Fréttablaðið - 03.07.2021, Blaðsíða 27
Sérfræðingur í kerfis- og
notendaþjónustu
Lyfjastofnun er ríkisstofnun sem heyrir
undir heilbrigðisráðuneytið. Helstu
hlutverk stofnunarinnar eru að gefa
út markaðsleyfi fyrir lyf í samvinnu við
lyfjayfirvöld á Evrópska efnahagssvæðinu,
hafa eftirlit með lyfjabúðum,
lyfjafyrirtækjum, heilbrigðisstofnunum og
söluaðilum lækningatækja á Íslandi, meta
gæði og öryggi lyfja og tryggja faglega
upplýsingagjöf um lyf og lækningatæki til
heilbrigðisstarfsfólks og neytenda ásamt
því að taka ákvarðanir um lyfjaverð
og greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga í
lyfjakostnaði sjúklinga.
Hjá Lyfjastofnun starfa rúmlega 80
starfsmenn af 6 þjóðernum. Lyfjastofnun
leggur áherslu á gott vinnuumhverfi,
starfsþróun og framfylgir stefnu
um samræmingu fjölskyldulífs og vinnu.
Gildi Lyfjastofnunar eru: gæði – traust –
þjónusta
Nánari upplýsingar um Lyfjastofnun má
finna á: www.lyfjastofnun.is
Menntunar- og hæfniskröfur:
Lyfjastofnun auglýsir laust starf sérfræðings í upplýsingatæknideild.
Leitað er að öflugum einstaklingi sem reiðubúinn er að vinna fjölbreytt og krefjandi starf í litlu
teymi kerfis- og notendaþjónustu. Um fullt starf er að ræða.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir
(hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Umsjón með þjónustuborði í beiðnakerfi
upplýsingatæknideildar
• Þjónustar notendur í tengslum við tæknibúnað,
aðgang að kerfum og önnur tæknileg mál
• Fræðsla og þjálfun varðandi upplýsingatæknimál
• Uppsetning og eftirlit með tæknibúnaði og kerfum
ásamt úrlausn vandamála
• Umsjón með leyfismálum og aðgangi notenda í Active
Directory (AD), Office 365 og öðrum kerfum
• Umsjón með rekstri upplýsingatæknikerfa
stofnunarinnar
Helstu verkefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 5. ágúst 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá
og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Við hvetjum
bæði konur og karla til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá
lokum umsóknarfrests. Lyfjastofnun hefur hlotið jafnlaunavottun. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og
hlutaðeigandi stéttarfélags.
• Menntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði kerfisstjórnunar
• Starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Góð almenn tölvukunnátta og tæknifærni
• Góð þekking á Office 365 umhverfinu og Active
Directory
• Góð þekking á öllum helsta notendabúnaði
• Gott vald á íslensku auk ensku í ræðu og riti
• Lipurð í mannlegum samskiptum, þjónustulund,
jákvæðni, sveigjanleiki, nákvæm og sjálfstæð
vinnubrögð
Við hjá Lífi og sál erum þéttur hópur sálfræðinga og sáttamiðlara sem vinnur bæði fyrir einstaklinga, starfshópa
og stjórnendur. Líf og sál hefur verið starfrækt í rúm tuttugu ár og býr því yfir mikilli reynslu á vettvangi meðferðar
sem og vinnusálfræði.
Nú leitum við að einstaklingi í teymið okkar.
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 30. júlí 2021.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rök-
stuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsókn berist til Þórkötlu Aðalsteinsdóttur sálfræðings og framkvæmdastjóra Lífs og sálar, thorkatla@lifogsal.is.
Sjá nánar um Líf og sál á www.lifogsal.is.
Starfssvið
• Meðferðarvinna fullorðinna.
• Handleiðsla og ráðgjöf fyrir fagfólk, stjórnendur
fyrirtækja og innan stjórnsýslu um hvaðeina sem
lýtur að sálfélagslegum áhættuþáttum á vinnu-
stöðum.
• Úttektir vegna sálfélagslegra áhættuþátta,
s.s. vinnustaðagreiningar, úttektir vegna
samstarfserfiðleika, áreitni, eineltis.
• Fræðsla í formi fyrirlestra og námskeiða.
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði meðferðar og
vinnusálfræði.
Hæfniskröfur
• Löggilding til starfa sem sálfræðingur á Íslandi.
• Klínísk reynsla æskileg.
• Reynsla af verkefnum á sviði vinnusálfræði æskileg.
• Framúrskarandi samskiptafærni og áhugi á
teymisvinnu.
• Fagmennska, frumkvæði og drifkraftur.
• Ögun í vinnubrögðum og sveigjanleiki.
• Góð íslenskukunnátta og kunnátta í erlendum
tungumálum í töluðu og rituðu máli.
Líf og sál vantar liðsaukaTÆKNIMAÐUR
Sónar ehf. er eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins í innflutningi,
sölu og þjónustu á siglinga- og fjarskiptatækjum í skip og báta.
Sónar ehf. óskar að ráða til starfa tæknimann til
að þjónusta siglinga-, fjarskipta- og fiskileitartæki.
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf
sem fer fram um borð í skipum af öllum stærðum,
ásamt vinnu á verkstæði.
Við leitum að rafeindavirkja, rafvirkja eða aðila
með sambærilega menntun. Umsækjandi þarf að
vera skipulagður og sjálfstæður í vinnubrögðum.
Ef þú hefur áhuga á fjölbreytilegri vinnu á lifandi
og skemmtilegum vinnustað þá endilega hafðu
samband. Góð laun og framtíðarvinna er í boði
fyrir réttan aðila.
Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið
sonar@sonar.is — fyrir 15. júlí.
Fyllsta trúnaðar verður gætt og öllum umsóknum
verður svarað.
w
w
w
.g
od
ve
rk
.is
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára