
sem sýnt verður
í Borgarleik-
húsinu á næsta
leikári.
land. Búgarðurinn hefur staðið
yfirgefinn um áratugaskeið, þau
fara að gera hann upp og finna göng
undir honum og þar er gamalt lík af
ungum dreng.
Í Súdetalandi höfðu Tékkar og
þýskumælandi íbúar búið í sátt og
samlyndi um aldir, en í lok seinni
heimsstyrjaldar, eftir hernám nas-
ista, var Súdeta-Þjóðverjum smalað
„heim” til Þýskalands – þar sem eng-
inn vildi fá þá.
Sagan af þessum sænsku hjónum
á framandi slóðum er áhugaverð og
spennandi og morð kryddar hana
en verður samt hálfgert aukaatriði.
Sagan er áhrifamikil í ljósi þeirrar
miklu baksögu sem er þarna.”
Blindgöng er ekki hefðbundin
glæpasaga, en Tove Alsterdal sendi
frá sér í fyrra sína fyrstu hefð-
bundnu sakamálasögu og sú var
valin glæpasaga ársins í Svíþjóð.
„Þetta er höfundur sem kann sitt-
hvað fyrir sér,” segir Pétur.
Eintóm gleði
Covid setti strik í bókaútgáfu hér
á landi, eins og Pétur Már þekkir
af eigin raun. „Þegar öllu var lokað
í apríl í fyrra þá fórum við hjá
útgáfunni í hálft starf í tvo mánuði,
því við vissum ekkert hvað væri í
vændum. Leifsstöð, þar sem einn
fjórði af kiljum hefur selst, lokaði
meira og minna, þannig að kiljuút-
gáfan varð fyrir miklu höggi. Jóla-
vertíðin reyndist hins vegar mjög
góð hjá okkur hjá Bjarti og Veröld.
Og nú, þegar búið er að af létta
öllum höftum, er eintóm gleði fram
undan.” n
kolbrunb@frettabladid.is
María Dalberg opnaði einkasýningu
Uncontainable truth (2021) í Künst-
lerhaus Bethanien í Berlín þann 11.
júní síðastliðinn. Sýningin stendur
til 11. júlí.
Þungamiðja verksins er ljóðaupp-
lestur þar sem María hefur kjarnað
saman og endurskrifað frásagnir
fimm 17.-19. aldar íslenskra vinnu-
kvenna sem sátu réttarhöld vegna
dulsmála.
Myndverkið vísar í þvottakon-
urnar og María notar rauða litinn
sem ákveðna táknmynd. Þvotta-
konurnar hreyfa sig undir tónverki
eftir Áka Ásgeirsson. n
María Dalberg
sýnir í Berlín
María fjallar um dulsmál.
kolbrunb@frettabladid.is
Fimmtudaginn 1. júlí var tilkynnt
að Eva Björg Ægisdóttir hlyti rýting
Samtaka breskra glæpasagnahöf-
unda árið 2021, í f lokkinum frum-
raun ársins („New Blood“) fyrir
Marrið í stiganum. Þetta er í fyrsta
skipti sem þýdd bók fær verðlaunin.
Þessi verðlaun hafa verið veitt
frá árinu 1973 og meðal höfunda
sem hafa átt frumraun ársins eru
Patricia Cornwell (1990), Minette
Walters (1992), Gillian Flynn (2007)
og S. J. Watson (2011), en þær urðu
heimsfrægar í kjölfarið. n
Eva verðlaunuð
í Bretlandi
Eva Björg Ægisdóttir.
Í LOFTINU
Sækja frá
SÆKTU NÝJA APPIÐ!
LAUGARDAGA 16:00-18:30
VEISTU HVER ÉG VAR?
36 Menning 3. júlí 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 3. júlí 2021 LAUGARDAGUR